11. fundur
11. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
30.09.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
- Arnar Hannes Halldórsson - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Vífilsstaðahraun, deiliskipulag Fólkvangs
Þráinn Hauksson landlagsarkitekt og Halldóra Narfadóttir landfræðingur, bæði hjá Landslagi ehf, kynntu tillögu að lýsingu deiliskipulagsferlis vegna Vífilsstaðahrauns í samræmi við 1.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu sem lýsingu verkefnisins og vísar henni til umsagnar og kynningar í samræmi við 2.mgr.sömu greinar sömu laga.
02
Hnoðraholt norður. Breyting á deiliskipulagi. Leikskóli og búsetukjarni.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir stækkun skipulagssvæðis til suðurs austan Vetrarbrautar á háholti Hnoðraholts.
Gert er ráð fyrir 7.292 m2 lóð fyrir leikskóla sem nefnist Haustbraut 1 og 3.143 m2 íbúðarlóð ælaðri búsetukjarna fyrir fatlaða nefnd Haustbraut 2.
Tillagan er í samræmi við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 m.s.br.
Þar sem að breytingartillagan er að fullu í samræmi við aðalskipulag fellur skipulagsnefnd frá gerð lýsingar í samræmi við 2.mgr.40.gr.Skipulagslaga og frá forkynningu í samræmi við 3.mgr.sömu greinar.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.greinar sömu laga. Senda skal dreifibréf í hús í Hnoðraholti þar sem athygli er vakin á auglýsingunni.
03
Brekkugata - breyting dsk Urriðaholt Nhl 2 og Nhl 3.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 2 og deiliskipulags Norðurhluta 3.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að
· afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist lítillega. Deiliskipulagsmörk milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts samræmd.
· Bráðabirgðaútfærsla með snúningshaus í Dyngjugötu og Brekkugötu fellur niður.
Brekkugata og Dyngjugata tengjast Urriðaholtsstræti með deiliskipulagi Urriðaholts 3. áfanga.
· Breyting er gerð á fyrirkomulagi bílastæða og gangstéttar vegna samræmingar milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
· Fyrirhuguð gatnatenging á Brekkugötu frá 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts færist til.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og 1.mgr.43.gr.sömu laga.
04
Mosagata leiksvæði. Breyting á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluti
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að göngustígur milli lóða Mosagötu 2 og 4 og leiksvæði milli lóða Mosagötu 2 og 4, Hellagötu 31 og Holtsveg 27 eru felld niður.
Árið 2014 var gerð breyting í enda Mosagötu þar sem gert er ráð fyrir leiksvæði og stígatengingar milli Mosagötu og tengistígs milli lóða við Mosagötu og Holtsvegar. Það leiksvæði og stígtenging sem tillaga gerir ráð fyrir að felld verði niður eru mjög óhentug í útfærslu.
Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
05
Kauptún 4 - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram drög að tillögu að breytingu deiliskipulags sem nær til lóðarinnar Kauptún 4 (IKEA).
Vísað til skoðunar og úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Afla skal umsagna hjá deiliskipulagshöfundi, Urriðaholti ehf, Rekstrarfélagi Kauptúns og Vegagerðinni.
06
Blikanes 14
Tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu lögð fram að lokinni grenndarkynningu.
Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
07
Hraunhólar. Breyting á deiliskipulagi Hraunsholts eystra.
Vinnslu við endurskoðun deiliskipulags Hraunsholts eystra í Hraunhólum vísað til vinnu við fyrirhugaða mótun tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Hafnarfjarðarvegar og framlengingar Álftanesvegar úr Engidal að Kaplakrika.
08
Hraunhólar 8, breyting á deiliskipulagi Hraunholts eystra
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir því að lóðin Hraunhólar 8 skiptist í tvær einbýlishúsalóðir.
Með vísan til ríkjandi byggðarmynsturs og skiptingar lóðar númer 12 við samþykkt deiliskipulags Hraunsholts eystra metur skipulagsnefnd tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga vísar til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum allra húsa við Hraunhóla og Lynghóla.
09
Kumlamýri. Breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Kumlamýrar á Álftanesi að lokinni grenndarkynningu.
Tvö erindi bárust með athugasemdum og þau lögð fram.
Fyrir mistök var sagt í texta grenndarkynningar að lóðir nr. 26-38, 30-32 og 29-32 yrðu innan eignamarka Garðabæjar. Rétt er að þær verða utan eignamarka Garðabæjar.
Þrátt fyrir mistök í erindi með grenndarkynningu er greinilegt á öðrum gögnum hver breytingin er. Ítargögn voru send til þeirra sem standa að erindi 1 þar sem eignamörk koma greinilega fram.
