Beint í efni

13. fundur

28.10.2021
Skipulagsnefnd Garðabæjar

13. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

28.10.2021

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2102111

01

Víðiholt íbúðabyggð. Deiliskipulag

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt að lokinni forkynningu ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa.

Ýmsar breytingar og lagfæringar hafa verið gerðar á forkynntri tillögu.

Helstu breytingar á tillögunni eru:

-Íbúðareiningum fækkar um 9 úr 84 í 75. Íbúðum í fjölbýli fækkar um 6 og í raðhúsum um 3.

-Byggingarreitir fjölbýlishúsa styttast og færast fjær húsum við Asparholt sem nemur 6 metrum.

-Aðkomugata að raðhúsum færist til þannig að raðhúslengjur samanstanda nú af 3 lengjum með 5 húsum og 3 lengjum með 3 húsum.

-Byggingarreitir raðhúsa færast fjær raðhúsum við Lyngholt.

-Ekki er lengur gert ráð fyrir göngustíg frá Víðiholti að hesthúsahverfinu og manir stækkaðar.

-Heimilt verður að útbúa litlar og grunnar settjarnir vegna ofanvatslausna hjá leikssvæðum.

-Göngustígur færist fjær raðhúsum við Lyngholt og gert verður ráð fyrir göngustíg meðfram lóðarmörkum milli fjölbýlishúsa í Víðiholti og Asparholti.

-Spennistöð við Breiðumýri færist um lítillega til suðurs.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga. Boða skal til kynningarfundar í Álftanesskóla á auglýsingartíma.

Málsnúmer 2102110

02

Félagssvæði Sóta. Deiliskipulag.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Félagssvæðis Sóta að lokinni forkynningu. Ábendingar og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.

Helstu breytingar á tillögunni eru:

- Mön sem aðskilur íbúðabyggð og hesthúsasvæði verður samfeld og göngustígur á milli felldur út.

- Hestagerði fært inn á opið svæði við Suðurnesveg og bætt við mön meðfram vegi.

- Ekki verður gert ráð fyrir settjörnum innan hesthúsasvæðisins vegna öryggissjónarmiða.

- Byggingarreitir nýrra hesthúsa breikkaðir lítillega.

- Byggingarreit fyrir dómarahús breytt.

- Reiðleiðum innan svæðis breytt vegna öryggissjónarmiða.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga. Boða skal til kynningarfundar í Álftanesskóla á auglýsingartíma.

Málsnúmer 2107195

03

Kauptún 1 - Ósk um stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 1.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:

Byggingarreitur á lóð 1 er stækkaður um 760 m2,þar af 150 m2 til vesturs vegna fyrirhugaðs anddyris en um 600 m2 til austurs. Hámarksbyggingarmagn er aukið úr 8.100 m2 í 8.400 m2.

Að öðru leyti skulu gilda skilmálar sem koma fram í áður samþykktum deiliskipulagsskilmálum.

Skipulagsnefnd leggur til að útfærsla byggingar og lóðar á lóðarmörkum að ofanverðu verði sýnd með skýringamyndum og samráð verði haft víð eigendur og rekstraraðila í Urriðaholtsstræti 2. Nefndin minnir á grein 7.1.9. í greinargerð gildandi deiliskipulags þar sem kveðið er á um að þak á nýjum hluta hússins skuli þakið náttúrulegum efnum svo sem grasi, mosa eða lyngmóa.

Vísað til skoðunar og úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.

Málsnúmer 2007282

04

Blikanes 14

Tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu lögð fram að lokinni grenndarkynningu og úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.

Íbúar og eigendur húsa við Blikanes og Mávanes hafa með athugasemdum sínum hafnað hugmyndum að stækkun byggingareita á framlóðum í Blikanesi og Mávanesi. Ennfremur mælti deiliskipulagsráðgjafi ekki með því að sú breyting yrði gerð á deiliskipulaginu.

Tillögu að breytingu deiliskipulags vegna stækkunar byggingarreits á framlóð á Blikanesi 14 er því hafnað.

Skipulagsstjóri vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1604105

05

Hraunhólar 14 - fyrirspurn um deiliskipulag o.fl.

Lögð fram umsókn lóðarhafa Hraunhóla 14 um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að suðurmörk og byggingarreitur lóðar sé í samræmi við aðrar lóðir við Hraunhóla.

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 2110240

06

Hönnun - Útboð - Miðgarður Urriðaholt

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir 57 m2 lóð með 28 m2 byggingarreit fyrir inntaks og þjónusutuhús í almenningsgarðinum Miðgarði.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta í samræmi við 2.mgr.43 gr.Skipulagslaga og fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 3.mgr.44gr.sömu laga þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins.

Málsnúmer 2110364

07

Lindarflöt 44 viðbygging - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn arkitekts fyrir hönd lóðarhafa hvort heimilað verði að stækka byggingarreit á baklóð vegna viðbyggingar sem verður í 1 metra fjarlægð frá lóðarmörkum og að lengja bílageymslu sem stendur við lóðarmörk um 2,9 metra úr 9 í 11,9.

Vísað til frekar skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 2110375

08

Seinakur 4 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að bílageymsla í kjallara verði opin og óupphituð. Samkvæmt skilmálum skal bílageymsla vera innbyggð.

Með vísan í önnur hús í Akrahverfi með sambærilegri útfærslu telur nefndin að bílageymslan geti talist innbyggð þó að hún sé opin á tvo vegu. Bílskýlið skal hafa rými fyrir 2 bíla auk 3 bílastæða á lóð.

Málsnúmer 1911163

09

Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun

Drög að lýðræðisstefnu Garðabæjar lögð fram og innihald hennar rætt. Málinu frestað til næsta fundar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2110254

10

Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025æ Breyting. Skipulagslýsing

Lagðar fram tvær skipulagslýsingar á tillögum á að breytingum Aðalskipulags Hafnarfjarðar sem annarsvegar til lóðarinnar Smyrlahraun 41a og hinsvegar til Miðbæjar, svæðis M1.

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við skipulagslýsingarnar.