Hönnun - Útboð - Mikligarður -Urriðaholt - Útivistar- og íþróttasvæði-Knattspyrnuvöllur -Jarðvinna,yfirborðsfrágangur og lagnir
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
20. (2027). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í útvegun og lagningu gervigrass á nýjan knattspyrnuvöll í Urriðaholti.
Metratron ehf., tilboð 1 kr. 28.924.968
Metratron ehf., tilboð 2 kr. 30.785.992
Metratron ehf., tilboð 3 kr. 32.835.512
Altis ehf., tilboð 1 kr. 31.220.000
Altis ehf., tilboð 2 kr. 34.651.824
Kostnaðaráætlun kr. 28.700.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Metatron um lægsta tilboð. (tilboð nr. 1). Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
03
13. (2020). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við jarðvinnu og yfirborðsfrágang knattspyrnuvallar í Urriðaholti.
Ljósþing ehf./Stálborg ehf. kr. 88.889.280
Stéttafélagið ehf. kr. 96.109.100
Kostnaðaráætlun kr. 81.134.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Ljósaþings ehf./Stálborgar ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir lóð fyrir inntaks-og þjónustuhús fyrir gervigrasvöll. Staðsetning er norð-vestan við völlinn.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Þar sem að breytingin varða ekki hagsmuni annarra en Garðabæjar er grenndarkynning felld níður í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga.
Sýna skal staðsetningu ljósamastra við gervifrasvöll á uppdrætti en uppsetning þeirra er heimil samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
15. (893). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðar fyrir inntaks- og þjónustuhús á almenningsgarðinum Miðgarði.
Með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu þar sem sýnt er að breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins sem er umsækjandi." (Mál nr. 2110240)
Bæjarráð Garðabæjar
07
42. (2000). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðar fyrir inntaks- og þjónustuhús á almenningsgarðinum Miðgarði.
Með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. er fallið frá grenndarkynningu þar sem sýnt er að breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins sem er umsækjandi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
13. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir 57 m2 lóð með 28 m2 byggingarreit fyrir inntaks og þjónusutuhús í almenningsgarðinum Miðgarði.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta í samræmi við 2.mgr.43 gr.Skipulagslaga og fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 3.mgr.44gr.sömu laga þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins.