10. (888). fundur
10. (888). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
19.08.2021
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Gunnar Valur Gíslason
- Jóna Sæmundsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Guðfinnur Sigurvinsson
- Stella Stefánsdóttir
- Harpa Þorsteinsdóttir
- Valborg Ösp Á. Warén
- Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vefsíðu bæjarins.
Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 3. júní 2021 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 8/6 ´21.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 15/6 ´21.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl. bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi skýrslu um stöðu barna með fjölþættan vanda og 14. tl., bréf SÖA varðandi skipulagsmál á Álftanesi. Harpa fór fram á að fá sent svarbréf bæjarstjóra.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 13. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi útgáfu á heildarstefnu í úrgangsmálum og 11. tl., húsnæðismál Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 9. tl., niðurstöður rafrænna kosninga í verkefninu Betri Garðabær.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi skýrslu um stöðu barna með fjölþættan vanda.
Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.
03
Fundargerð bæjarráðs frá 22/6 ´21.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 13. tl., bréf Félags eldri borgara í Garðabæ varðandi húsnæðismál, heilsueflingu og samstarf og samvinnu,
Fundargerðin sem er 17 tl., er samþykkt samhljóða.
04
Fundargerð bæjarráðs frá 29/6 ´21.
Fundargerðin sem er 9 tl., er samþykkt samhljóða.
05
Fundargerð bæjarráðs frá 6/7 ´21.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., úthlutun hesthúsalóða við Kjóavelli.
Almar Guðmundsson ræddi 12. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri og fór fram á að bókun hans í bæjarráði verði færð til bókar í fundargerð bæjarstjórnar.
"Undirritaður sat í undirbúnings- og dómnefnd fyrir byggingu fjölnota íþróttahúss ásamt Björgu Fenger, sem var formaður, Baldri Svavarssyni, fulltrúa minnihluta bæjarstjórnar og Sigurði Bjarnasyni og Guðrúnu Dóru Brynjólfsdóttur sem tilnefnd voru af íþróttafélögum í Garðabæ.
Niðurstaðan var að hanna fjölnota íþróttahús með áherslu á æfingaaðstöðu fyrir knattspyrnuiðkendur, sérstaklega þá yngri. Húsið hefur aldrei verið hugsað sem vettvangur fyrir keppni í efstu deildum, nema í undantekningartilvikum, enda fer keppni í meistaraflokkum í knattspyrnu nánast eingöngu fram utandyra. Húsið verður svo sannarlega fjölnota enda verða alls um 4.800 m2 á þremur hæðum til notkunar í ýmislegt tengt líkams- og heilsurækt auk fræðslu og kennslu. Í húsinu verður m.a. að finna styrktar- og lyftingasal, svalir með hlaupaundirlagi og klifurvegg ásamt því að unnt verður að nota húsið fyrir tónleikahald.
Framganga oddvita Garðabæjarlistans í fjölmiðlum í tengslum við málið er ámælisverð enda er málflutningur hennar í öllum meginatriðum byggður á rangfærslum. Rétt er að fram komi að fulltrúar Garðabæjarlistans hafa aldrei greitt atkvæði gegn málinu né setið hjá þegar það hefur komið til afgreiðslu."
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 12. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetramýri.
Björg Fenger, ræddi 12. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju 12. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Almar Guðmundsson, ræddi 12. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 12. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, ræddi 12. tl., framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.
06
Fundargerð bæjarráðs frá 13/7 ´21.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., greinargerð um heildstæða nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 7. tl., greinargerð um heildstæða nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.
07
Fundargerð bæjarráðs frá 20/7 ´21.
Fundargerðin sem er 9 tl., er samþykkt samhljóða.
08
Fundargerð bæjarráðs frá 27/7 ´21.
Fundargerðin sem er 7 tl., er samþykkt samhljóða.
09
Fundargerð bæjarráðs frá 10/8 ´21.
Fundargerðin sem er 7 tl., er samþykkt samhljóða.
10
Fundargerð bæjarráðs frá 17/8 ´21.
Valborg Ósk Á Warén, ræddi 1. tl., Covid19 - undirbúning skólastarfs.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., Covid19 - undirbúning skólastarfs.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., Covid19 - undirbúning skólastarfs og 17. tl., svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um kaup á færanlegum húseiningum fyrir leikskóla. Harpa fór fram á að bókun Söru Daggar Svanhildardóttur í fundargerð bæjarráðs verði færð til bókar í fundargerð bæjarstjórnar.
