5. (883). fundur
5. (883). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
18.03.2021
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Gunnar Valur Gíslason
- Jóna Sæmundsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Björg Fenger
- Gunnar Einarsson
- Guðfinnur Sigurvinsson
- Sara Dögg Svanhildardóttir
- Ingvar Arnarson
- Harpa Þorsteinsdóttir
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vefsíðu bæjarins.
Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 4. mars 2021 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 9/3 ´21.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., óleyfisbúsetu og fjöldaskráningar í íbúðarhúsnæði, 5. tl., tillögu um framlengingu á umsóknarfresti vegna tómstunda- og íþróttastyrkja 11. tl., bréf Brynju leigufélags varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2021 og 13. tl., bréf Gunnars Jónssonar varðandi gatnamál að Hleinahverfi,
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 13. tl., bréf Gunnars Jónssonar varðandi gatnamál að Hleinahverfi.
Gunnar Einarsson, ræddi 11. tl., bréf Brynju leigufélags varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2021 og 13. tl., bréf Gunnars Jónssonar varðandi gatnamál að Hleinahverfi
Fundargerðin sem er 17 tl., er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 16/3 ´21.
Ingvar Arnarson, ræddi 22. tl., Betri Garðabær - hugmyndasöfnun og íbúakosningu, 23. tl., bréf UMF Stjörnunnar varðandi rekstur Garðaholts og 29. tl., sölu lóða í Vetramýri.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 22. tl., Betri Garðabær - hugmyndasöfnun - íbúakosningu.
Almar Guðmundsson, ræddi 29. tl., sölu lóða í Vetrarmýri.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 29. tl., sölu lóða í Vetrarmýri.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóða við Mávanes og Blikanes og 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Gunnar Einarsson, ræddi 29. tl., sölu lóða í Vetrarmýri.
Fundargerðin sem er 30 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála:
2.10 - 2008336 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis í Urriðaholti 5.04 Vþ.
Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36, gr. laganna, um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er nær til landnotkunarreits í Urriðaholti sem er merktur 5.04 Vþ. Í tillögunni er gert ráð fyrir að á svæðinu verði heimiluð íbúðarbyggð ásamt atvinnuhúsnæði. Íbúðarhúsnæði skal vera innan 50% af heildarbyggingarmagni á skipulagsvæðinu. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga og samhliða var auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum. Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga og jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær. (Mál nr. 2008336)
Fylgiskjöl
2.11 - 1912215 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu varðandi brottfall deiliskipulags viðskiptastræti Urriðaholts.
Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fella úr gildi deiliskipulag Viðskiptastrætis Urriðaholts samhliða samþykkt á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. (Mál nr. 1912215)
Fylgiskjöl
2.12 - 2102057 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hólmatúns vegna lóðarinnar við Hólmatún 25.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hólmatúns í tilefni umsóknar um leyfi fyrir smáhýsi á lóðinni við Hólmatún 25. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Hólmatúns 6.8.10.10a,23a,24,26 og 29. (Mál nr. 2102057)
Fylgiskjöl
2.13 - 2010384 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Kumlamýri.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gatnagerðar í Kumlamýri. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir Kumlamýri. (Mál nr. 2010384)
Fylgiskjöl
2.14 - 2004123 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir skólpdælustöð í Breiðumýri.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir skólpdælustöð í Breiðumýri. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir Breiðumýri. (Mál nr. 2004123)
Fylgiskjöl
2.15 - 1806404 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stígs í Garðahrauni efra.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu útivistarstígs í Garðahrauni efra. Um er að ræða stíg milli Molduhrauns og Flata að Bæjargarði og einnig hliðarstíg frá þeim stíg við norðurmörk Molduhrauns að vegstæði fyrirhugaðs Álftanesvegar. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag Bæjargarðs og Garðahraun efra - fólkvangur.
