Beint í efni

9. (887). fundur

03.06.2021
Bæjarstjórn Garðabæjar

9. (887). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

03.06.2021

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Gunnar Einarsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vefsíðu bæjarins.

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði

Fundargerð bæjarstjórnar frá 20. maí 2021 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2105699

01

Kosning forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta til eins árs.

Tillaga kom fram um Björgu Fenger í embætti forseta bæjarstjórnar til eins árs. Tillagan er samþykkt samhljóða.

Björg Fenger, telst því rétt kjörin forseti bæjarstjórnar til eins árs.

Björg Fenger þakkaði bæjarfulltrúum traustið og tók við stjórn fundarins. Björg þakkaði fyrrverandi forseta fyrir hans störf síðastliðin tvö ár.

Tillaga kom fram um Almar Guðmundsson og Ingvar Arnarson sem fyrsta varaforseta bæjarstjórnar til eins árs. Átta bæjarfulltrúar (BF,ÁHJ,SHJ,SG,GVG,JS,AG,GE) greiddu Almari atkvæði og þrír bæjarfulltrúar (SDS,IA,HÞ) greiddu Ingvari atkvæði.

Almar Guðmundsson, telst því rétt kjörinn fyrsti varaforseti bæjarstjórnar til eins árs.

Tillaga kom fram um Sigríði Huldu Jónsdóttur og Ingvar Arnarson sem 2. varaforseta bæjarstjórnar til eins árs.

Átta bæjarfulltrúar (BF,SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,GE) greiddu Sigríði Huldu atkvæði og þrír bæjarfulltrúar (SDS,IA,HÞ) greiddu Ingvari atkvæði.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, telst því réttkjörin annar varaforseti bæjarstjórnar til eins árs.

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Enn og aftur sýnir meirihlutinn af sér afturhaldssemi, valdhroka og ólýðræðisleg vinnubrögð þegar kemur að kosningu varaforseta bæjarstjórnar. Í flestum sveitarfélögum á Íslandi er minnihlutanum jafnan treyst fyrir því hlutverki."

Sara Dögg Svanhildardóttir kvaddi sér hljóðs í tilefni af kjöri forseta og varaforseta bæjarstjórnar.

Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs í tilefni af kjöri forseta og varaforseta bæjarstjórnar.

Harpa Þorsteinsdóttir, kvaddi sér hljóðs í tilefni af kjöri forseta og varaforseta bæjarstjórnar.

Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs að nýju í tilefni af kjöri forseta og varaforseta bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2105700

02

Kosning fimm fulltrúa í bæjarráð til eins árs.

Tillaga kom fram um eftirfarandi fulltrúa til setu í bæjarráði til eins árs:

Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður, Sigríður Hulda Jónsdóttir, varaformaður, Almar Guðmundsson, Gunnar Valur Gíslason og Sara Dögg Svanhildardóttir.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2101004

03

Kosning fulltrúa í iþrótta- og tómstundaráð.

Bæjarstjórn samþykkir að Hannes Ingi Geirsson verði aðalmaður í íþrótta- og tómstundaráði í stað Guðjóns Péturs Lýðssonar sem verður þá varamaður í stað Hannesar.

Málsnúmer 2105035F

04

Fundargerð bæjarráðs frá 25/5 ´21.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 8. tl., minnisblöð Strætó bs. varðandi tillögur til úrbóta á leið 23 og leið 22.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 8. tl., minnisblöð Strætó bs. varðandi tillögur til úrbóta á leið 23 og leið 22.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 8. tl., minnisblöð Strætó bs. varðandi tillögur til úrbóta á leið 23 og leið 22 og 6. tl., bréf Umhverfisstofnunar varðandi tilnefningu fulltrúa í samstarfshóp vegna undirbúnings friðlýsingar Bessastaðaness.

Björg Fenger ræddi 8. tl., minnisblöð Strætó bs. varðandi tillögur til úrbóta á leið 23 og leið 22.

Ingvar Arnarson, ræddi 17. tl., svör við fyrirspurn Garðabæjarlistans um nýtingu strætó.

Almar Guðmundsson, ræddi 8. tl., minnisblöð Strætó bs. varðandi tillögur til úrbóta á leið 23 og leið 22 og 13. tl., afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs varðandi samning um Stjörnuhlaupið. Almar færði hlaupahópi Stjörnunnar þakkir fyrir vel heppnaðan viðburð sem kominn er til með að vera þáttur í bæjarlífinu.

Fundargerðin sem er 17 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2105044F

05

Fundargerð bæjarráðs frá 1/6 ´21.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir undirgöng á Arnarneshæð og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Ég vek athygli á að framkvæmdin felur í sér að endurbyggja núverandi gatnamót í nærri sömu mynd. Komið hefur fram tillaga frá ráðgjöfum og tæknifólki bæjarins um að færa hægri beygjuakrein inn á ljósagatnamótin til þess að gera gatnamótin öruggari og auðlæsilegri fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Með þessari lausn væri einnig hægt að samnýta akrein fyrir umferð yfir brúna og auka þannig afköst gatnamótanna fyrir meirihluta íbúa á Arnarnesi. Því var hafnað af meirihlutanum.

