Beint í efni

Smáraflöt 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2101220

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

26. (1984). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ármanni Einarssyni, kt. 050982-4759, leyfi til að byggja við og breyta innra skipulagi núverandi einbýlishúss við Smáraflöt 4.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

7. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

6. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010..
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um að heimilað verði að bygging við lóðarmörk lóðarinnar við Smáraflöt 4 verði 11,8 m á lengd en í skilmálum er heimiluð lengd 7,5 m. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 1,2,4,5 og 6 og Stekkjarflatar 5,7 og 9. (Mál nr. 2101220)

Bæjarráð Garðabæjar

05

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um að heimilað verði að bygging við lóðarmörk lóðarinnar við Smáraflöt 4 verði 11,8 m á lengd en í skilmálum er heimiluð lengd 7,5 m. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 1,2,4,5 og 6 og Stekkjarflatar 5,7 og 9.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

4. fundur

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir byggingu að lóðarmörkum sem er 11,8 m að lengd. Deiliskipulag heimilar 7,5 m.
Auk þess er gert ráð fyrir opnu bílskýli framan við bílageymslu.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Smáraflatar 1,2,4,5 og 6 og Stekkjarflatar 5,7 og 9.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

2. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem byggir á tillögu að breytingu á einbýlishúsinu að Smáraflöt 4. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.