Beint í efni

Bréf Betri samgangna ohf. varðandi flýtingu gerðar frumdraga fjórðu lotu Borgarlínunnar, dags. 03.05.21.

Málsnúmer 2103323

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

17. (1975). fundur

Í bréfinu kemur fram jákvæð afstaða til tillögu um að flýta gerð frumdraga fjórðu lota Borgarlínu og mun verkefnastofa Borgarlínu skoða það síðar á árinu hvort unnt verði að hefja vinnu við verkefnið.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

11. (1969). fundur

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 18. mars 2021 var eftirfarandi tillögu Garðabæjarlistans vísað til bæjarráðs.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að kallað verði eftir því að vinnu frumdraga fyrir leið D verði flýtt og hafin sem allra fyrst. Tillagan verði send til stjórnar SSH til afgreiðslu.“

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að senda erindi til Betri samgangna ohf. þar sem farið verði fram á að kannaður verði sá möguleiki að flýta vinnu við gerð frumdraga fyrir leið D þannig að hægt verði að hefja framkvæmdir mun fyrr en áætlað er að því gefnu að fjárveitingar verði fyrir hendi.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

5. (883). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að kallað verði eftir því að vinnu frumdraga fyrir leið D verði flýtt og hafin sem allra fyrst. Tillagan verði send til stjórnar SSH til afgreiðslu.“

Greinargerð
Borgarlína er eitt viðfangsmesta verkefnið sem sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins hafa staðið að í sameiningu. Nú hafa frumdrög fyrsta kafla litið dagsins ljós og því mikilvægt að sveitarfélögin öll styðji vel við framkvæmdina og bregðist hratt við þeim aðstæðum sem upp koma hverju sinni. Nú er ljóst að ýmsar framkvæmdir eru á eftir áætlun og því gæti skapast rými til að horfa til annarra liða í sáttmála sem mætti ýta framar í tímalínu.
Frumdrög er fyrsta skref og ekkert því til fyrirstöðu að hefja þá vinnu eins fljótt og auðið er. En til þess þarf að byrja á útboði til að fá ráðgjafa til að vinna vinnuna. Útboðið tekur á bilinu 3-5 mánuði eftir því hversu umfangsmikið það er og hversu hratt Vegagerðin/Betri samgöngur vinna.
Sjálf vinnan við frumdrögin tekur síðan á bilinu 6-9 mánuði að vinna.
Þar sem þessi leið er ekki á dagskrá fyrr en 2027 þá má gera ráð fyrir að gerð frumdraga byrji ekki fyrr en árið 2026. Með því að þrýsta á gerð frumdraga núna árið 2021 eða 2022 er hægt að byrja 4-5 árum fyrr á leið D (gefið að fjármagn fáist).
Sveitarfélögin þurfa að standa hvert með öðru og vinna þetta eins þétt sama og mögulegt er.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls og ræddi framkomna tillögu.

Gunnar Einarsson, tók til máls og ræddi framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og ræddi framkomna tillögu.

Gunnar Einarsson, tók til máls og lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.