Beint í efni

13. (891). fundur

07.10.2021
Bæjarstjórn Garðabæjar

13. (891). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

07.10.2021

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Gunnar Einarsson
  • Guðfinnur Sigurvinsson
  • Stella Stefánsdóttir
  • Kjartan Örn Sigurðsson
  • Harpa Þorsteinsdóttir
  • Valborg Ösp Á. Warén
  • Baldur Ólafur Svavarsson

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vefsíðu bæjarins.

Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 16. september 2021 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2109035F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 21/9 ´21.

Gunnar Einarsson, ræddi 21. tl., leiðréttingu á kjörskrá vegna kosninga til Alþingis og þakkaði kjörstjórn fyrir trausta og örugga stjórn við framkvæmd kosninga hér í Garðabæ.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021 - Viðauka nr. 2 og nr. 3.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021 - Viðauka nr. 2 og nr. 3.

Kjartan Örn Sigurðsson, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021 - Viðauka nr. 2 og nr. 3.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021 - Viðauka nr. 2 og nr. 3.

Fundargerðin sem er 21 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

1.2 - 2006130 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 - Viðaukar nr. 2 og nr. 3.

„Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 2 og 3 við fjárhagsáætlun 2021 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 2 - Fjölskyldusvið
Kostnaðarauki vegna breytinga á vinnutíma vaktavinnufólks á fjölskyldusviði skv. kjarasamningum með gildistíma frá 1. maí 2021.
Heimili fatlaðra:
Miðskógar 5.900.000 02564-
Krókamýri 5.600.000 02563-
Ægisgrund 6.500.000 02561-
Sigurhæð heimili ungmenna 9.900.000 02562-
Skammtímavistun Móaflöt 19.300.000 02571-

Annað:
Stoðþjónusta 7.900.000 02530-
NPA samningar 12.200.000 02530-4993
Búsetukjarni Unnargrund 30.000.000 02565-
Samtals fjölskyldusvið vegna aukins kostnaðar við
styttingu vinnutíma vaktavinnufólks 97.300.000

Viðbætur vegna aukinnar þjónustu á fjölskyldusviði:
Stuðningaþjónusta (frekari liðveisla) 16.000.000 02530-
Stuðningsþjónusta 6.000.000 02550-
Stuðningsfjölsk. og annar stuðn. utan heimilis 6.000.000 02560-
Lengd viðvera fatlaðra ungmenna 15.000.000 02582-4369
Samtals annað 43.000.000

Samtals útgjaldaauki 140.300.000

Fjármögnun
Útgjaldaauka er mætt með gatnagerðatekjum
Gatnagerðartekjur -140.300.000

Viðauki 3 - Æskulýðs- og íþróttamál
Kostnaðarauki vegna breytinga á styttingu vinnutíma vaktavinnufólks í íþróttahúsum skv. kjarasamningum með gildistíma frá 1. maí 2021.
Ásgarður 7.400.000 06511-
Íþróttamavirki Álftanesi 5.700.000 06514-
Mýrin 1.600.000 06512-
Samtals 14.700.000

Annað á æskulýðs- og íþróttasviði:
Vinnuskóli fleiri börn en áætlað var 41.000.000 06271-
Skólagarðar Hæðahverfi endurbætur 5.000.000 06299-
Stjörnuvöllur nýr samningur 7.300.000 06610-4990
Skátafélagið Vífill - útilífsmiðstöð búnaður og verðbætur 19.000.000 06810-9990
Garðalundur - launaliður 5.000.000 06311-
Félagsmiðstöð Sjálandsskóla - launaliður 1.500.000 06312-
Félagsmiðstöð Álftanesskóla - launaliður 1.500.000 06313-
Samtals annað 80.300.000

Alls 95.000.000

Fjármögnun - útgjaldaauka mætt með gatnagerðartekjum
Gatnagerðartekjur -95.000.000“

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109040F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 24/9 ´21.

