Starfsreglur svæðisskipulagsnefndar og samkomulag sveitarfélaganna um svæðisskipulag.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (891). fundur
Lagt fram samkomulag um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins en samkomulagið var áður á dagskrá bæjarstjórnar 19. ágúst sl.
Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samkomulag sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu: Garðabær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Kjósarhreppur, Kópavogsbær, Reykjavíkurborg, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær, um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins í samræmi við ákvæði 2. mgr. 22. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn samþykkir að bæjarstjóri undirriti samkomulagið fyrir hönd Garðabæjar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
10. (888). fundur
Lagðar fram til afgreiðslu starfsreglur fyrir svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins sem samþykktar voru á fundi nefndarinnar sem haldinn var 11. júní 2021.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, fyrir sitt leyti, starfsreglur fyrir svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð samþykkir að skipa Áslaugu Huldu Jónsdóttur og Söru Dögg Svanhildardóttur sem varafulltrúa í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð Garðabæjar
04
30 (1988). fundur
Bæjarráð vísar nýjum starfsreglum til afgreiðslu bæjarstjórnar ásamt því að tilnefna tvo varafulltrúa í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.