Beint í efni

Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi greiningu á skrifstofubúnaði.

Málsnúmer 2106553

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

31. (2038). fundur

Lögð fram tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga ásamt skýrslu KPMG um greiningu á stöðu skrifstofubúnaðar, dags. í júní 2022.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

40. (1998). fundur

Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefnum er varðar samstarf sveitarfélaga um stafræna umbreytingu og vísar bréfinu til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

29 (1987). fundur

Sunna G. Sigurðardóttir verkefnastjóri kynnti niðurstöður í vali Garðabæjar um rafræn samstarfsverkefni sveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir niðurstöðurnar.

Sunna G. Sigurðardóttir verkefnastjóri var á fjarfundi undir dagskrárlið 6.

Bæjarráð Garðabæjar

04

24. (1982). fundur

Í tilkynningunni er sagt frá að stafrænt þróunarteymi á vegum Sambandsins vinnur nú að framkvæmd stafrænna samstarfsverkefna sveitarfélaga í samvinnu við stafrænt ráð sem er skipað fulltrúum sveitarfélaga úr hverjum landshluta.

Til kynningar eru 56 verkefnahugmyndir í fimm flokkum og getur hvert sveitarfélag valið þrjár verkefnahugmyndir úr hverjum flokki. Lagt er til að framkvæmdastjóri sveitarfélags fari yfir verkefnahugmyndirnar með völdum starfsmönnum sínum og svari eigi síðar en 12. ágúst nk.

Verkefnahugmyndir, sem fá mest fylgi, munu verða settar í nákvæmt ávinnings- og kostnaðarmat og endanleg ákvörðun um samstarfsverkefni verður tekin út frá þeim niðurstöðum.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og verða valdar verkefnahugmyndir kynntar í bæjarráði.