Beint í efni

Kosning fulltrúa í stjórn Hönnunarsafns Íslands og skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar.

Málsnúmer 2101004

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (894). fundur

Gunnar Einarsson lagði fram tillögu um að kjósa Margréti Gunnlaugsdóttur, Árakri 11, sem aðalfulltrúa í stjórn Hönnunarsafns Íslands í stað Kristínar Björgvinsdóttur, sem flutt er úr bænum.

Þá lagði Gunnar fram tillögu um að kjósa Unni B. Johnsen, Lækjarfit 6, sem aðalfulltrúa í skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar í stað Sigrúnar Gísladóttur, sem er látin og Sigríði Indriðadóttur, Bæjargili 120, sem varafulltrúa í stað Unnar sem nú verður aðalfulltrúi.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomnar tillögur.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

9. (887). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að Hannes Ingi Geirsson verði aðalmaður í íþrótta- og tómstundaráði í stað Guðjóns Péturs Lýðssonar sem verður þá varamaður í stað Hannesar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Guðlaug Kristmundsson sem varamann í fjölskylduráð í stað Árna Björns Kristjánssonar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Sigurð Símonarson, Strikinu 10, sem fulltrúa í öldungaráð samkvæmt tilnefningu Félags eldri borgara í Garðabæ í stað Ástbjörns Egilssonar sem er fluttur úr bæjarfélaginu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Kristjönu Sigursteinsdóttur, Smáraflöt 16, sem varamann í skólanefnd í stað Kristrúnar Frostadóttur, sem flutt er úr bæjarfélaginu.