Beint í efni

Tillaga að sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 á Suðvesturlandi

Málsnúmer 2109394

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (908). fundur

Lögð er fram til afgreiðslu tillaga að sameiginlegri svæðisáætlun 2022-2032 um meðhöndlun úrgangs á Suðvesturlandi.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að sameiginlegri svæðisáætlun 2022-2032 um meðhöndlun úrgangs á Suðvesturlandi.

Bæjarráð Garðabæjar

02

31. (2038). fundur

Á fund bæjarráð mættu Teitur Gunnarsson, verkfræðingur hjá Mannviti, og Páll Guðjónsson, ráðgjafi og gerðu grein fyrir vinnu og undirbúningi að mótun tillögu að sameiginlegri svæðisáætlun 2022-2032 um meðhöndlun úrgangs á Suðvesturlandi.

Tillagan var auglýst í september 2021 á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og var frestur til að gera athugasemdir til 29. október 2021. Tillagan hefur hlotið meðferð samkvæmt ákvæðum laganna.

Bæjarráð vísar sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2022-2032 á Suðvesturlandi til afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi við ákvæði 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

30. (2037). fundur

Bæjarráð samþykkir að fram fari kynning á málinu á næsta fundi bæjarráðs.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

36. fundur

Í erindi Sorpu dags.17. september sl. kemur fram að lögð hafi verið fram tillaga að nýrri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 sem tekur til starfssvæða fjögurra sorpsamlaga og 32 sveitarfélaga á suðvesturhluta landsins. Frestur til athugasemda er til 29. október nk. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna fyrir sitt leyti.

Bæjarráð Garðabæjar

05

38. (1996). fundur

Í afgreiðslu skipulagsnefndar kemur fram að nefndin geri ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við sameiginlega svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.

Málið er til umsagnar hjá umhverfisnefnd en frestur til að gera athugasemdir er til 29. október nk.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

11. fundur

Í erindi Sorpu dags.17.september sl kemur fram að lögð hafi verið fram tillaga að nýrri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 sem tekur til starfssvæða fjögurra sorpsamlaga og 32 sveitarfélaga á suðvesturhluta landsins. Frestur til athugasemda er til 29. október nk.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna fyrir sitt leyti.

Bæjarráð Garðabæjar

07

35. (1993). fundur

Í bréfinu kemur fram að lögð hafi verið fram tillaga að nýrri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 sem tekur til starfssvæða fjögurra sorpsamlaga og 32 sveitarfélaga á suðvesturhluta landsins. Frestur til athugasemda er til 29. október nk.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.

Fylgiskjöl