Beint í efni

Blikanes 14

Málsnúmer 2007282

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (893). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14.
Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir frá íbúum þar sem breytingunni var mótmælt." (Mál nr. 2007282)

Bæjarráð Garðabæjar

02

42. (2000). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14.
Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir frá íbúum þar sem breytingunni var mótmælt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

13. fundur

Tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu lögð fram að lokinni grenndarkynningu og úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Íbúar og eigendur húsa við Blikanes og Mávanes hafa með athugasemdum sínum hafnað hugmyndum að stækkun byggingareita á framlóðum í Blikanesi og Mávanesi. Ennfremur mælti deiliskipulagsráðgjafi ekki með því að sú breyting yrði gerð á deiliskipulaginu.
Tillögu að breytingu deiliskipulags vegna stækkunar byggingarreits á framlóð á Blikanesi 14 er því hafnað.
Skipulagsstjóri vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

11. fundur

Tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu lögð fram að lokinni grenndarkynningu.
Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

9. (887). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun á byggingarreit fyrir bílgeymslu á lóðinni við Blikanes 14. Grenndarkynna skal tillöguna öllum eigendum lóða við Blikanes og eigendum lóða við Tjaldanes 11 og 13. (Mál nr. 2007282)

Bæjarráð Garðabæjar

06

20. (1978). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun á byggingarreit fyrir bílgeymslu á lóðinni við Blikanes 14. Grenndarkynna skal tillöguna öllum eigendum lóða við Blikanes og eigendum lóða við Tjaldanes 11 og 13.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit fyrir bílgeymslu og anddyri í sömu hæð og neðri hæð húss. Bílgeymslan nær 5,35 m í átt að götu. Stækkun byggingarreits verður því um 35,0 m2 að flatarmáli. Tillagan gerir ráð fyrir byggingareit sem er 1,15 m nær framhlið húss en fyrri tillögur, ekki er gert ráð fyrir þaksvölum ofan á bílageymslu eins og fyrri tillögur.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna öllum eigendum lóða við Blikanes sem og Tjaldaness 11 og 13.


Skipulagsstjóri vék af fundi undir þessum lið.