Beint í efni

Fyrirspurn Garðabæjarlistans um kaup á færanalegum húseiningum.

Málsnúmer 2107162

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (888). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

30 (1988). fundur

Lagt fram.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.

“Framkomin svör eru í hróplegu ósamræmi við bókun meirihlutans frá 6. júlí sl. Þar er fullyrt að leiga á “fasteign eins og þeirri sem hér um ræðir" sé undanskilin gildissvið laga um opinber innkaup. Nú er ljóst að það er rangt, því hér er ekki um að ræða “fasteign" í skilningi laga heldur lausafé, þ.e vöru. Lög um opinber innkaup eiga því við og skýr útboðsskylda hvílir á Garðabæ. Í 3. mgr. 4. gr. laga um opinber innkaup er skýrt kveðið á um þá samninga sem lögin taka til, m.a. vörusamninga sem hafa að markmiði kaup eða leigu, með eða án kauprétti. Útilokað er að 39. gr. um samningskaup án útboðsauglýsinga eigi hér við.

Garðabæjarlistinn harmar að ekki hafi verið brugðist fyrr við þeirri gríðarlegu vöntun á leikskólaplássi í Garðabæ sem blasað hefur við í langan tíma. Þá teljum við einnig óásættanlegt að farið sé á skjön við lög um opinber innkaup. Markmið með þeim lögum er m.a. að tryggja jafnræði fyrirtækja og stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni.

Garðabæjarlistinn kallaði eftir uppbyggingaráætlun síðasta haust og að brugðist yrði strax við skorti á leikskólaplássi. Ef það hefði verið gert þá væri Garðbær ekki að vandræðast með leigu/kaupum á 27 færanlegum húsaeiningum þar sem lög og reglur eru sniðgengin. Við þurfum að standa faglega að verki, sjá íbúaþróun fyrir og vera tilbúin með þjónustuna sem búið er að lofa verði fyrir hendi."

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

26. (1984). fundur

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

Fylgiskjöl