Af hverju vill meirihlutinn ekki lausn sem býður upp á meira umferðaröryggi?"

Þá ræddi Sara Dögg 17. tl., bréf Landverndar varðandi moldarflutninga á Álftanesi.

Ingvar Arnarson, ræddi 14. tl., bréf skólastjóra Garðaskóla varðandi húsnæðismál skólans og 17. tl., bréf Landverndar varðandi moldarflutninga á Álftanesi.

Gunnar Einarsson, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir undirgöng á Arnarneshæð og 17. tl., bréf Landverndar varðandi moldarflutninga á Álftanesi.

Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 17. tl., bréf Landverndar varðandi moldarflutninga á Álftanesi.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 17. tl., bréf Landverndar varðandi moldarflutninga á Álftanesi.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 14. tl., bréf skólastjóra Garðaskóla varðandi húsnæðismál skólans. Áslaug Hulda vék í þessu sambandi að húsnæðismálum Fjölbrautaskólans í Garðabæ.

Harpa Þorsteinsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi húsnæðismál Fjölbrautaskólans í Garðabæ.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi húsnæðismál Fjölbrautaskólans í Garðabæ.

Fundargerðin sem er 20 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

5.1 - 2104410 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu byggingarleyfisumsóknar á lóðinni við Lambhaga 9.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús við Lambhaga 9 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en deiliskipulag fyrir svæðið liggur ekki fyrir. (Mál nr. 2104410)

Fylgiskjöl

5.10 - 2101213 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir göngustíg og göngubrú frá Ásgarði að Bæjargarði.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir göngustíg og göngubrú frá Ásgarði að Bæjargarði.
Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2101213)

Fylgiskjöl

5.11 - 2105133 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Þórsgrund.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Þórsgrund. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2105133)

Fylgiskjöl

5.12 - 1906309 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð vegna nyrsta hluta Vetrarbrautar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð vegna nyrsta hluta Vetrarbrautar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 1906309)

Fylgiskjöl

5.13 - 2103518 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir veitutengingar að fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir veitutengingar að fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2103518)

Fylgiskjöl

5.2 - 2105343 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi og breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi og breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, öðrum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. (Mál nr. 2105343)

Fylgiskjöl

5.3 - 2007282 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun á byggingarreit fyrir bílgeymslu á lóðinni við Blikanes 14. Grenndarkynna skal tillöguna öllum eigendum lóða við Blikanes og eigendum lóða við Tjaldanes 11 og 13. (Mál nr. 2007282)

Fylgiskjöl

5.5 - 2103505 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Kornakur 7.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um byggingarleyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Kornakri 7 sem gerir ráð fyrir að kjallari verði undir aðalhæð hússins. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum lóða við Kornakur 5, 6 og 8, Jafnakurs 6 og 8 og Skeiðakurs 7 og 8. (Mál nr. 2103505)

Fylgiskjöl

5.6 - 2012115 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Smáraflöt 12.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Smáraflöt 12. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og bárust athugasemdir frá eigendum þriggja lóða við Stekkjarflöt.
Tillagan gerir ráð fyrir því að fyrir miðjum byggingarreit verði rými með gólfi sem er hálfri hæð neðar og hálfri hæð ofar en aðalgólf hússins en samkvæmt deiliskipulagi eru hús á þessari lóð ein hæð. Tillagan fer þó ekki yfir leyfilega hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi. Byggingarreitur stækkar auk þess um hálfan metra til vesturs.
Vegna athugasemda nágranna samþykkir skipulagsnefnd að bæta eftirfarandi ákvæði við tillöguna.

"Neðri brún glugga á vesturhlið efri hæðar verði ekki neðar en í 180 cm hæð yfir gólfi. Þess verði gætt að ekki verði röskun á friðhelgi aðliggjandi lóða hvað varðar innsýn af efri hæð hússins."

Á deiliskipulagsuppdrætti skal sýna með skýrum hætti byggingarreit innan aðalbyggingarreits þar sem heimilt verður að hafa tvö gólf, annað hálfri hæð ofar en aðalgólf og hitt hálfri hæð neðar en aðalgólf.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að ef vikið verði út frá ákvæði deiliskipulags um að einnar hæðar hús geti að einhverju leyti talist 11/2 hæð sé tryggt að útfærsla breytingarinnar raski ekki friðhelgi aðliggjandi lóða hvað innsýn varðar. (Mál nr. 2012115)

Almar Guðmundsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

5.8 - 2011499 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir undirgöng á Arnarneshæð.

