29 (1987). fundur
29 (1987). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
10.08.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2106324
01
Uppbygging á miðstöð heilsueflandi fyrirtækja, þjónustu og tengda starfsemi á norðanverðum Arnarneshálsi.
Á fund bæjarráðs mættu Jóhann Ingi Kristjánsson, Kristján Jóhannsson og Þorgerður Arna Einarsdóttir (Landey) og kynntu hugmyndir um uppbygging á miðstöð fyrirtækja, þjónustu og tengda starfsemi á norðanverðum Arnarneshálsi en landsvæðið er í eigu Landeyjar ehf., dótturfélags Arion banka.
Í hugmyndunum felst að á svæðinu verði
-Fyrirtæki, sem sérhæfa sig í heilsueflandi starfsemi
-Nýsköpun og þróun
-Verslun og þjónusta
-Hátækni þjónustuíbúðir fyrir 50
-Höfuðstöðvar Ósa lífæð heilbrigðis hf. sem yrðu leiðandi í uppbyggingu svæðisins
Bæjarráð tekur jákvætt í hugmyndirnar og samþykkir að fela bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.
Björg Fenger, Jóna Sæmundsdóttir, Ingvar Arnarsson og Harpa Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúar og Guðjón E. Friðriksson bæjarritari voru á fjarfundi undir dagskrárlið 1.
Málsnúmer 2105492
02
Bæjargil 35 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Helgu Rún Helgadóttur, kt. 130279-4819, leyfi til að byggja við núverandi einbýlishús að Bæjargili 35.
Málsnúmer 2102525
03
Litlatún 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Skeljungi hf., kt. 590269-1749, leyfi til að breyta rými sem áður var skilgreint sem verslun og lager í veitingastað í atvinnuhúsnæði að Litlatúni 1.
Málsnúmer 2106273
04
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi stjórnsýslu byggðasamlaga dags. 10.06.21.
Í bréfinu er kynnt afgreiðsla stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um drög að viðaukum við stofnsamninga Sorpu bs. og Strætó bs. Jafnframt er farið fram á tilnefningu á fulltrúum í stefnuráð byggðasamlaganna.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Gunnar Einarsson, Björgu Fenger og Söru Dögg Svanhildardóttur í stefnuráð byggðasamlaganna.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2108002
05
Tilkynning samgöngu- og sveitartjórnarráðuneytis varðandi auglýsingu um ákvörðun ráðherra til að tryggja starfshæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvörðunartöku við stjórn sveitarfélaga dags 27.07.21.
Í auglýsingunni kemur fram að heimild til sveitarstjórnamanna til að taka þátt með rafrænum hætti á fundum sveitarstjórnar, nefnda og ráða á vegum sveitarfélaga sem gilti til 31. júlí sl. er framlengd til 1. október.
Í tilkynningu ráðuneytisins er jafnframt er vakin athygli á nýmæli í sveitarstjórnarlögum frá því í júní sl. um heimild til að setja í samþykktir um stjórn sveitarfélaga ákvæði um þátttöku í fundum sveitarstjórnar með rafrænum hætti.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram tillögu um breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar þar sem kveðið verði á um heimild til rafrænna funda í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins.
Málsnúmer 2106553
06
Niðurstöður varðandi viðhorfskönnun Sambands íslenskra sveitarfélaga um stafræn samstarfsverkefni sveitarfélaga.
Sunna G. Sigurðardóttir verkefnastjóri kynnti niðurstöður í vali Garðabæjar um rafræn samstarfsverkefni sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir niðurstöðurnar.
Sunna G. Sigurðardóttir verkefnastjóri var á fjarfundi undir dagskrárlið 6.
Málsnúmer 2108113
07
Bréf Íþróttasambands fatlaðra varðandi launað leyfi starfsmanns dags 28.07.21.
Í bréfinu er farið fram á að Kári Jónsson, íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi fái leyfi á launum dagana 16. ágúst-3. september 2021 vegna þátttöku sem landsliðsþjálfari Íþróttafélags fatlaðra í frjálsum íþróttum.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra. Bæjarráð bendir á mikilvægi afreksstarfs og hvetur ríkisstjórn Íslands og Afrekssjóð ÍSÍ að stuðla að frekari eflingu afreksstarfs meðal íslenskra íþróttamanna meðal annars með greiðslu vinnutaps þjálfara, starfsmanna og íþróttafólks vegna þátttöku á Ólympíuleikum og öðrum alþjóðlegum mótum.