Beint í efni

Kumlamýri. Breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2106451

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (891). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kumlamýrar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir við tillöguna sem brugðist hefur verið við." (Mál nr. 2106451)

Bæjarráð Garðabæjar

02

38. (1996). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kumlamýrar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir við tillöguna sem brugðist hefur verið við.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Kumlamýrar á Álftanesi að lokinni grenndarkynningu.
Tvö erindi bárust með athugasemdum og þau lögð fram.
Fyrir mistök var sagt í texta grenndarkynningar að lóðir nr. 26-38, 30-32 og 29-32 yrðu innan eignamarka Garðabæjar. Rétt er að þær verða utan eignamarka Garðabæjar.
Þrátt fyrir mistök í erindi með grenndarkynningu er greinilegt á öðrum gögnum hver breytingin er. Ítargögn voru send til þeirra sem standa að erindi 1 þar sem eignamörk koma greinilega fram.
Varðandi athugasemd um atriði á uppdrætti sem eru utan deiliskipulagsmarka skal bent á að þau koma einnig fram á gildandi uppdrætti. Þau hafa ekki áhrif á ákvæði deiliskipulagsins.
Skipulagsnefnd leggur til að þessi atriði verði lagfærð á uppdrætti sem sýnir deiliskipulagið eftir breytingu. Í erindi 1 er því haldið fram að gatnagerð við botnlanga 18-32 sé ekki möguleg þar sem að ekki sé hægt að vera með hringakstur eins og tillagan gerir ráð fyrir. Gatnaframkvæmd er að mati bæjarverkfræðings vel möguleg þó svo að ekki verði hægt að hafa hringakstur á meðan að ekki næst samkomulag um gatnaframkvæmdina við landeigendur sunnan eignamarka.
Atriði sem athugasemdir eru gerðar við í erindi 2 varða ekki innihald tillögunnar og er erindinu er vísað til tækni-og umhverfissviðs og framkvæmdaraðila.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Kumlamýrar í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með ofangreindri tillögu að lagfæringu á uppdrætti.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

11. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

05

26. (1984). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsstjóra um að vísa til grenndarkynningar tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Kumlamýrar.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kumlamýrar á Álftanesi sem gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-Aðkoma að klasa 18-32 færist til norðurs út fyrir eignamörk.
-Lóðir í klasanum hnikast til þannig að nr 26-28 og 30- 32 verða sunnan eignamarka.
-Lóðir 18-20 og 22-24 hnikast til vesturs.
-Aðkoma að klasa 17-31 færist til norðurs út fyrir eignamörk.
-Lóðir í klasa 17-31 hnikast til þannig að lóðir 29-31 færist vestur fyrir eignamörk og aðrar lóðir í klasanum hnikast til.

Skipulagsstjóri metur breytingartillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Kumlamýrar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Kirkjubrekku 17,19,20,21 og 22 sem og Tjarnarbrekku 10,11,12 og 13. Einnig öðrum landeigendum innan deiliskipulagssvæðisins.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.