Varðandi athugasemd um atriði á uppdrætti sem eru utan deiliskipulagsmarka skal bent á að þau koma einnig fram á gildandi uppdrætti. Þau hafa ekki áhrif á ákvæði deiliskipulagsins.
Skipulagsnefnd leggur til að þessi atriði verði lagfærð á uppdrætti sem sýnir deiliskipulagið eftir breytingu. Í erindi 1 er því haldið fram að gatnagerð við botnlanga 18-32 sé ekki möguleg þar sem að ekki sé hægt að vera með hringakstur eins og tillagan gerir ráð fyrir. Gatnaframkvæmd er að mati bæjarverkfræðings vel möguleg þó svo að ekki verði hægt að hafa hringakstur á meðan að ekki næst samkomulag um gatnaframkvæmdina við landeigendur sunnan eignamarka.
Atriði sem athugasemdir eru gerðar við í erindi 2 varða ekki innihald tillögunnar og er erindinu er vísað til tækni-og umhverfissviðs og framkvæmdaraðila.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Kumlamýrar í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með ofangreindri tillögu að lagfæringu á uppdrætti.
10
Víðiholt íbúðabyggð. Deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt lagðar fram að lokinni forkynningu.
Fjöldi ábendinga hafa borist og þær lagðar fram. Starfsmenn tækni-og umhverfissviðs funduðu með fulltrúum íbúa við Asparholt og Lyngholt og fundargerð þess fundar lögð fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
11
Félagssvæði Sóta. Deiliskipulag.
Tillaga að deiliskipulagi hesthúsasvæðis lögð fram að lokinni forkynningu.
Ábendingar hafa borist og þær lagðar fram. Starfsmenn tækni-og umhverfissviðs funduðu með fulltrúum íbúa við Asparholt og Lyngholt og fundargerð þess fundar lögð fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
12
Hólmatún 56 - gróðurhús - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um staðsetningu gróðurhúss á lóð sem er nær lóðarmörkum að bæjarlandi en 3 metrar. Smáhýsi yrði staðsett nærri suðvesturhorni lóðar við lóðarmörk að opnu svæði á Deildartanga.
Fyrir hönd Garðabæjar gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við staðsetningu smáhýsis nær lóðarmörkum að bæjarlandi en 3 metrar á meðan að byggingin uppfyllir öll skilyrði byggingarreglugerðar um smáhýsi sem undanþegin eru byggingarleyfi.
13
Nýsköpunarverkefni Pikkoló - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fram fyrirspurn um staðsetningu smáhýsis fyrir sjálfsafgreiðslustöð á vegum fyrirtækisins Pikkoló inn á lóð Austurhrauns nr.9. Smáhýsið væri vel innan byggingarreits.
Skipulagsnefnd tekur afar jákvætt í hugmyndina en mælir með því að sótt verði um byggingarleyfi fyrir byggingunni þar sem að undanþáguákvæði byggingarreglugerðar vegna byggingar smáhýsa eigA ekki við í þessu tilfelli.
Skipulagsnefnd vísar til tækni-og umhverfissviðs að fylgjast vel með þeirri þróun sem á sér stað í útfærslum og staðsetningum á sjálfsagreiðslustöðvun verslana.
14
Litlabæjarvör 4, undirbúningur friðlýsingar
Lagt fram erindi Minjastofnunar dags.10.september 2010 þar sem Garðabæ er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögu að friðlýsingu hússins að Litlubæjarvör 4.
Skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir við friðlýsingartillöguna sem ber að fagna. Nefndin óskar arkitektinum, húseigendum og Garðabæ til hamingju með heiðurinn.
16
Sameiginleg svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 á Suðvesturlandi
Í erindi Sorpu dags.17.september sl kemur fram að lögð hafi verið fram tillaga að nýrri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 sem tekur til starfssvæða fjögurra sorpsamlaga og 32 sveitarfélaga á suðvesturhluta landsins. Frestur til athugasemda er til 29. október nk.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna fyrir sitt leyti.
17
Kinnargata 26 - Steypa bílaplan - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu á steyptu bílastæði sem gerir ráð fyrir móttaka á ofanvatni innan lóðar.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar sem gerir ekki athugasemd við að bílaplan sé steypt ef ofanvatni frá bílastæði er veitt í þar til gerðan móttaka innan lóðar.
Ákvæði um gegndræpt yfirborð bílastæða er sett fram í grein 4.6.1.1 í deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofangreinda útfærslu á bílastæði varðar þar sem að móttaki ofanvatns er innan lóðar.