"Framkomin svör eru í hróplegu ósamræmi við bókun meirihlutans frá 6. júlí sl. Þar er fullyrt að leiga á “fasteign eins og þeirri sem hér um ræðir" sé undanskilin gildissvið laga um opinber innkaup. Nú er ljóst að það er rangt, því hér er ekki um að ræða “fasteign" í skilningi laga heldur lausafé, þ.e vöru. Lög um opinber innkaup eiga því við og skýr útboðsskylda hvílir á Garðabæ. Í 3. mgr. 4. gr. laga um opinber innkaup er skýrt kveðið á um þá samninga sem lögin taka til, m.a. vörusamninga sem hafa að markmiði kaup eða leigu, með eða án kauprétti. Útilokað er að 39. gr. um samningskaup án útboðsauglýsinga eigi hér við.
Garðabæjarlistinn harmar að ekki hafi verið brugðist fyrr við þeirri gríðarlegu vöntun á leikskólaplássi í Garðabæ sem blasað hefur við í langan tíma. Þá teljum við einnig óásættanlegt að farið sé á skjön við lög um opinber innkaup. Markmið með þeim lögum er m.a. að tryggja jafnræði fyrirtækja og stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni.
Garðabæjarlistinn kallaði eftir uppbyggingaráætlun síðasta haust og að brugðist yrði strax við skorti á leikskólaplássi. Ef það hefði verið gert þá væri Garðbær ekki að vandræðast með leigu/kaupum á 27 færanlegum húsaeiningum þar sem lög og reglur eru sniðgengin. Við þurfum að standa faglega að verki, sjá íbúaþróun fyrir og vera tilbúin með þjónustuna sem búið er að lofa verði fyrir hendi."
Almar Guðmundson, ræddi 1. tl., Covid19 - undirbúning skólastarfs.
Valborg Ósk Á Warén, ræddi að nýju 1. tl., 1. tl., Covid19 - undirbúning skólastarfs.
Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála:
10.10 - 2104410 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á þaki og skyggni yfir inngangi vegna lóðarinnar að Lambhaga 9.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi fyrir útgáfu á byggingarleyfi fyrir breytingum á núverandi einbýlishúsi við Lambhaga 9. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2104410)
Fylgiskjöl
10.2 - 2107049 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir 6 deilda leikskóla við Spítalaveg 2B.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi fyrir útgáfu á byggingarleyfi fyrir 6 deilda leikskóla úr færanlegum húseiningum að Spítalavegi 2B. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2107049).
Fylgiskjöl
10.3 - 2106218 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis á Álftanesi vegna lóðarinnar við Vesturtún 38.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Vesturtún 38 og 40. Í tillögunni felst að leyfa hækkun á þaki, svalir fari út fyrir byggingarreit og að nýtingarhlutfall verði 0,43. (Mál nr. 2106218)
Fylgiskjöl
10.4 - 2106219 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis á Álftanesi vegna lóðarinnar við Vesturtún 40.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Vesturtún 38 og 40. Í tillögunni felst að leyfa hækkun á þaki, svalir fari út fyrir byggingarreit og að nýtingarhlutfall verði 0,43. (Mál nr. 2106219)
Fylgiskjöl
10.5 - 2103505 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytinga á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar Kornakur 7.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Kornakur 7. Í tillögunni er gert ráð fyrir að kjallari verði undir aðalgólfi hússins. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2103505)
Fylgiskjöl
10.7 - 2102539 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 9.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Blikanes 9. Í tillögunni er gert ráð fyrir viðbótar bílastæði í norðvesturhorni lóðarinnar. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2102539)
Fylgiskjöl
10.8 - 2108104 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar vegna lóðarinnar við Kirkjulund 17.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar - efra svæði samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Kirkjulund 17. Í tillögunni felst að leyfa viðbyggingu fyrir kalda geymslu. (Mál nr. 2108104)
Fylgiskjöl
10.9 - 2105485 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir sólskála á lóðinni við Lambhaga 20.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi fyrir útgáfu á byggingarleyfi vegna byggingar sólskýlis við núverandi einbýlishús að Lambhaga 9. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2105485)
Fylgiskjöl
11
Fundargerð fjölskylduráðs frá 16/6 ´21.
Almar Guðmundsson ræddi 3. tl., reglur um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) og 8. tl., endurskoðun á lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Fundargerðin lögð fram.
13
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 15/6 ´21.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreiti, 3. tl., SEM fuglinn fljúgandi og önnur mál - styrkur til kynningar á amerískum fótbolta. Björg óskaði Huldu Clöru Gestdóttur og Aroni Snæ Júlíussyni, nýkrýndum Íslandsmeisturum í kvenna- og karlaflokki í golfi, til hamingju með frábæran árangur en þetta er í fyrsta sinn sem báðir Íslandsmeistararnir eru úr GKG.
