Beint í efni

31. (2038). fundur

06.09.2022
Bæjarráð Garðabæjar

31. (2038). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

06.09.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2109394

01

Erindi Mannvits varðandi sameiginlega svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2022-2032 á Suðvesturlandi, dags. 14.01.22.

Á fund bæjarráð mættu Teitur Gunnarsson, verkfræðingur hjá Mannviti, og Páll Guðjónsson, ráðgjafi og gerðu grein fyrir vinnu og undirbúningi að mótun tillögu að sameiginlegri svæðisáætlun 2022-2032 um meðhöndlun úrgangs á Suðvesturlandi.

Tillagan var auglýst í september 2021 á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og var frestur til að gera athugasemdir til 29. október 2021. Tillagan hefur hlotið meðferð samkvæmt ákvæðum laganna.

Bæjarráð vísar sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2022-2032 á Suðvesturlandi til afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi við ákvæði 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2106536

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - yfirlit yfir stöðu framkvæmda.

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda fór yfir stöðu helstu framkvæmda samkvæmt fjárhagsáætlun 2023.

Málsnúmer 2106553

03

Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi greiningu á skrifstofubúnaði.

Lögð fram tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga ásamt skýrslu KPMG um greiningu á stöðu skrifstofubúnaðar, dags. í júní 2022.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2208837

04

Umsagnarbeiðni Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna umsóknar Ég er - ferðir ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastarfsemi í golfskála Golfklúbbsins Odds.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Ég er - ferðum ehf., kt. 471014-0600 verði veitt rekstrarleyfi fyrir veitingastarfsemi í golfskála Golfklúbbsins Odds.

Málsnúmer 2207080

05

Bréf Sýslumannsins á Suðurlandi varðandi beiðni um umsögn vegna umsóknar Eimverks ehf. um leyfi til sölu áfengis frá framleiðslustað, dags. 04.07.22.

Umsókn Eimverks ehf., kt. 510811-0700, um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað að Lyngási 13, hefur verið til skoðunar samkvæmt 6. gr. a áfengislaga nr. 75/1998, sbr. lög nr. 35/2022 og 5. gr. reglugerðar nr. 800/2022.

Fyrir liggur að byggingarleyfi hefur verið endurnýjað og er starfsemin í samræmi við skipulagsskilmála. Heilbrigðiseftirlitið er að vinna að endurnýjun starfsleyfis fyrirtækisins en veitir jákvæða umsögn um umsóknina. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur gert úttekt á brunavörnum og veitt jákvæða umsögn um umsóknina.

Upplýsingar liggja fyrir um að afgreiðslutími verður frá kl. 10:00 ? 16:00 á virkum dögum.

Bæjarráð telur að umsóknin uppfylli að öllu leyti skilyrði ákvæða 6. gr. a áfengislaga nr. 75/1998, sbr. lög nr. 35/2022 og 5. gr. reglugerðar nr. 800/2022 og gerir því ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2208200

06

Drög að samningi við Knattspyrnusamband Íslands um aðstöðu í Miðgarði.

Lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 2204281

07

Erindi Sálfræðistofunnar Höfðabakka varðandi styrk til forvarnarverkefnis, dags. 11.04.22.

Um er að ræða forvarnarverkefni sem hefur það að markmiði gefa foreldrum ókeypis efni, byggt á vísindum sem auðveldar þeim að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna.

Fyrir liggja jákvæðar umsagnir frá fjölskylduráði og íþrótta- og tómstundaráði um að Garðabær styrki verkefnið.

Bæjarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð kr. 150.000.

Málsnúmer 2209037

08

Bréf Hafnarfjarðarkaupstaðar varðandi uppsögn samnings um fráveitu, dags. 01.09.22.

Lagt fram bréf Hafnarfjarðarkaupstaðar um uppsögn samnings um viðtöku á skólpi frá Garðabæ í fráveitu Hafnarfjarðar. Uppsagnafrestur er eitt ár og tekur gildi 1. október 2023.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja viðræður við fulltrúa Hafnafjarðarkaupstaðar varðandi samstarf um hönnun og tímasetta verkáætlum vegna lausna á fráveitumálum.

Fylgiskjöl