Samkvæmt 10. gr. auglýsingar um stofnun fólkvangsins í Garðahrauni, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum í Garðabæ nr. 510/2014 þarf að liggja fyrir leyfi Umhverfisstofnunar til framkvæmda innan marka fólkvangsins. (Mál nr. 1806404)
Fylgiskjöl
2.18 - 1910293 - Bréf Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Vetrarmýrar, dags. 25.02.21.
Bæjarstjórn samþykkir að fallast á athugasemdir Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Vetrarmýrar og uppfæra deiliskipulagsgögn í samræmi við þær. Deiliskipulagið var samþykkt í bæjarstjórn 19. nóvember 2020. (Mál nr. 1910293)
Fylgiskjöl
2.19 - 1906192 - Bréf Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag norðurhluta Hnoðraholts, dags. 25.02.21.
Bæjarstjórn samþykkir að fallast á athugasemdir Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag norðurhluta Hnoðraholts og uppfæra deiliskipulagsgögn samræmi við þær. Deiliskipulagið var samþykkt í bæjarstjórn 19. nóvember 2020. (Mál nr.1906192)
Fylgiskjöl
2.2 - 2010333 - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 7. Breyting á landnotkun v. búsetukjarna í Brekkuás
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breyttrar landnotkunar á reit 2.06 við Brekkuás sem breytist úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir íbúðabyggð. (Mál nr. 2010333)
Fylgiskjöl
2.3 - 2005435 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) varðandi lóðina við Brekkuás 2.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr., sbr. 2. mgr. 43. gr. og 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna breytingar á skilgreiningu á lóðinni við Brekkuás 2 sem breytist úr lóð fyrir samfélagsþjónustu í lóð fyrir íbúðarbyggð. Gert er ráð fyrir að á lóðinni verði búsetukjarni fyrir fatlað fólk. (Mál nr. 2005435)
Fylgiskjöl
2.4 - 2012070 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna Blikaness og Mávaness.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að falla frá breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna stækkunar byggingarreita lóða ofan við götu við Blikanes og Mávanes. Tillagan var kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og komu fram almenn mótmæli íbúa gagnvart tillögunni. (Mál nr. 2012070)
Fylgiskjöl
2.5 - 2101220 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Smáraflöt 4.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um að heimilað verði að bygging við lóðarmörk lóðarinnar við Smáraflöt 4 verði 11,8 m á lengd en í skilmálum er heimiluð lengd 7,5 m. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 1,2,4,5 og 6 og Stekkjarflatar 5,7 og 9. (Mál nr. 2101220)
Fylgiskjöl
2.6 - 2102132 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Stekkjarflöt 25.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um viðbyggingu sem fer út fyrir byggingarreit lóðarinnar við Stekkjarflöt 25. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 20 og 22 og Stekkjarflatar 20,21,22 og 23. (Mál nr. 2102132)
Fylgiskjöl
2.8 - 2101295 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis vegna lóðarinnar við Espilund 3.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lunda í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits lóðarinnar við Espilund 3. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Espilundar 1,2,4,5 og 6 og Víðilundar 2,4 og 6. (Mál nr. 2101295)
Fylgiskjöl
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 4 (11.3.2021) - Espilundur 3 - Umsókn um byggingarleyfi.pdf
- 20210305-bréf með innlögn aðaluppdrátta Espilundur 3.pdf
- 20-067_Espilundur 3 - (99)1-01 - GRUNNMYND.pdf
- 20-067_Espilundur 3 - (99)1-02 - ÚTLIT OG SNIÐ.pdf
- 20-067_Espilundur 3- (99)1-00 - ALMENNAR SKÝRINGAR OG AFSTÖÐUMYND.pdf
2.9 - 1811125 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem er svæði fyrir nýja íbúðarbyggð og atvinnustarfsemi norðan við Urriðaholtsstræti auk útivistarsvæðis næst Flóttamannaveginum. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. og var samhliða auglýst breyting á aðalskipulagi. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:
Feldur verður niður glertengigangur á 3. og 4. hæð miðhluta fjölbýlishússins við Urriðaholtsstræti 9, en miðhlutinn er 2 hæðir.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær. (Mál nr. 1811125)
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 12/3 ´21.
