Fundargerð skipulagsnefndar frá 11/3 ´21.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. (883). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A. Sigurður lagði fram eftirfarandi bókun sem hann lagði einnig fram á fundi skipulagsnefndar í tilefni af bókun Baldurs Ó Svavarssonar, fulltrúa Garðabæjarlistans í skipulagsnefnd.
"Það er vægast sagt sérstakt að koma með bókun sem þessa. Mál koma ýmist fyrst fram í skipulagsnefnd eða eru send skipulagsnefnd frá bæjarstjórn. Þetta er svipað og að gera athugasemd eftir mark í íþróttaleik vegna þess að boltinn hafi borist fyrir frá vinstri en ekki hægri. Skipulagsnefnd hefur lögformlegan tilgang samkvæmt skipulagslögum og þar eru öll skipulagsmál í sveitarfélaginu unnin, skipulagsmál eru ekki og verða aldrei gæluverkefni og er svona rakalausri þvælu vísað til föðurhúsanna.
Þá er það með eindæmum ósmekklegt að gera athugasemdir við það að skipulagsáætlanir sem samþykktar hafi verið í sveitarfélaginu séu kynntar kjörnum fulltrúum, en líklega vill minnihluti Garðabæjarlistans lifa í myrkrinu óupplýstir um flest mál og fer það þvert gegn meintum ásetningi þeirra um opin og lýðræðisleg vinnubrögð. Það var af fyrirhyggju sem meirihluti sjálfstæðismanna stóð að kaupum á landi Garðaholts fyrir u.þ.b. 50 milljónir árið 1992. Garðaholtið er um 410 hektarar og þar af er Garðahverfið um 79 hektarar. Það má að sjálfsögðu verðmeta hvern fermetra lands í Garðabæ með tilliti til sölu byggingarréttar og verða ríkur. Verðmæti fyrir bæjarbúa snúast ekki síður um að búa í nálægð við opin svæði þannig að lífsgæða verði sem best notið, opin svæði auka lífsgæði og verðmæti þeirra eigna sem eru byggðar á hverjum tíma. Dýrustu byggingar í London og New York eru við Hyde Park og Central Park. Seltjarnarnes sem hefur takmarkað byggingarland hefur lagt áherslu á að halda í opnu svæðin á Gróttu, á vestursvæðinu þar eru u.þ.b 50 hektarar undir opin svæði.
Þá skýtur það ákaflega skökku við að vísa til einhverra meintra sérhagsmuna í bókuninni, enda ekki gerð minnsta tilraun til að undirbyggja slíka makalausa staðhæfingu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, hafa í nefndarstörfum, bæjarráði og bæjarstjórn haft hagsmuni bæjarins og allra bæjarbúa að leiðarljósi. Það mun verða gert hér eftir, sem hingað til."
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A. og fór fram á að bókun Baldurs Ó. Svavarssonar sem lögð var fram á fundi skipulagsnefndar verði færð til bókar í fundargerð bæjarstjórnar. Þá ræddi Ingvar 8. tl., breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans.
"Undirritaður fagnar framkominni tillögu og mikilvægu skrefi í átt að þéttingu byggðar við Borgarlínu. Furða mig hins vegar á ferli málsins sem ekkert hefur komið til umræðu í nefndinni sl. 2 ár, en birtist nú skyndilega sem tillaga í bæjarstjórn. Að öllu eðlilegu hefði skipulagsnefnd átt að vera fyrsti viðkomustaður til kynningar og umræðu og þaðan vísað til bæjarstjórnar. Nema að það sé ásetningur meirihlutans líkt og kannski verið hefur að skipulagsnefnd bæjarins verði aðeins formlegur viðkomustaður tillagna og gæluverkefna meirihlutans til samþykktar þegar hentar.
Þá er einnig sérstakt við framsetningu þessarar tillögu að samdægurs kynnir meirihlutinn með klukkustundar fyrirlestri í bæjarráði, sérstakt gæluverkefni þ.e. Garðahverfisskipulagið og að úthlutun hefjist á lóðum þar, í einhverju dreifbýlasta skipulagssvæði norðan Alpafjalla. 30 íbúðir á 80 hektra, dreift nær skipulagslaust um túnin þar. Skipulag sem aldrei mun nást að fylgja eftir sem því Disneylandi fortíðar sem þarna er stefnt að. Á þessum hluta Garðaholts mætti með hæfilega þéttri byggð, koma fyrir a.m.k. 1000-1500 íbúðum eða um 100-150.000 byggðum fermetrum (miðað við t.d. 100 m² pr. íbúðareiningu) . Ef við gefum okkur að byggingarréttur væri þarna seldur á segjum 50 þús. kr. /m² líkt og t.a.m. í Urriðaholti, er hér um 6-7 milljarða verðmæti að ræða ! Dygði bæjaryfirvöldum nokkurn veginn fyrir knatthúsinu góða og eins og einum grunnskóla fyrir afganginn. Notabene bærinn fékk þetta land nær gefins frá ríkinu. Hér er ekki aðeins verið að fórna einstöku byggingarlandi fyrir okkur bæjarbúa með einstökum möguleikum til þéttingar byggðar þar sem risið gæti allt að 5-6000 mann sjálfbær byggðakjarni á Holtinu öllu. Heldur einnig skv. framansögðu er þar fórnað gríðarlegum verðmætum okkar Garðbæinga á altari fortíðarblætis og sérhagsmuna.“
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A og 8. tl., breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., tillögu um að hefja vinnu við rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Fundargerðin er lögð fram.