Fundargerðin lögð fram.
14
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 7/6 ´21.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., starfsáætlun menningar- og safnanefndar, 2. tl. tónlistarhátíð í Garðabæ - Secret Solstice, 3. tl., verkefnið aftur til Hofsstaða, 4. tl., stórtónleika í fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri og 5. tl., Jónsmessuhátíð 2021.
Ásdís Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og hrósaði starfsemi skapandi sumarhóps sem stóð að frábærri listrænni uppskeruhátíð hér á torginu í sumar.
Stella Stefánsdóttir, ræddi 1. tl., starfsáætlun menningar- og safnanefndar.
Fundargerðin lögð fram.
17
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 8/6 ´21.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., samantekt á störfum skólanefndar skólaárið 2020-2021, 3. tl., menntadag í Garðabæ, 4. tl., velferðarþing Garðabæjar og 5. tl., endurskoðun skólastefnu Garðabæjar.
Fundargerðin lögð fram.
18
Fundargerð umhverfisnefndar frá 2/6 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., mótun loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið og 11. tl., aðgerðir vegna fjölgunar á mávum í bæjarlandinu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 11. tl., aðgerðir vegna fjölgunar á mávum í bæjarlandinu.
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, ræddi 11. tl., aðgerðir vegna fjölgunar á mávum í bæjarlandinu.
Fundargerðin lögð fram.
19
Fundargerð umhverfisnefndar frá 7/7 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., snyrtilegt umhverfi 2021. Jóna greindi frá að búið er að fresta viðburði vegna afhendingar á viðurkenningum sem fyrirhugaður var þriðjudaginn 24. ágúst nk.
Fundargerðin lögð fram.
20
Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/8 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu frá heilbrigðiseftirliti varðandi mælingar og eftirlit með aðstæðum við ylströnd á Sjálandi.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., kynningu frá heilbrigðiseftirliti varðandi mælingar og eftirlit með aðstæðum við ylströnd á Sjálandi.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu frá heilbrigðiseftirliti varðandi mælingar og eftirlit með aðstæðum við ylströnd á Sjálandi.
Fundargerðin lögð fram.
22
Fundargerðir Svæðisskipulagsnefndar frá 14/5 og 11/6 ´21.
Fundargerðirnar lagðar fram.
23
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 15/4, 21/5, 28/5 og 24/6 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir ræddi 2. tl., fg. frá 21/5, minnisblað um útflutning á brennanlegum úrgangi, 1. tl. fg. frá 24/6, endurvinnslustöð á Lambhagavegi.
Fundargerðirnar lagðar fram.
24
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 11/6 og 2/7 ´21.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl. fg. frá 11/6, breytingar á leiðarkerfi Strætó, 2. tl., fg. frá 2/7, fjárhagslega stöðu Strætó og 4. tl., fg. frá 2/7, heimild til að krefjast fargjaldaálags.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi framlagningu fundargerða í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Fundargerðirnar lagðar fram.
27
Fundargerðir stjórnar SSH frá 7/6, 23/6 og 5/7 ´21.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., fg. frá 7/6, framkvæmdir á skíðasvæðum og 2. tl., fg. frá 7/6, uppbyggingu á aðstöðu á svæði fyrir gönguskíðaiðkendur.
Fundargerðirnar lagðar fram.
28
Fundargerð Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 23/6 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
29
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 18/6 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
30
Leigusamningur um færanlegar húseiningar fyrir leikskóla.
Almar Guðmundsson gerði grein fyrir leigusamningi við Terra Einingar ehf. til sjö ára um færanlegar húseiningar fyrir leikskóla.
Almar lagði fram eftirfarandi bókun.
"Leigusamningur húsnæðis fyrir leikskólann Mánahvol miðar við að hann taki gildi við afhendingu hins leigða, frágenginn skv. byggingarleyfi og að leigugreiðslur hefjist því ekki fyrr en húsnæðið er tilbúið til notkunar. Á leigutímabilinu er almennt gert ráð fyrir hefðbundnu leigusamningssambandi milli aðila. Samhliða útgáfu byggingarleyfis verður unnið að skráningu fasteignarinnar í fasteignaskrá. Meginregla laga um opinber innkaup er sú að leiga á fasteignum er ekki útboðsskyld. Nýting kaupréttarákvæða (kaup fasteigna) fellur einnig utan laganna. Meginefnisinntak samningsins gagnvart Garðabæ lýtur þannig að hefðbundinni leigu á tilbúnu húsnæði sem er undanþegin lögum um opinber innkaup. Engu breytir í þessu sambandi þó svo að í skattalegu tilliti sé litið á leigugreiðslur sem vsk-skyldar.
