Kornakur 7 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
42. (2000). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Erni Þorsteinssyni, kt. 060579-5209, leyfi til að byggja einbýlishús að Kornakri 7.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
10. (888). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Kornakur 7. Í tillögunni er gert ráð fyrir að kjallari verði undir aðalgólfi hússins. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2103505)
Bæjarráð Garðabæjar
04
30 (1988). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Kornakur 7. Í tillögunni er gert ráð fyrir að kjallari verði undir aðalgólfi hússins. Grenndarkynning hefur farið fram og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
9. fundur
Lögð fram að nýju umsókn um byggingarleyfi að einbýlishúsi sem m.a. gerir ráð fyrir því að kjallari verði undir aðalgólfi húss. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
9. (887). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um byggingarleyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Kornakri 7 sem gerir ráð fyrir að kjallari verði undir aðalhæð hússins. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum lóða við Kornakur 5, 6 og 8, Jafnakurs 6 og 8 og Skeiðakurs 7 og 8. (Mál nr. 2103505)
Bæjarráð Garðabæjar
07
20. (1978). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um byggingarleyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Kornakri 7 sem gerir ráð fyrir að kjallari verði undir aðalhæð hússins. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum lóða við Kornakur 5, 6 og 8, Jafnakurs 6 og 8 og Skeiðakurs 7 og 8.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
7. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að einbýlishúsi sem m.a. gerir ráð fyrir því að kjallari verði undir aðalgólfi húss.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akrahverfis þar sem að deiliskipulag heimilar aðeins einnar og hálfrar hæðar einbýlishús eða kjallara þar sem að landhalli gefur tilefni til. Hæðarmunur á lóðarmörkum að neðanverðu og ofanverðu er um 40 cm.
Skipulagsnefnd mælir með því að ótútgrafin rými sem sýnd eru á teikningu verði skráð sem gluggalaust tæknirými eða geymslur.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akrahverfis í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Kornakurs 5, 6 og 8 sem og Jafnakurs 6 og 8 og Skeiðakurs 7 og 8.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
10
6. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að einbýlishúsi sem gerir m.a. ráð fyrir kjallara undir neðra gólfi húss með geymslu og leikfimirými. Úr leikfimi rými er gengt út í niðurgrafið útisvæði með heitum potti sem er utan byggingarreits. 107 m2 óuppfyllt rými er einnig sýnt í kjallara undir neðra gólfi.
Tillögu vísað til afgreiðslu skipulagsnefndar.