Björg Fenger, ræddi 3. tl., húsnæðismál Taflfélags Garðabæjar og 6. tl., opnun og vígslu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., þjónustusamning um Mýrina og önnur mál, kynningu fyrir frjáls félög á fjölnota íþróttahúsi.
Fundargerðin er lögð fram.
04
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 8/3 ´21.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., kynningu á útibúum bókasafns í Urriðaholti og á Álftanesi og kynningu á breytingum á húsnæði aðalsafns við Garðatorg, 4. tl., jazzhátíð Garðabæjar 2021, og 5. tl., barnamenningarhátíð Garðabæjar 2021.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., menningardagskrá vegna vígslu fjölnota íþróttahúss, 4. tl., jazzhátíð Garðabæjar 2021 og 5. tl., barnamenningarhátíð Garðabæjar 2021.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., menningardagskrá vegna vígslu fjölnota íþróttahúss og svaraði fyrirspurnum.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 6. tl., önnur menningarmál.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð skipulagsnefndar frá 4/3 ´21.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., Borgarlínuna - frumdrög að fyrstu lota, 2. tl., tillögu að breyttu aðalskipulagi Kópavogs og að breyttu deiliskipulagi miðbæjar Kópavogs, 3. tl., þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2020-2024 og 4. tl., undirbúning Vegagerðarinnar að útfærslu Reykjanesbrautar til framtíðar.
Fundargerðin er lögð fram.
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 11/3 ´21.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A. Sigurður lagði fram eftirfarandi bókun sem hann lagði einnig fram á fundi skipulagsnefndar í tilefni af bókun Baldurs Ó Svavarssonar, fulltrúa Garðabæjarlistans í skipulagsnefnd.
"Það er vægast sagt sérstakt að koma með bókun sem þessa. Mál koma ýmist fyrst fram í skipulagsnefnd eða eru send skipulagsnefnd frá bæjarstjórn. Þetta er svipað og að gera athugasemd eftir mark í íþróttaleik vegna þess að boltinn hafi borist fyrir frá vinstri en ekki hægri. Skipulagsnefnd hefur lögformlegan tilgang samkvæmt skipulagslögum og þar eru öll skipulagsmál í sveitarfélaginu unnin, skipulagsmál eru ekki og verða aldrei gæluverkefni og er svona rakalausri þvælu vísað til föðurhúsanna.
Þá er það með eindæmum ósmekklegt að gera athugasemdir við það að skipulagsáætlanir sem samþykktar hafi verið í sveitarfélaginu séu kynntar kjörnum fulltrúum, en líklega vill minnihluti Garðabæjarlistans lifa í myrkrinu óupplýstir um flest mál og fer það þvert gegn meintum ásetningi þeirra um opin og lýðræðisleg vinnubrögð. Það var af fyrirhyggju sem meirihluti sjálfstæðismanna stóð að kaupum á landi Garðaholts fyrir u.þ.b. 50 milljónir árið 1992. Garðaholtið er um 410 hektarar og þar af er Garðahverfið um 79 hektarar. Það má að sjálfsögðu verðmeta hvern fermetra lands í Garðabæ með tilliti til sölu byggingarréttar og verða ríkur. Verðmæti fyrir bæjarbúa snúast ekki síður um að búa í nálægð við opin svæði þannig að lífsgæða verði sem best notið, opin svæði auka lífsgæði og verðmæti þeirra eigna sem eru byggðar á hverjum tíma. Dýrustu byggingar í London og New York eru við Hyde Park og Central Park. Seltjarnarnes sem hefur takmarkað byggingarland hefur lagt áherslu á að halda í opnu svæðin á Gróttu, á vestursvæðinu þar eru u.þ.b 50 hektarar undir opin svæði.
Þá skýtur það ákaflega skökku við að vísa til einhverra meintra sérhagsmuna í bókuninni, enda ekki gerð minnsta tilraun til að undirbyggja slíka makalausa staðhæfingu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, hafa í nefndarstörfum, bæjarráði og bæjarstjórn haft hagsmuni bæjarins og allra bæjarbúa að leiðarljósi. Það mun verða gert hér eftir, sem hingað til."
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A. og fór fram á að bókun Baldurs Ó. Svavarssonar sem lögð var fram á fundi skipulagsnefndar verði færð til bókar í fundargerð bæjarstjórnar. Þá ræddi Ingvar 8. tl., breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans.
"Undirritaður fagnar framkominni tillögu og mikilvægu skrefi í átt að þéttingu byggðar við Borgarlínu. Furða mig hins vegar á ferli málsins sem ekkert hefur komið til umræðu í nefndinni sl. 2 ár, en birtist nú skyndilega sem tillaga í bæjarstjórn. Að öllu eðlilegu hefði skipulagsnefnd átt að vera fyrsti viðkomustaður til kynningar og umræðu og þaðan vísað til bæjarstjórnar. Nema að það sé ásetningur meirihlutans líkt og kannski verið hefur að skipulagsnefnd bæjarins verði aðeins formlegur viðkomustaður tillagna og gæluverkefna meirihlutans til samþykktar þegar hentar.
Þá er einnig sérstakt við framsetningu þessarar tillögu að samdægurs kynnir meirihlutinn með klukkustundar fyrirlestri í bæjarráði, sérstakt gæluverkefni þ.e. Garðahverfisskipulagið og að úthlutun hefjist á lóðum þar, í einhverju dreifbýlasta skipulagssvæði norðan Alpafjalla. 30 íbúðir á 80 hektra, dreift nær skipulagslaust um túnin þar. Skipulag sem aldrei mun nást að fylgja eftir sem því Disneylandi fortíðar sem þarna er stefnt að. Á þessum hluta Garðaholts mætti með hæfilega þéttri byggð, koma fyrir a.m.k. 1000-1500 íbúðum eða um 100-150.000 byggðum fermetrum (miðað við t.d. 100 m² pr. íbúðareiningu) . Ef við gefum okkur að byggingarréttur væri þarna seldur á segjum 50 þús. kr. /m² líkt og t.a.m. í Urriðaholti, er hér um 6-7 milljarða verðmæti að ræða ! Dygði bæjaryfirvöldum nokkurn veginn fyrir knatthúsinu góða og eins og einum grunnskóla fyrir afganginn. Notabene bærinn fékk þetta land nær gefins frá ríkinu. Hér er ekki aðeins verið að fórna einstöku byggingarlandi fyrir okkur bæjarbúa með einstökum möguleikum til þéttingar byggðar þar sem risið gæti allt að 5-6000 mann sjálfbær byggðakjarni á Holtinu öllu. Heldur einnig skv. framansögðu er þar fórnað gríðarlegum verðmætum okkar Garðbæinga á altari fortíðarblætis og sérhagsmuna.“
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A og 8. tl., breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Fundargerðin er lögð fram.
07
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 4/3 ´21.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., þróunarsjóð grunnskóla, 2. tl., endurskoðun skólastefnu Garðabæjar, 4. tl., skóladagatal leik- og grunnskóla 2021 til 2022, 5. tl., skólamat í grunnskólum og 8. tl., áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum.
Ingvar Arnarson, ræddi 5. tl., skólamat í grunnskólum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., skólamat í grunnskólum og svaraði fyrirspurnum.
Fundargerðin er lögð fram.
08
Fundargerð umhverfisnefndar frá 10/3 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., loftgæðamælingar og 5. tl., umgengnisreglur í friðlandinu.
Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., uppgræðslu á beitarhólfi í Krísuvík, 4. tl., loftgæðamælingar og 5. tl., umgengnisreglur í friðlandinu.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 4. tl., loftgæðamælingar og 5. tl., umgengnisreglur í friðlandinu.
Harpa Þorsteinsdóttir, 5. tl., umgengnisreglur í friðlandinu.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi og 5. tl., umgengnisreglur í friðlandinu.
Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., uppgræðslu á beitarhólfi í Krísuvík og 8. tl., útvegun á landsvæði fyrir skógrækt.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerð Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 3/3 ´21.
Fundargerðin er lögð fram.
13
Tillaga Garðabæjarlistans um flýtingu frumdraga á leið D í samgöngusáttmála Betri samgangna.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að kallað verði eftir því að vinnu frumdraga fyrir leið D verði flýtt og hafin sem allra fyrst. Tillagan verði send til stjórnar SSH til afgreiðslu.“
Greinargerð
Borgarlína er eitt viðfangsmesta verkefnið sem sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins hafa staðið að í sameiningu. Nú hafa frumdrög fyrsta kafla litið dagsins ljós og því mikilvægt að sveitarfélögin öll styðji vel við framkvæmdina og bregðist hratt við þeim aðstæðum sem upp koma hverju sinni. Nú er ljóst að ýmsar framkvæmdir eru á eftir áætlun og því gæti skapast rými til að horfa til annarra liða í sáttmála sem mætti ýta framar í tímalínu.
Frumdrög er fyrsta skref og ekkert því til fyrirstöðu að hefja þá vinnu eins fljótt og auðið er. En til þess þarf að byrja á útboði til að fá ráðgjafa til að vinna vinnuna. Útboðið tekur á bilinu 3-5 mánuði eftir því hversu umfangsmikið það er og hversu hratt Vegagerðin/Betri samgöngur vinna.
Sjálf vinnan við frumdrögin tekur síðan á bilinu 6-9 mánuði að vinna.
Þar sem þessi leið er ekki á dagskrá fyrr en 2027 þá má gera ráð fyrir að gerð frumdraga byrji ekki fyrr en árið 2026. Með því að þrýsta á gerð frumdraga núna árið 2021 eða 2022 er hægt að byrja 4-5 árum fyrr á leið D (gefið að fjármagn fáist).
Sveitarfélögin þurfa að standa hvert með öðru og vinna þetta eins þétt sama og mögulegt er.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls og ræddi framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, tók til máls og ræddi framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og ræddi framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, tók til máls og lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.
14
Kosning eins varamanns í fjölskylduráð.
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Guðlaug Kristmundsson sem varamann í fjölskylduráð í stað Árna Björns Kristjánssonar.
15
Ráðning í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri lagði fram tillögu um að ráða Svanhildi Þengilsdóttur í starf sviðsstjóra.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarstjóra að ráða Svanhildi Þengilsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Svanhildur er með B.Sc. í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Reykjavíkur.
Svanhildur býr yfir víðtækri rekstrar- og stjórnunarreynslu. Hún hefur gegnt starfi forstöðumanns stuðnings- og öldrunarþjónustu Garðabæjar frá árinu 2019. Svanhildur var svæðisstjóri Heilsugæslu Mosfellsumdæmis á árunum 2016 - 2019, yfirmaður þjónustu- og ráðgjafadeildar aldraðra í Kópavogi frá 2004 - 2016, deildarstjóri heilbrigðissviðs Rauða kross Íslands 2001 - 2004 og skólastjóri Sjúkraflutningaskólans frá árinu 1996-2001.
16
Ársreikningur Garðabæjar 2020 (Fyrri umræða)
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2020. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Gunnar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins.
Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lýsti ánægju með góða útkomu í ársreikningi Garðabæjar árið 2020 og færði starfsmönnum bæjarins þakkir bæjarstjórnar fyrir þeirra þátt í þessari góðu niðurstöðu.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2020 til síðari umræðu í bæjarstjórn.