15. (893). fundur
15. (893). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
04.11.2021
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Sigurður Guðmundsson
- Gunnar Valur Gíslason
- Jóna Sæmundsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Gunnar Einarsson
- Sara Dögg Svanhildardóttir
- Ingvar Arnarson
- Valborg Ösp Á. Warén
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 21. október 2021 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 26/10 ´21.
Fundargerðin sem er 32 tl., er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 2/11 ´21.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 17. tl., ósk Garðabæjarlistans um minnisblað er varðar fjölda nemenda á unglingastigi.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 17. tl., ósk Garðabæjarlistans um minnisblað er varðar fjölda nemenda á unglingastigi.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 17. tl., ósk Garðabæjarlistans um minnisblað er varðar fjölda nemenda á unglingastigi.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025).
Fundargerðin sem er 18 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
2.5 - 2102111 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð við Víðiholt á Álftanesi.
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir Víðiholt á Álftanesi. Á auglýsingartíma skal boða til kynningarfundar í Álftanesskóla." (Mál nr. 2102111)
Fylgiskjöl
2.6 - 2102110 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi.
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi. Á auglýsingartíma skal boða til kynningarfundar í Álftanesskóla." (Mál nr. 2102110)
Fylgiskjöl
2.7 - 2110240 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðar fyrir inntaks- og þjónustuhús í almenningsgarðinum Miðgarði.
"Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðar fyrir inntaks- og þjónustuhús á almenningsgarðinum Miðgarði.
Með vísan til 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu þar sem sýnt er að breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins sem er umsækjandi." (Mál nr. 2110240)
Fylgiskjöl
2.8 - 2007282 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14.
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14.
Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir frá íbúum þar sem breytingunni var mótmælt." (Mál nr. 2007282)
Fylgiskjöl
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 20/10 ´21.
Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ, 8. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð og 10. tl., ofbeldi af hálfa barna.
Fundargerðin er lögð fram.
04
Fundargerð skipulagsnefndar frá 28/10 ´21.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., deiliskipulag fyrir Víðiholt og 2. tl., deiliskipulag fyrir félagssvæði Hestamannafélagsins Sóta. Þá ræddi Sigurður fyrirhugaða uppbyggingu á Arnarneshálsi.
Ingvar Arnarson, ræddi fyrirhugaða uppbyggingu á Arnarneshálsi.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 27/10 ´21.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun 2022, 2. tl., starfsáætlanir grunnskóla, 3. tl., úthlutun úr Námsgagnasjóði, 4. tl., skólastefnu Garðabæjar og 5. tl., menntadaginn 2021.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., starfsáætlanir grunnskóla.
Fundargerðin er lögð fram.
06
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 19/10 ´21.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 22/10 ´21.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., fjárhags- og starfsáætlun 2022-2026, 2. tl., lántökuheimild og 3. tl., framlengingu aksturssamninga.
Fundargerðin er lögð fram.
11
Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.
Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2022.
12
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025)
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2022 - 2025. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.
Bæjarstjóri lagði til að vísa frumvarpinu til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:
2022 2023 2024 2025
Tekjur: 20.142.955 21.422.496 22.492.092 23.553.780
Gjöld: 17.936.444 18.544.320 19.355.138 20.235.993
Rekstrarniðurstaða f. afskriftir: 2.206.511 2.878.175 3.136.954 3.317.787
Afskriftir (1.225.940) (1.312.293) (1.424.003) (1.536.932)
Rekstrarniðurst. án fjárm.tekna/gjalda (980.571) 1.565.883 1.712.951 1.780.856
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (931.795) (912.443) (969.155) (1.046.162)
Rekstrarniðurstaða 48.776 653.439 743.796 734.694
Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2022 - 2025 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.