Tillaga um að heimila fjarfundi í bæjarstjórn, bæjarráði og nefndum.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. (888). fundur
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi tillögu um heimild til fjarfundar.
"Bæjarstjórn samþykkir að heimilað verða að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 3. mgr. 17.gr. sveitarstjórnlaga þar sem áskilnaður er um miklar fjarlægðir eða erfiðar samgöngur innan sveitarfélagsins, sbr. 1. tl. í auglýsingu ráðherra. Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar með rafrænum undirskriftum, sbr. 5. tl. í auglýsingu ráðherra. Samþykkt þessi gildir til 1. október 2021, sbr. auglýsing nr. 894/2021, um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. 3. mgr. 131 gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sbr. lög nr. 22/2021"
Bæjarráð Garðabæjar
02
29 (1987). fundur
Í auglýsingunni kemur fram að heimild til sveitarstjórnamanna til að taka þátt með rafrænum hætti á fundum sveitarstjórnar, nefnda og ráða á vegum sveitarfélaga sem gilti til 31. júlí sl. er framlengd til 1. október.
Í tilkynningu ráðuneytisins er jafnframt er vakin athygli á nýmæli í sveitarstjórnarlögum frá því í júní sl. um heimild til að setja í samþykktir um stjórn sveitarfélaga ákvæði um þátttöku í fundum sveitarstjórnar með rafrænum hætti.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram tillögu um breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar þar sem kveðið verði á um heimild til rafrænna funda í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins.