Ráðning í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. (883). fundur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri lagði fram tillögu um að ráða Svanhildi Þengilsdóttur í starf sviðsstjóra.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarstjóra að ráða Svanhildi Þengilsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Svanhildur er með B.Sc. í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Reykjavíkur.
Svanhildur býr yfir víðtækri rekstrar- og stjórnunarreynslu. Hún hefur gegnt starfi forstöðumanns stuðnings- og öldrunarþjónustu Garðabæjar frá árinu 2019. Svanhildur var svæðisstjóri Heilsugæslu Mosfellsumdæmis á árunum 2016 - 2019, yfirmaður þjónustu- og ráðgjafadeildar aldraðra í Kópavogi frá 2004 - 2016, deildarstjóri heilbrigðissviðs Rauða kross Íslands 2001 - 2004 og skólastjóri Sjúkraflutningaskólans frá árinu 1996-2001.
Bæjarráð Garðabæjar
02
10. (1968). fundur
Á fundinn mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir úrvinnslu umsókna um starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Fram kom að alls bárust 14 umsóknir um starfið. Farið var yfir allar umsóknir og lagt mat á umsækjendur út frá þeim menntunar- og hæfniskröfum sem tilgreindar voru í auglýsingu. Fimm umsækjendur voru boðaðir í viðtöl og sömu fimm einstaklingar fluttu 15 mínútna kynningu og sátu fyrir svörum í framhaldi.
Embættismenn aðrir en bæjarritari og bæjarstjóri véku af fundi undir þessum dagskrárlið.