Fundargerðin sem er 1 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2109044F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 28/9 ´21.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um almenningssamgöngur í Urriðaholti. Harpa fór fram á að bókun Söru Daggar verði færð í fundargerð bæjarstjórnar.

"Garðabæjarlistinn fagnar þeirri ákvörðun að stórauka skuli þjónustu við íbúa Urriðaholts með aukinni tíðni strætóferða til og frá hverfi líkt og við í Garðabæjarlistanum höfum ítrekað talað fyrir og lagt til. Aukin þjónusta mun ekki síst hafa mikil áhrif á þjónustu við börn og ungmenni sem við fögnum mjög."

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., viðhald og endurnýjun götulýsingar.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um almenningssamgöngur í Urriðaholti.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 14. tl., ósk Garðabæjarlistans um minnisblað um stöðu innleiðingar innkaupa og úrgangsstefnu Garðabæjar.

Baldur Ólafur Svavarsson, ræddi 1. tl., svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um almenningssamgöngur í Urriðaholti.

Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2110001F

04

Fundargerð bæjarráðs frá 5/10 ´21.

Almar Guðmundsson, ræddi 26. tl., íbúðakjarna við Brekkuás - forvalsgögn vegna alútboðs, 24. tl., tillögu um sölu á einbýlishúsi að Holtsbúð 85 og 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðar fyrir leikskóla og íbúðakjarna.

Baldur Ólafur Svavarsson, ræddi 26. tl., íbúðakjarna við Brekkuás - forvalsgögn vegna alútboðs, 24. tl., tillögu um sölu á einbýlishúsi að Holtsbúð 85 og 27. tl., samning við Arnarland ehf. um gerð deiliskipulags og uppbyggingu á Arnarneshálsi.

Gunnar Einarsson, ræddi 26. tl., íbúðakjarna við Brekkuás - forvalsgögn vegna alútboðs og 27. tl., samning við Arnarland ehf. um gerð deiliskipulags og uppbyggingu á Arnarneshálsi.

Fundargerðin sem er 27 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

4.1 - 2006130 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 - Viðauki nr. 4.

"Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2021 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Fræðslumál
Leikskóladeild Urriðaholtsskóla
Fjárframlög til leikskóladeildar Urriðaholtsskóla eru vanáætlað í fjárhagsáætlun ársins 2021.
Leikskólinn hefur vaxið gríðarlega á síðustu misserum og er nú áætlað að 214 börn verði í skólanum í okt.

Barnafjöldi í skólanum hefur verið eftirfarandi:
Janúar 2019 72 börn
Janúar 2020 118 börn
Janúar 2021 157 börn
1. okt. 2021 214 börn (áætl.) 142 (fjölgun um 142 börn frá 2019)

Stöðugildum við skólann hefur fjölgað jafnt og þétt og eru nú orðin 53.
Sérkennsla hefur einnig aukist í skólanum.
Hlutfall háskólamenntaðra starfsmanna er hátt í leikskólanum
Ljóst er því að það vantar um 200 millj. kr. á launalið skólans til að áætlun ársins geti staðist.

Fæðisgjöld -3.500.000 04121-0240
Leikskólagjöld -18.000.000 04121-0251
Launaliðir leikskóladeildar Urriðaholtsskóla 200.000.000 04121-
Samtals 178.500.000

Leikskólinn Sjáland
Vegna samkomulags við Sjáland ehf. dags. 11. júní sl. greiðir Garðabær félaginu rúmlega 104 m.kr. á árinu 2021 vegna vanhækkunar á greiðslum samkvæmt 6. gr. samnings aðila frá 2004 vegna launaþróunar leikskólakennara, hækkunar neysluverðsvísitölu til verðtryggingar og annarra kostnaðarhækkana, þ.á.m. aukins undirbúningtíma starfsfólks og styttingu vinnuviku.

