Drög að viðauka við stofnsamning Sorpu bs.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. (888). fundur
Lagður fram til afgreiðslu viðauki við stofnsamning Sorpu bs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann fyrir sitt leyti.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
10. (888). fundur
Lagður fram til afgreiðslu viðauki við stofnsamning Strætó bs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann fyrir sitt leyti.
Bæjarráð Garðabæjar
03
29 (1987). fundur
Í bréfinu er kynnt afgreiðsla stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um drög að viðaukum við stofnsamninga Sorpu bs. og Strætó bs. Jafnframt er farið fram á tilnefningu á fulltrúum í stefnuráð byggðasamlaganna.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Gunnar Einarsson, Björgu Fenger og Söru Dögg Svanhildardóttur í stefnuráð byggðasamlaganna.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð Garðabæjar
04
22. (1980). fundur
Með bréfinu fylgdi m.a. drög að viðaukum við stofnsamninga Sorpu bs. og Strætó bs. þar sem m.a. er kveðið á um skipan, hlutverk og umboð stefnuráðs, stefnuþing byggðasamlaga og bráðabirgðahlutverk stefnuráðs. Jafnframt er óskað eftir tilnefningu sveitarfélaganna í stefnuráð en tilnefningar skulu hafa borist eigi síðar en 15. ágúst nk.