Beint í efni

Leigusamningur um færanlegar húseiningar fyrir leikskóla.

Málsnúmer 2105431

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (888). fundur

Almar Guðmundsson gerði grein fyrir leigusamningi við Terra Einingar ehf. til sjö ára um færanlegar húseiningar fyrir leikskóla.

Almar lagði fram eftirfarandi bókun.

"Leigusamningur húsnæðis fyrir leikskólann Mánahvol miðar við að hann taki gildi við afhendingu hins leigða, frágenginn skv. byggingarleyfi og að leigugreiðslur hefjist því ekki fyrr en húsnæðið er tilbúið til notkunar. Á leigutímabilinu er almennt gert ráð fyrir hefðbundnu leigusamningssambandi milli aðila. Samhliða útgáfu byggingarleyfis verður unnið að skráningu fasteignarinnar í fasteignaskrá. Meginregla laga um opinber innkaup er sú að leiga á fasteignum er ekki útboðsskyld. Nýting kaupréttarákvæða (kaup fasteigna) fellur einnig utan laganna. Meginefnisinntak samningsins gagnvart Garðabæ lýtur þannig að hefðbundinni leigu á tilbúnu húsnæði sem er undanþegin lögum um opinber innkaup. Engu breytir í þessu sambandi þó svo að í skattalegu tilliti sé litið á leigugreiðslur sem vsk-skyldar.
Rétt er þó að Garðabær láti athuga nánar hvernig háttað sé vsk-skyldu leigugreiðslna vegna mannvirkis af þeim toga sem hér um ræðir."

Almar lagði til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Fulltrúar Garðabæjarlistans greiða atkvæði gegn samningi þessum með vísun í bókun undir umfjöllun fundargerðar bæjarráðs þann 17. ágúst sl."

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Valborg Ósk Á Warén, tók til máls.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, tók til máls.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls.

Almar Guðmundson, tók til máls að nýju.

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls að nýju.

Samningur við Terra Einingar ehf. til sjö ára um færanlegar húseiningar fyrir leikskóla, er samþykktur með sjö atkvæðum (ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,GS,SS) gegn þremur (HÞ,VÖÁW,GHÁ)

Björg Fenger vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

02

25. (1983). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir samningi við Terru um leigu á einingum fyrir leikskóla sem staðsettur verður við hlið leikskólans Sunnuhvols á Vífilsstöðum og hefur verið nefndur Mánahvoll.

Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi bókun.

„Við í Garðabæjarlistanum teljum eðlilegt að þegar gengið er til samninga um kaup eða leigu á færanlegu húsnæði sé farið í útboð, enda er fjárhæð þessa samnings langt yfir viðmiðunarfjárhæðum sem kveðið er á um í lögum um opinber innkaup. Í ljósi þess getum við ekki samþykkt að Garðabær gangi til samninga um leigu og forkaupsrétt á gámaleikskóla í eigu Terra. Auk þess teljum við óásættanlegt að gengið sé til samninga án útboðs við fyrirtæki sem er að hluta í eigu forseta bæjarstjórnar. Stefna Garðabæjarlistans er að öll meiriháttar innkaup fari í útboð og tryggja þannig gagnsæi og góða nýtingu á skattfé Garðbæinga.“

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði lögðu fram eftirfarandi bókun,

„Garðabær leggur ríka áherslu á þjónustu við foreldra með börn á leikskólaaldri. Fjölgun barna í Garðabæ er mikil um þessar mundir og brýnt að börnum sé útveguð leikskólavist við 12 mánaða aldur eins og Garðabær leggur upp með.
Leiga fasteignar eins og þeirrar sem hér um ræðir er undanskilin gildisviði laga um opinber innkaup nr. 120/2016. Öll tilvísun í viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt þeim lögum á ekki við hér.
Varðandi hæfi bæjarfulltrúa vísast til ákvæða sveitarstjórnalaga og samþykktar um stjórn Garðabæjar sem fylgt hefur verið hvívetna í þessu máli eins og öðrum málum sem koma til umfjöllunar og afgreiðslu bæjaryfirvalda“.

Bæjarráð samþykkir samninginn með fjórum atkvæðum (ÁHJ,SHJ,AG,GVG) gegn einu (IA).

Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu á fundi bæjastjórnar 19. ágúst nk.