Greitt á árinu 2021 104.198.000 04116-4364

Frístundaheimili
Vegna Covid hafa tekjur tómstundaheimila ekki verið eins og upphafleg áætlun gerði ráð fyrir á vorönn 2021. Tímabil komið upp sem dregið hefur úr viðveru.
Meiri stuðningur er við börn með sérþarfir en áætlun gerði ráð fyrir.
Frístundaheimili Garðabæjar 12.000.000 ýmsir lyklar

Samtals útgjaldaauki 294.698.000

Fjármögnun viðauka
Útgjaldauka mætt með hækkun á staðgreiðslu útsvars -294.698.000"

Fylgiskjöl

4.11 - 1912107 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 8

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um að lóðinni við Hraunhóla 8 verði skipt í tvær einbýlishúsalóðir. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum allra húsa við Hraunhóla og Lynghóla." (Mál nr. 1912107)

Fylgiskjöl

4.12 - 2109351 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðar fyrir leikskóla.

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir stækkun skipulagsvæðisins til suðurs frá Vetrarbraut á háholti Hnoðraholts. Gert er ráð fyrir að á svæðinu verði lóð fyrir leikskóla og lóð fyrir íbúðakjarna fyrir fatlað fólk.
Bæjarstjórn samþykkir að fallið sé frá gerð lýsingar og forkynningu, sbr. heimild í 2. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga, þar sem allar meginforsendur fyrir tillögunni liggja fyrir í aðalskipulagi." (Mál nr. 2109351)

Fylgiskjöl

4.13 - 2109350 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi Minjastofnunar um friðlýsingu einbýlishússins að Litlabæjarvör 4.

"Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti tillögu Minjastofnunar Íslands að skilmálum um friðlýsingu einbýlishússins að Litlabæjarvör 4. Friðlýsingin tekur til ytra borðs og frágangs gólfs, lofts og veggja í stofurými og miðjugangi innan dyra." (Mál 2109350)

Fylgiskjöl

4.14 - 2104420 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að lýsingu deiliskipulags fyrir Vífilsstaðahraun - fólkvang.

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að deiliskipulagi Fólkvangs í Vífilsstaðahrauni, Maríuhellum og Vatnsmýrinni." (Mál nr. 2104420)

Fylgiskjöl

4.16 - 2108126 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi heimild til útgáfu á byggingarleyfi vegna framkvæmda á lóðinni við Kinnargötu 26.

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss að Kinnargötu 26 þó að vikið sé frá ákvæði skipulagsskilmála um gegndræpt yfirborð bílastæða enda tryggt að steypt bílastæði veiti ofanvatni móttöku innan lóðar en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytingar á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010." (Mál nr. 2108126)

Fylgiskjöl

4.6 - 2109133 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 6.

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu á lóðinni við Blikanes 6. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Blikaness 3, 4, 5, 7 og 8 og Tjaldaness nr. 3, 5 og 7." (Mál nr. 2109133)

Fylgiskjöl

4.7 - 2106451 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Kumlamýrar.

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kumlamýrar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir við tillöguna sem brugðist hefur verið við." (Mál nr. 2106451)

Fylgiskjöl

4.8 - 2011163 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna svæðis við Brekkugötu og Dyngjugötu.

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Í deiliskipulagsbreytingunni felst.
Afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist lítillega og mörk milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts verða samræmd.
Bráðabirgðaútfærsla með snúningshaus í Dyngjugötu og Brekkugötu fellur niður.
Brekkugata og Dyngjugata tengjast Urriðaholtsstræti með deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Breyting er gerð á fyrirkomulagi bílastæða og gangstéttar vegna samræmingar milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Fyrirhuguð gatnatenging Brekkugötu frá 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts færist til." (Mál nr. 2011163)

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109023F

05

Fundargerð fjölskylduráðs frá 15/9 ´21.

Almar Guðmundsson, ræddi 7. tl., reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannskostnaðar, 8. tl., samtöluskýrslu í barnavernd og 10. tl., erindi Félags eldri borgara um húsnæðismál fyrir starfsemi á vegum félagsins.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 8. tl., samtöluskýrslu í barnavernd.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2109025F

06

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/9 ´21.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., íþróttamenning - viðbrögð við ofbeldismálum, 4. tl., tillögu um hugmyndasamkeppni að nafni fyrir fjölnota íþrótthús. Björg fagnaði fjölda umsókna um ferðastyrki frá afreksfólki í íþróttum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2109018F

07

Fundargerð leikskólanefndar frá 22/9 ´21.

