17. (1975). fundur
17. (1975). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
11.05.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1906094
01
Kynning á innleiðingu Heimsmarkmiðanna, heilsueflandi Garðabæ, barnasáttmálans og velferð barna í Garðabæ.
Á fund bæjarráðs mætti Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri og gerði grein fyrir stöðu innleiðingar hjá Garðabæ á Heimsmarkmiðum SÞ, barnasáttmála SÞ, heilsueflandi samfélags og velferð barna í Garðabæ.
Fram kom að unnið er að innleiðingu 38 undirmarkmiða og tengingu þeirra við núverandi stefnur Garðabæjar að við endurskoðun á stefnum verður unnið með heimsmarkmiðin í huga.
Unnið hefur verið að innleiðingu barnasáttmála SÞ og tekur Garðabær þátt í verkefninu Barnvæn sveitarfélög sem er í smstarfi við félagsmálaráðuneytið og UNICEF
Heilsueflandi samfélag er verkefni sem byggir á samkomulagi við Landlæknisembættið frá árinu 2018.
Velferð barna í Garðabæ er verkefni sem stuðlar að samvinnu allra aðila innan bæjarfélagsins sem vinna með börnum.
Harpa Þorsteinsdóttir, var á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið tengd fjarfundarbúnaði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105049
02
Tilkynning frá félagsmálaráðuneytinu varðandi stefnu og aðgerðaáætlun um framkvæmd Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, dags. 03.05.21.
Málsnúmer 2006480
03
Víkurgata 22 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bergi Hjaltested, kt. 050790-2669, leyfi til að stækka einbýlishús í byggingu við Víkurgötu 22.
Málsnúmer 2103295
04
Ægisgrund 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Suðurhæðum ehf., kt. 481220-0410, leyfi til að byggja einbýlishús að Ægisgrund 3.
Málsnúmer 2103294
05
Ægisgrund 5 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Suðurhæðum ehf., kt. 481220-0410, leyfi til að byggja einbýlishús að Ægisgrund 5.
Málsnúmer 2105094
06
Tilkynning frá almannavörnum varðandi ákvörðun ríkislögreglustjóra að lýsa yfir óvissustigi vegna hættu á gróðureldum, dags. 06.05.21.
Í tilkynningunni kemur fram að ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjóra á Vesturlandi, Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum.
Málsnúmer 2103323
07
Bréf Betri samgangna ohf. varðandi flýtingu gerðar frumdraga fjórðu lotu Borgarlínunnar, dags. 03.05.21.
Í bréfinu kemur fram jákvæð afstaða til tillögu um að flýta gerð frumdraga fjórðu lota Borgarlínu og mun verkefnastofa Borgarlínu skoða það síðar á árinu hvort unnt verði að hefja vinnu við verkefnið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2003235
08
Bréf Kvenfélags Garðabæjar varðandi skil á rekstri samkomuhússins að Garðaholti, dags. 30.04.21.
Bæjarráð samþykkir samkomulag við Kvenfélag Garðabæjar um skil á rekstri samkomuhússins að Garðaholti.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að auglýsa eftir nýjum rekstraraðila.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101446
09
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi boðun á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2021, dags. 04.05.21.
Málsnúmer 2105055
10
Bréf Landskerfa bókasafna hf. varðandi aðalfund 2021, dags. 04.05.21.
Málsnúmer 2006239
11
Tilkynning félagsmálaráðuneytisins um úthlutun styrks til að efla virkni, vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu, dags. 04.05.21.
Í tilkynningunni kemur fram að félagsmálaráðuneytið hefur úthlutað Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 5.325.180 til að efla virkni, vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu sumarið 2021.
Málsnúmer 2105083
12
Bréf foreldrafélags Urriðaholtsskóla varðandi leikskólaþjónustu í Urriðaholti, dags. 03.05.21
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105095
13
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Dæinn kaffihúss um rekstrarleyfi fyrir veitingastað að Vinastræti 14.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Dæinn kaffihús fái rekstrarleyfi fyrir starfsemi veitingastaðar að Vinastræti 14.
Málsnúmer 2105036
14
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Just Wingin it 12 ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað að Litlatúni 1.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Just Wingin it 12 fá rekstrarleyfi fyrir starfsemi veitingastaðar að Litlatúni 1.
Málsnúmer 2105064
15
Bréf Íslaga varðandi sölutilboð á 50% eignarhlut í landi Akrakots, dags. 04.05.21.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Málsnúmer 2105101
16
Erindi Secret Solstice varðandi tónlistarhátíð í Garðabæ, ódags.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd og íþrótta- og tómstundaráði
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105102
17
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi höfuðborgarkort, dags. 07.05.21.
Málið rætt.
Bæjarráð vísar erindinu á þessu stigi til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd og íþrótta- og tómstundaráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105106
18
Erindi varðandi veiðileyfi í Urriðakotsvatni, dags. 21.04.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til umhverfisnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105103
19
Ársreikningur Strætó 2020.
Lagður fram.