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (BF,ÁHJ,SHJ,SG,GVG,JS,AG,GE) tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir byggingu undirganga á Arnarneshæð. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. Þrír sitja hjá (SDS,IA,HÞ). (Mál nr. 2011499)

Fylgiskjöl

5.9 - 2105127 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2105127)

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2105020F

06

Fundargerð fjölskylduráðs frá 19/5 ´21.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., drög að reglum Garðabæjar um NPA, 2. tl., minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna niðurstöðu héraðsdóm í máli er varðar framkvæmd NPA, 3. tl., félagslegt húsnæði og 7. tl., tölulegar upplýsingar varðandi barnavernd og fjárhagsaðstoð.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., drög að reglum Garðabæjar um NPA.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2105013F

07

Fundargerð leikskólanefndar frá 26/5 ´21.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., nýjan leikskóla í Urriðaholti og sagði frá að niðurstaða dómnefndar í hönnunarsamkeppni um byggingu skólans liggi fyrir og verði kynnt í næstu viku.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., reglur um innritun í leikskólum.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., reglur um innritun í leikskólum. Gunnar sagði frá fundi með fulltrúum foreldrafélags Urriðaholtsskóla varðandi leikskólaþjónustu.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., reglur um innritun í leikskólum Garðabæjar.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., reglur um innritun í leikskólum Garðabæjar.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., reglur um innritun í leikskólum Garðabæjar.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2105036F

08

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 26/5 ´21.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 9. tl., menningaruppskeruhátíð 2021 og færði öllum þeim fjölmörgu sem fengu viðurkenningu hamingjuóskir. Þá ræddi Gunnar Valur 5. tl., styrk úr barnamenningarsjóði, 8. tl., erindi um að tónlistarhátíðin Secret Solstice verði í Garðabæ og 10. tl. önnur mál - undirbúning fyrir stórtónleika í fjölnota íþróttahúsi.

Björg Fenger, ræddi 9. tl., menningaruppskeruhátíð 2021 og færði menningar og safnanefnd þakkir fyrir undirbúning og framkvæmd hátíðarinnar. Þá ræddi Björg frábæran árangur yngri flokka Stjörnunnar í körfuknattleik á nýliðnum vetri og óskaði unga fólkinu til hamingju og færði deildinni þakkir fyrir frábært starf.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi frábæran árgangur yngri flokka Stjörnunnar körfuknattleik.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi frábæran árangur yngri flokka Stjörnunnar í körfuknattleik.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi frábæran árangur yngri flokka Stjörnunnar í körfuknattleik og tengingu við öflugt menningarstarf.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2105023F

09

Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 20/5 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2105039F

10

Fundargerð skipulagsnefndar frá 27/5 ´21.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9, 3. tl., tillögur að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis, 5. tl., fyrirspurn vegna skipulag lóðanna við Lyngás 13-15 og 18. tl., breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar við Þorrasali 37 í Kópavogi.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9 og 3. tl., tillögur um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis.

Sigurður Guðmundsson, ræddi að nýju 2. tl., tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 2. tl., tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2105033F

11

Fundargerð öldungaráðs frá 20/5 ´21.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna og 5. tl., málefni eldri borgara.

Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl., tillögu til þingsályktunar um nýja velferðarstefnu fyrir aldraða.


Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101447

12

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 31/5 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102291

13

Fundargerð 32. eigendafundar Sorpu bs. frá 10/5 ´21.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., breytta meðhöndlun úrgangs.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., breytta meðhöndlun úrgangs.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., breytta meðhöndlun úrgangs.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101300

14

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 30/4 og 21/5 ´21.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., fg. frá 30/4, leiðarkerfi 4. tl., fg. frá 30/4, útvistunarmál, 8. tl., fg. frá 30/4, kostnaðarskiptingu rekstrarframlaga, 4. tl., fg. frá 21/5, greiningu á frumvarpi um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og 3. tl., fg frá 21/5, lánakjör hjá Lánasjóði sveitarfélaga

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2106020

15

Samstarfssamningur við Félag eldri borgara á Álftanesi.

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir drögum að samstarfssamningi við Félag eldri borgara á Álftanesi um líkams- og heilsurækt. Samningurinn er til tveggja ára og er árlegt framlag kr. 1.500.000.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning við Félag eldri borgara á Álftanesi og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

Málsnúmer 2106019

16

Samstarfssamningur við Félag eldri borgara í Garðabæ.

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir drögum að samstarfssamningi við Félag eldri borgara í Garðabæ um líkams- og heilsurækt. Samningurinn er til tveggja ára og er árlegt framlag allt að kr. 15.000.000.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning við Félag eldri borgara í Garðabæ og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

Málsnúmer 2105701

17

Tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar 2021.

"Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 8. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 19. ágúst 2021. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 17. ágúst 2021.

Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga."