Beint í efni

26. (1984). fundur

13.07.2021
Bæjarráð Garðabæjar

26. (1984). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

13.07.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðjón E. Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2010286

01

Keldugata 12 (var nr. 14) - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Mannvirki ehf., kt. 431014-1060, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með sjö íbúðum.

Málsnúmer 2101220

02

Smáraflöt 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ármanni Einarssyni, kt. 050982-4759, leyfi til að byggja við og breyta innra skipulagi núverandi einbýlishúss við Smáraflöt 4.

Málsnúmer 2106451

03

Afgreiðsla skipulagsstjóra varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi í Kumlamýri.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsstjóra um að vísa til grenndarkynningar tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Kumlamýrar.

Málsnúmer 2106436

04

Afgreiðsla skipulagsstjóra varðandi fyrirspurn Te & kaffi um útisvæði.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsstjóra um að nýting á útvistarsvæði við suðurhlið hússins að Garðatorgi 4 fyrir starfsemi Te&kaffi sé í samræmi við markmið deiliskipulag miðbæjar. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að kaffihúsið hafi afnot af svæðinu en liggja þarf fyrir samþykki húsfélags íbúa og rekstrarleyfi sýslumanns.

Málsnúmer 2101200

05

Opnun tilboða í þjónustu iðnaðarmanna.

Eftirfarandi tilboð bárust í þjónustu iðnaðarmanna - raflagnir.

Eftirfarandi tilboð bárust:

Bjóðandi Svæði 1: Svæði 2: Svæði 3:

Lýsing og Lagnir kr. 18.633.850 kr. 18.633.850 kr. 18.633.850

Raflýsing kr. 17.587.000 kr. 17.587.000 kr. 17.587.000

Rafmagnsþjónustan kr. 17.544.000 kr. 18.262.100 kr. 18.262.100

Raftengi kr. 23.440.450 kr. 23.440.450 kr. 23.440.450

Fossraf kr. 26.543.510 kr. 26.543.510 kr. 26.543.510

Dry-Tækni ehf. kr. 16.480.000 kr. 17.520.000 kr. 18.685.000

BB rafverktaktar kr. 21.780.700 kr. 21.780.700 kr. 21.780.700

H og S rafverktaktar kr. 21.979.750 kr. 24.225.000 kr. 26.910.000

Ecoraf kr. 16.575.000 kr. 16.575.000 kr. 16.575.000

TGRaf kr. 20.657.997 kr. 20.657.997 kr. 20.657.997

AJ Raf kr. 20.344.000 kr. 20.344.000

Rafsel kr. 20.585.000 kr. 20.585.000 kr. 20.585.000

Rafboði kr. 17.594.800 kr. 17.594.800 kr. 17.594.800

Kostnaðaráætlun kr. 23.475.000 kr. 23.475.000 kr. 23.475.000

Unnið er að yfirferð tilboða og verða þau tekin fyrir að nýju að lokinni yfirferð.

Upplýst var um að Rafmagnsþjónustan ehf. hefur kært útboðið til kærunefndar útboðsmála.

Eftirfarandi tilboð bárust í þjónustu iðnaðarmanna - málningarvinna.

Eftir yfirferð

H og M ehf. kr. 46.235.000 kr. 47.445.000

Málningarþjónusta Hannesar og Valgeirs ehf. kr. 45.970.000 kr. 47.500.000

Iðnmálun kr. 47.600.000 kr. 48.500.000

Kostnaðaráætlun kr. 54.130.000

Unnið er að skoðun og útvegun gagna og verða tilboð lögð fram að nýju að þeirri vinnu lokinni.

Málsnúmer 2106523

06

Opnun tilboða í framkvæmdir 1. áfanga Vetrarbrautar.

Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við 1. áfanga Vetrarbrautar.

Gleipnir verktakar ehf. kr. 252.000.000

Jarðaval ehf. kr. 239.425.300

Grafa og Grjót ehf. kr. 229.991.500

Ístak hf. kr. 211.893.644

Háfell ehf. kr. 192.642.800

Loftorka Reykjavík ehf. kr. 180.400.000

Óskatak ehf. kr. 170.245.500

Kostnaðaráætlun kr. 203.265.900

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Óskataks ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2102035

07

Greinargerð um heildstæða nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir greinargerð og önnur gögn varðandi nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.

Bæjarráð vísar hugmyndum um nýtingu og endurbætur á húsnæði Garðatorgs 1 til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 og áframhaldandi viðræðna við mennta- og menningarmálaráðuneytið varðandi fullnustu samnings um framlag til stofnkostnaðar fyrir Hönnunarsafnið.

Bæjarráð samþykkir að samningur við leigusala sem rann út í lok júní verði framlengdur til ársloka.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2107038

08

Ársskýrsla umboðsmanns barna 2020.

Lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 2107037

09

Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu um kynningu á drögum að stefnu um heilbrigðisþjónustu aldraða, dags. 02.07.21.

Lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 2107141

10

Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi kynningu á grænbók um samgöngumál, dags. 07.07.21.

Lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 2107147

11

Tilkynning frá Jöfnunarsjóði varðandi nýjar vinnureglur um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs, dags. 08.07.21.

Lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 2107143

12

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samning um fjármagnskipan Betri samgangna ohf., dag. 07.07.21.

Í bréfinu er kynntur samningur sem gerður hefur verið um fjárhagsskipan Betri samgangna ohf.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2107145

13

Bréf Betri samgangna ohf. varðandi framlög samkvæmt Samgöngusáttmálanum, dags. 07.07.21.

Í bréfinu er upplýst um framlög Garðabæjar vegna framkvæmda Samgöngusáttmálans 2019 - 2021 samtals að fjárhæð kr. 152.172.414 sem kemur til greiðslu á tímabilinu júlí 2021 - til apríl 2022.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2107162

14

Fyrirspurn Garðabæjarlistans um kaup á færanlegum húseiningum fyrir ungbarnaleikskóla.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

Fylgiskjöl