18
Víkurgata 19 - Umsókn um byggingarleyfi
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfisviði.
19
Súlunes 4 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um staðsetningu 50-100 m2 vinnustofu á baklóði einbýlishússins að Súlunesi 4. Umsögn deiliskipulagsráðgjafa sem óskað var eftir lögð fram. Með vísan í umsögn deiliskipulagsráðgjafa er svar skipulagsnefndar neikvætt.
20
Blikanes 6 - stækkun byggingarreits. -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Blikaness 3, 4,5,8 og 7 sem og Tjaldaness 3,5 og 7.
21
Deiliskipulag Silfurtúns. Deiliskipulagsbreyting v. nýtingarhlutfalls.
Málinu frestað til næsta fundar.
22
Hagaflöt 20 - skjólveggur -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um gerð girðingar á lóðarmörkum að tengistíg milli Hagaflatar og Lindarflatar. Hæð hennar yrði 2 m.
Skipulagsnefnd telur að samanlögð lengd húshliðar og 2 m hárra girðingar sé ekki æskileg og stuðli að fráhrindandi yfirbragði tengistígs.
Skipulagsnefnd mun aðeins fallast á 1,5 m háa girðingu sem er í samræmi við tillögu að samþykkt um veggi og girðingar sem nú er í almennri kynningu á vef Garðabæjar. Æskilegt væri að girðing væri brotin upp og gæfi rými fyrir gróður utan girðingar.
23
Lindarflöt 28 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
24
Sunnakur 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
25
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 11
25.1 - 2108677 - Eikarás 1 aukaíbúð nýtt fastanúmer -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
25.2 - 1906181 - Jafnakur 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Fylgiskjöl
25.3 - 2109366 - Borgarás 10 - Bílastæði - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
25.4 - 2107272 - Maríugata 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
25.5 - 2109076 - Maríugata 7 - Frávik í deiliskipulagi -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
25.6 - 2109068 - Kinnargata 44-80. Fyrirspurn um frávik frá deiliskipulagsskilmálum
Fylgiskjöl
26
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 10
26.1 - 2105624 - Andvaravellir 3 - kvistur á ris -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
26.10 - 2109102 - Suðurhraun 2a - stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
26.2 - 2106218 - Vesturtún 38 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
26.3 - 2106219 - Vesturtún 40 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
26.4 - 2108104 - Kirkjulundur 17 - Umsókn um byggingarleyfi - Deiliskipulagsbreyting
Fylgiskjöl
26.5 - 2109068 - Kinnargata 44-80. Fyrirspurn um frávik frá deiliskipulagsskilmálum
Fylgiskjöl
26.6 - 2109060 - Maríugata 9-11 breyting á þaki - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
26.7 - 2109076 - Maríugata 7 - Frávik í deiliskipulagi -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
26.8 - 2107272 - Maríugata 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
27
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 9
27.1 - 2104268 - Sjávargata 8 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
27.10 - 2108126 - Kinnargata 26 - Steypa bílaplan - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
27.11 - 2108339 - Molduhraun - Vesturhraun 1-5 - stækkun lóða og br. á spennistöð
Fylgiskjöl
27.12 - 2108365 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs - Keldugata 4-10
Fylgiskjöl
- Aðaluppdrættir.pdf
- Urriðaholt-Umsögn Keldugata 4-10 20210805.pdf
- RE: Keldugata 4-10 ums.mtt. deiliskipulagsskilmála.pdf
- FW: Keldugata 4-10 ums.mtt. deiliskipulagsskilmála.pdf
- 2106 Keld_Aðaluppdrættir (200821).pdf
- 2106-Mbl Uppf.aðaluppdr. (200821).pdf
- 2106 Keld_Aðaluppdrættir (200821) 4-10.pdf
- RE: Keldugata 4-10. Uppfærðir aðaluppdrættir.pdf
27.13 - 2108327 - Hólmatún 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
27.2 - 2108332 - Bjarnastaðavör göngustígur - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
27.3 - 2108338 - Eskiás 3a - skipting lóðar
Fylgiskjöl
27.4 - 2106503 - Brekkuás 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
27.5 - 2108222 - Sunnuflöt 24 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
27.6 - 2108050 - Lindarflöt 28 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
27.7 - 2107003 - Bakkaflöt 5 - Umsókn um byggingarleyfi
27.8 - 2108132 - Stekkjarflöt 9 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
27.9 - 2107384 - Sunnakur 3 - Umsögn vegna lóðafrágangs - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fylgiskjöl
28