Rétt er þó að Garðabær láti athuga nánar hvernig háttað sé vsk-skyldu leigugreiðslna vegna mannvirkis af þeim toga sem hér um ræðir."
Almar lagði til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Fulltrúar Garðabæjarlistans greiða atkvæði gegn samningi þessum með vísun í bókun undir umfjöllun fundargerðar bæjarráðs þann 17. ágúst sl."
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Valborg Ósk Á Warén, tók til máls.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls að nýju.
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, tók til máls.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls.
Almar Guðmundson, tók til máls að nýju.
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, tók til máls að nýju.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls að nýju.
Samningur við Terra Einingar ehf. til sjö ára um færanlegar húseiningar fyrir leikskóla, er samþykktur með sjö atkvæðum (ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,GS,SS) gegn þremur (HÞ,VÖÁW,GHÁ)
Björg Fenger vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.
31
Starfsreglur fyrir svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins og tilnefning á tveimur varafulltrúum.
Lagðar fram til afgreiðslu starfsreglur fyrir svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins sem samþykktar voru á fundi nefndarinnar sem haldinn var 11. júní 2021.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, fyrir sitt leyti, starfsreglur fyrir svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð samþykkir að skipa Áslaugu Huldu Jónsdóttur og Söru Dögg Svanhildardóttur sem varafulltrúa í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.
32
Drög að viðauka við stofnsamning Sorpu bs.
Lagður fram til afgreiðslu viðauki við stofnsamning Sorpu bs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann fyrir sitt leyti.
33
Drög að viðauka við stofnsamning Strætó bs.
Lagður fram til afgreiðslu viðauki við stofnsamning Strætó bs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann fyrir sitt leyti.
34
Tillaga um að heimila fjarfundi í bæjarstjórn, bæjarráði og nefndum.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi tillögu um heimild til fjarfundar.
"Bæjarstjórn samþykkir að heimilað verða að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 3. mgr. 17.gr. sveitarstjórnlaga þar sem áskilnaður er um miklar fjarlægðir eða erfiðar samgöngur innan sveitarfélagsins, sbr. 1. tl. í auglýsingu ráðherra. Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar með rafrænum undirskriftum, sbr. 5. tl. í auglýsingu ráðherra. Samþykkt þessi gildir til 1. október 2021, sbr. auglýsing nr. 894/2021, um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. 3. mgr. 131 gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sbr. lög nr. 22/2021"
35
Tillaga um að að gera heildstætt mat á vistvænum samgöngum í Garðabæ.
Jóna Sæmundsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagðir fram eftirfarandi tillögu er hún flytur ásamt Björgu Fenger.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela tækni- og umhverfissviði bæjarins að taka saman greinargerð þar sem fjallað verður með heildstæðum hætti um vistvænar samgöngur í bæjarfélaginu. Í því felst m.a. að tekin verði saman núverandi staða og þær aðgerðir sem samþykktar hafa verið er varða almenningssamgöngur, hleðslustöðvar, rafhjólaleigur og göngu- og hjólastíga. Mun greinargerðin m.a. verða grundvöllur aðgerðaáætlunar sem gerð verður í framhaldinu."
Greinargerð:.
Mikilvægt að kortleggja stöðuna og þær aðgerðir/framkvæmdir sem nú þegar hafa verið samþykktar með heildstæðum hætti til að hægt verði að móta framtíðarsýnina og þær aðgerðir sem vinna að henni.
Mikilvægt er að ríki og sveitarfélög taki höndum saman til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda til að standa skil gagnvart Parísarsamkomulaginu en þar skipta vistvænar samgöngur veigamiklu hlutverki. Því þarf áfram öfluga og örugga innviðauppbyggingu fyrir hjólandi og gangandi. Markvisst þarf að vinna að orkuskiptum í almenningssamgöngum og einkabílum.
Eitt af markmiðum umhverfisstefnu Garðabæjar er að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum frá umferð.
Efla Garðabæ sem sjálfbært samfélag og auðvelda og þar með hvetja fólk til að nota umhverfisvæna ferðamáta auk þess að stuðla að heilsueflingu íbúa.
Vistvænar samgöngur falla vel að markmiðum heilsueflandi samfélagi og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna t.d. nr 3 (heilsa og vellíðan), nr. 11 (sjálfbærar borgir og samfélög) og nr. 13 (aðgerðir í loftlagsmálum).
Tryggja þarf aðkomu barna og ungmenna að næstu skrefum sem notendur vistvænna samgöngumáta.
Framkomin tillaga samþykkt samhljóða.