Valborg Ösp Á Warén, ræddi 5. tl., stöðu innritunar barna í leikskóla haustið 2021.

Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., stöðu innritunar barna í leikskóla haustið 2021.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., stöðu innritunar barna í leikskóla haustið 2021.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 5. tl., stöðu innritunar barna í leikskóla haustið 2021. Harpa lagði fram eftirfarandi bókun.

“Undirrituð lýsir yfir áhyggjum yfir þeim aðstæðum sem meirihlutinn hefur skapað með vanáætlun á íbúafjölgun og íbúasamsetningu, þær lausnir sem Garðabær hefur boðið uppá eru ekki einungis aukið flækjustig fyrir foreldra heldur einnig kostnaðarauki fyrir foreldra sem eiga börn á fleiri en einum leikskóla, og það í bæjarfélagi þar sem leikskólagjöld eru með þeim hærri á landsvísu?

Kjartan Örn Sigurðsson ræddi 5. tl., stöðu innritunar barna í leikskóla haustið 2021.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., stöðu innritunar barna í leikskóla haustið 2021.

Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., stöðu innritunar barna í leikskóla haustið 2021.

Baldur Ólafur Svavarsson, ræddi 5. tl., stöðu innritunar barna í leikskóla haustið 2021.

Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., stöðu innritunar barna í leikskóla haustið 2021.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2109046F

08

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 27/9 ´21.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., önnur menningarmál, tónlistarveislu í skammdeginu og Söngleikinn Pálmar sem tvær ungar stúlkur sem störfuðu í skapandi sumarhópi Garðabæjar sömdu og settu upp á sviði í FG við mikla lukku.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2109048F

09

Fundargerð skipulagsnefndar frá 30/9 ´21.

Stella Stefánsdóttir, ræddi 1. tl., lýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðahrauns.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2109006F

10

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 29/9 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101447

11

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 27/9 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102176

12

Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 6/9, 10/9 og 17/9 ´21.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., fg. frá 6/9, myglu í Gaju og 2. tl., fg. frá 6/9, stöðu útboðs á útflutningi á brennanlegum úrgangi og 1. tl., fg. frá 10/9, áætlun Sorpu árið 2022 og drög að gjaldskrá.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2101300

13

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 24/9 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2108165

14

Starfsreglur svæðisskipulagsnefndar og samkomulag sveitarfélaganna um svæðisskipulag.

Lagt fram samkomulag um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins en samkomulagið var áður á dagskrá bæjarstjórnar 19. ágúst sl.

Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samkomulag sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu: Garðabær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Kjósarhreppur, Kópavogsbær, Reykjavíkurborg, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær, um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins í samræmi við ákvæði 2. mgr. 22. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn samþykkir að bæjarstjóri undirriti samkomulagið fyrir hönd Garðabæjar.

Málsnúmer 2109359

15

Samningur við Arnarland ehf. um gerð deiliskipulags og uppbyggingu á Arnarneshálsi.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að samningi við Arnarland ehf. um deiliskipulag og uppbyggingu á norðanverðum Arnarneshálsi en landsvæðið er í eigu Arnarlands ehf.

Samningurinn er 17. gr. og hluti hans eru jafnframt 7 fylgiskjöl.

Baldur Ólafur Svavarsson, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans.

Bæjarstjórn heimilar Arnarlandi ehf. að hefja vinnu við undirbúning deiliskipulags með gerð skipulagslýsingar, sbr. 2. mgr. 38. gr skipulagslaga nr. 123/2010, sem fyrirhugað er að kynna í janúar 2022. Garðabær mun hefja undirbúning að breytingu á aðalskipulagi í samræmi við hugmyndir samningsaðila um uppbyggingu landsins.