Beint í efni

6. fundur

20.05.2021
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

6. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

20.05.2021

Kl. 10:30 - 11:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2104512

01

Klukkuholt 21 - stækkun -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um viðbyggingu á norðausturhlið raðhússins sem nær út fyrir byggingarreit.

Svar: Tillaga þessa efnis kallar á breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits. Ef sótt er um breytingu þarf samþykki annarra eigenda rahúslengjunnar að liggja fyrir. Mælt er með því að arkitekt breytingartillögunnar tilkynni arkitekt hússins um breytingartillöguna eins og siðareglur arkitekta kveða á um.

Málsnúmer 2104095

02

Strönd, 225 Garðabæ - gestastofa, Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram ný tillaga í kjölfar svars við fyrirspurn um smáhýsi. Að þessu sinni er lögð til viðbygging við vesturgafl íbúðarhússins.

Svar: Skipulagsstjóri leggur til að sótt verði um byggingarleyfi fyrir viðbyggingunni og að því fylgi ásamt grunnmynd, útlitsmynd og sneiðing og afstöðumynd sem sýni fjarlægð viðbyggingar að lóðarmörkum og aðliggjandi húsi.Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu þarf að taka afstöðu til þess hvort byggingarleyfisumsókn verði vísað til grenndarkynningar.

Vísað til skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2104091

03

Eskiás 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsið Eskiás 1. Yfirferð teikninga leiðir í ljós að tillagan er í samræmi við deiliskipulag Ása-og Grunda m.s.br.

Sýna skal byggingarreit á grunnmyndum og hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi á sneiðingum og útlitsmyndum.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi sé veitt fyrir umsókninni hvað skipulagsþátt hennar varðar.

Málsnúmer 1604105

04

Hraunhólar 14 - fyrirspurn um deiliskipulag o.fl.

Lögð fram fyrirspurn fyrir hönd lóðarhafa um stærð lóðar í deiliskipulagi og fleira. Fyrirspurn vísað til mótunar tillögu um breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts eystra sem nær til lóða sunnan við Hraunhóla. Skoða skal hvort skynsamlegt sé að stækka lóðina í átt að hraunjaðri og hvort skipta megi henni upp í tvær einbýlishúsalóðir.

Málsnúmer 2103505

05

Kornakur 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn að einbýlishúsi sem gerir m.a. ráð fyrir kjallara undir neðra gólfi húss með geymslu og leikfimirými. Úr leikfimi rými er gengt út í niðurgrafið útisvæði með heitum potti sem er utan byggingarreits. 107 m2 óuppfyllt rými er einnig sýnt í kjallara undir neðra gólfi.

Tillögu vísað til afgreiðslu skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2101238

06

Lindarflöt 10 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir 9,6 m vegg á lóðarmörkum sem er 2,1 m lengri en deiliskipulag heimilar. Engar athugasemdir hafa borist. Breytingin skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2101220

07

Smáraflöt 4 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010..

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2105356

08

Móaflöt 11 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn frá lóðarhafa hvort Garðabær sem landeigandi samþykki 8 m2 smáhýsi innan 3 metra frá lóðarmörkum að opnu svæði milli raðhússlengjanna Móaflöt 5-15 og einbýlishúsa við Hagaflöt.

Skipulagsstjóri samþykkir fyrir hönd Garðabæjar að smáhýsið standi nær lóðarmörkum en 3 metrar svo fremi að útfærsla þess sé í samræmi við önnur ákvæði byggingarreglugerðar um smáhýsi.

Málsnúmer 2103333

09

Iðnbúð 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggiingarleyfi sem gerir m.a. ráð fyrir íbúð á neðri hæð hússins. Deiliskiplag heimilar ekki íbúðir á neðri hæð húsa við Iðnbúð og Smiðsbúð og er umsókn því ekki í samræmi við deiliskipulag. Ef sótt er um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að íbúð á neðri hæð verði heimiluð má búast við því að umsókninni verði hafnað.

Málsnúmer 2105304

10

Hraungata 21 - Sópallur og skjólveggir - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

Málsnúmer 2104051

11

Mosagata 16 - Tilkynning um framkvæmdir

Tillögu að útfærslu lóðar vísað til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.