Beint í efni

42. (2000). fundur

02.11.2021
Bæjarráð Garðabæjar

42. (2000). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

02.11.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2106536

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025).

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og fór yfir minnisblað varðandi helstu atriði sem lúta að áætlun tekna og útgjöldum málaflokka sem þarf að fara yfir milli umræðna um fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025).

Lagt fram yfirlit yfir mál sem vísað hefur verið til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Á fjarfundi undir þessum dagskrárlið voru Harpa Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi og Guðjón E. Friðriksson bæjarritari.

Málsnúmer 2110371

02

Furuás 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Skarfakletti ehf., kt. 460790 -1159, leyfi til að stækka kjallararými einbýlishússins að Furuási 4.

Málsnúmer 2103505

03

Kornakur 7 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Erni Þorsteinssyni, kt. 060579-5209, leyfi til að byggja einbýlishús að Kornakri 7.

Málsnúmer 2109010

04

Maríugata 9 - 11 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir að veita ÞG Íbúðum ehf., kt. 600115-0220, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 42 íbúðum að Maríugötu 9-11.

Vegna fjölgunar íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 914.160 á íbúð m.v. BVT 789,6 stig í nóvember 2021 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi. (8 íbúðir)

Málsnúmer 2102111

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð við Víðiholt á Álftanesi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir Víðiholt á Álftanesi.

Á auglýsingartíma skal boða til kynningarfundar í Álftanesskóla.

Málsnúmer 2102110

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir félagsvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi.

Á auglýsingartíma skal boða til kynningarfundar í Álftanesskóla.

Málsnúmer 2110240

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðar fyrir inntaks- og þjónustuhús í almenningsgarðinum Miðgarði.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðar fyrir inntaks- og þjónustuhús á almenningsgarðinum Miðgarði.

Með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. er fallið frá grenndarkynningu þar sem sýnt er að breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins sem er umsækjandi.

Málsnúmer 2007282

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14.

Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir frá íbúum þar sem breytingunni var mótmælt.

Málsnúmer 2110254

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.

Lögð fram.

Málsnúmer 2109387

10

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi endurnýjun samstarfsamninga við frjáls félög.

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar

Golfklúbburinn Oddur

Golfklúbbur Álftaness

Hestamannafélagið Sprettur

Hestamannafélagið Sóti

Taflfélag Garðabæjar

Tennisfélag Garðabæjar

Æskulýðsfélag Garðasóknar

Gildistími samninganna er frá 1. janúar 2021 til 31. desember 2023.

Málsnúmer 1811027

11

Drög að viðauka við samkomulag um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar á miðsvæði Álftaness.

Bæjarstjóri kynnti viðauka við samkomulag um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar á miðsvæði Álftaness.

Í viðaukanum er gert ráð fyrir að greiðsla vegna sölu byggingarréttar lóða við Hestamýri verði greidd fyrir lok nóvember 2021 í stað lok september 2022 og gegn 1% afslætti að kaupverði byggingarréttar lóðarinnar.

Þá er gert ráð fyrir breytingu á framkvæmdatíma byggingu húsa á lóðunum. Framkvæmdir við munu hefjast í nóvember 2021 í stað janúar 2021 og ljúka í maí 2025 í stað mars 2024.

Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti.

Málsnúmer 2110241

12

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Óla og co ehf., um rekstrarleyfi fyrir veitingastað á Garðaholti.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Óla og Co ehf. verð veitt leyfi fyrir veitingarekstur að Garðaholti.

Málsnúmer 2106022

13

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar við Eskiás o.fl.

Í úrskurðarorði kemur fram að kærumálinu er vísað frá úrskurðarnefndinni.

Málsnúmer 2110339

14

Erindi félagsmálaráðuneytis varðandi tilnefningu fulltrúa sveitarfélags vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, dags. 25.10.21.

Bæjarstjóri upplýsti að Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur og verkefnastjóri á fjölskyldusviði Garðabæjar, hafi verið tilnefnd sem fulltrúi Garðabæjar vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Málsnúmer 2110401

15

Bréf Afl lögmanna f.h. Quick hús ehf. varðandi upplýsingar um framkvæmd verksamnings við Íslenska aðalverktaka hf. vegna byggingar fjölnota íþróttahúss, dags. 28.10.21.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 2110334

16

Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands varðandi ágóðahlutagreiðsla 2021, dags. 22.10.21.

Lagt fram bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands þar sem fram kemur að ágóðahluti Garðabæjar árið 2020 er að fjárhæð kr. 3.258.000.

Málsnúmer 2110411

17

Ósk Garðabæjarlistans um minnisblað er varðar fjölda nemenda á unglingastigi

Lagt fram.

Málsnúmer 2110365

18

Kynning ÖBÍ á tækifærum til að bæta aðgengismál fatlaðs fólks í sveitarfélaginu.

Bæjarstjóri greindi frá að í undirbúningi væri að vinna að umsókn inn í fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna verkefna sem unnið hefur verið að og fyrirhugað er að vinna að til að bæta aðgengi fatlaðs fólks í sveitarfélaginu.

Bæjarráð vísar kynningunni til umfjöllunar í samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.