30 (1988). fundur
30 (1988). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
17.08.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
COVID-19 - undirbúningur skólastarfs og staðan almennt.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir stöðu mála varðandi undirbúning fyrir upphaf skólastarfs í grunnskólum og aðlögun nýrra barna í leikskólum. Unnið er að gerð samræmdra leiðbeininga fyrir höfuðborgarsvæðið varðandi aðgreiningu á rýmum o.fl. sem felur í sér ákveðnar takmarkanir á skólastarfi. Lögð er áhersla á sóttvarnir, grímuskyldu, nálægðarmörk og takmarkaðan aðgang utanaðkomandi aðila að skólahúsnæði. Unnið er að undirbúningi bólusetninga skólabarna sem mun hefjast í næstu viku.
Málsnúmer 2107049
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir 6 deilda leikskóla við Spítalaveg 2B.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi fyrir útgáfu á byggingarleyfi fyrir 6 deilda leikskóla úr færanlegum húseiningum að Spítalavegi 2B. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 2106218
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis á Álftanesi vegna lóðarinnar við Vesturtún 38.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Vesturtún 38 og 40. Í tillögunni felst að leyfa hækkun á þaki, svalir fari út fyrir byggingarreit og að nýtingarhlutfall verði 0,43.
Málsnúmer 2106219
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis á Álftanesi vegna lóðarinnar við Vesturtún 40.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Vesturtún 38 og 40. Í tillögunni felst að leyfa hækkun á þaki, svalir fari út fyrir byggingarreit og að nýtingarhlutfall verði 0,43.
Málsnúmer 2103505
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytinga á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar Kornakur 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Kornakur 7. Í tillögunni er gert ráð fyrir að kjallari verði undir aðalgólfi hússins. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 2103593
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 92.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 92, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í tillögunni er gert ráð fyrir að íbúðum fjölgi úr 18 í 19 og breytingu á byggingarreit. Tillagan skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 903.856 á íbúð m.v. BVT 780,7 stig í ágúst 2021 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 2102539
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 9.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Blikanes 9. Í tillögunni er gert ráð fyrir viðbótar bílastæði í norðveturhorni lóðarinnar. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 2108104
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar vegna lóðarinnar við Kirkjulund 17.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar - efra svæði samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Kirkjulund 17. Í tillögunni felst að leyfa viðbyggingu fyrir kalda geymslu.
Málsnúmer 2105485
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir sólskála á lóðinni við Lambhaga 20.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi fyrir útgáfu á byggingarleyfi vegna byggingar sólskýlis við núverandi einbýlishús að Lambhaga 9. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 2104410
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á þaki og skyggni yfir inngangi vegna lóðarinnar að Lambhaga 9.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi fyrir útgáfu á byggingarleyfi fyrir breytingum á núverandi einbýlishúsi við Lambhaga 9. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 2106416
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi auglýsingu Reykjavíkurborgar um endurskoðun stefnu um íbúðarbyggð og blandaða byggð samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur.
Lögð fram.
Málsnúmer 2107237
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi auglýsingu Hafnarfjarðarbæjar á tillögu um breytingu á aðalskipulagi - Breikkun Reykjanesbrautar.
Lögð fram.
Málsnúmer 2108157
13
Bréf Hjólreiðafélagsins Tinds varðandi beiðni um leyfi fyrir Íslandsmóti í fjallamaraþoni í Heiðmörk, dags.08.08.21.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra. Bæjarráð leggur áherslu á að fyrir liggi öll tilskilin leyfi og að málið verði kynnt öllum hlutaðeigandi hagsmunaaðilum.
Málsnúmer 2108165
14
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi starfsreglur svæðisskipulagsnefndar og samkomulag sveitarfélaganna um svæðisskipulag, dags. 09.08.21.
Bæjarráð vísar nýjum starfsreglum til afgreiðslu bæjarstjórnar ásamt því að tilnefna tvo varafulltrúa í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2108168
15
Bréf Land lögmanna varðandi byggingarrétt á lóð í landi Selskarðs, dags. 21.07.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Málsnúmer 2107028
16
Tillaga umhverfisnefndar Garðabæjar varðandi viðurkenningu á snyrtilegu umhverfi 2021.
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um að veita viðurkenningu fyrir góðan og eftirtektarverðan árangur sem tengist flokkun og betri úrgangsstjórnun.
Málsnúmer 2107162
17
Svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um kaup á færanlegum húseiningum fyrir leikskóla.
Lagt fram.
Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.
“Framkomin svör eru í hróplegu ósamræmi við bókun meirihlutans frá 6. júlí sl. Þar er fullyrt að leiga á “fasteign eins og þeirri sem hér um ræðir" sé undanskilin gildissvið laga um opinber innkaup. Nú er ljóst að það er rangt, því hér er ekki um að ræða “fasteign" í skilningi laga heldur lausafé, þ.e vöru. Lög um opinber innkaup eiga því við og skýr útboðsskylda hvílir á Garðabæ. Í 3. mgr. 4. gr. laga um opinber innkaup er skýrt kveðið á um þá samninga sem lögin taka til, m.a. vörusamninga sem hafa að markmiði kaup eða leigu, með eða án kauprétti. Útilokað er að 39. gr. um samningskaup án útboðsauglýsinga eigi hér við.
Garðabæjarlistinn harmar að ekki hafi verið brugðist fyrr við þeirri gríðarlegu vöntun á leikskólaplássi í Garðabæ sem blasað hefur við í langan tíma. Þá teljum við einnig óásættanlegt að farið sé á skjön við lög um opinber innkaup. Markmið með þeim lögum er m.a. að tryggja jafnræði fyrirtækja og stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni.
Garðabæjarlistinn kallaði eftir uppbyggingaráætlun síðasta haust og að brugðist yrði strax við skorti á leikskólaplássi. Ef það hefði verið gert þá væri Garðbær ekki að vandræðast með leigu/kaupum á 27 færanlegum húsaeiningum þar sem lög og reglur eru sniðgengin. Við þurfum að standa faglega að verki, sjá íbúaþróun fyrir og vera tilbúin með þjónustuna sem búið er að lofa verði fyrir hendi."
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2107394
18