Afgreiðsla menningar- og safnanefndar og íþrótta- og tómstundaráðs varðandi erindi Secret Solstice um tónlistarhátíð í Garðabæ.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
37. (1995). fundur
Í umsögn bæði menningar- og safnanefndar og íþrótta- og tómstundaráðs kemur fram að vegna áforma um framkvæmdir svæðinu m.a. byggingu nýs leikskóla er það niðurstaða beggja nefnda að Vífilsstaðatún sé ekki heppilegur vettvangur fyrir hina árlegu tónlistarhátíð Secret Soltice
Bæjarráð tekur undir umsögn nefndanna um að Vífilsstaðatún sé ekki heppilegur vettvangur fyrir hina árlegu tónlistarhátíð Secret Soltice. Bæjarstjóra falið að tilkynna forsvarsmönnum hátíðarinnar um niðurstöðu málsins.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
33. fundur
Secret Solstice á Vífilsstaðatúni?
Íþrótta-, tómstunda og forvarnafulltrúi gerði grein fyrir fundi sem hann og menningarfulltrúi ásamt sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs áttu um málið með forsvarsmanni hátíðarinnar. Þar sem fyrir liggja mikil áform um framkvæmdir á Vífilsstaðatúni og nærumhverfi telur ÍTG ekki heppilegt að halda árlegu tónlistarhátíðina Secret Solstice þar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
34. fundur
Forsvarsmenn tónlistarhátíðarinnar óskuðu á vordögum eftir samtali við Garðabæ um að kanna möguleikann á að hátíðin verði haldin á Vífilsstaðatúni og í nærumhverfi þess frá árinu 2022 en hátíðin hefur til þessa verið haldin í Laugardal í Reykjavík. Bæjarráð sendi málið til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd og íþrótta- og tómstundaráði.
Menningarfulltrúi hefur skoðað málið ásamt íþrótta- tómstunda- og forvarnafulltrúa Garðabæjar og forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs bæjarins og rakti menningarfulltrúi niðurstöðu þeirrar skoðunar. Fyrir liggja mikil áform um framkvæmdir í Hnoðraholti, í Vetrarmýri og á öðrum svæðum í landi Vífilsstaða á næstu árum, m.a. við uppbyggingu íbúðarbyggðar og atvinnulóða auk þess sem leikskóli er staðsettur upp af Vífilsstaðatúni og annar í byggingu. Með vísan til þessara áforma um miklar framkvæmdir á þessu svæði telur menningar- og safnanefnd að Vífilsstaðatún og nærumhverfi sé ekki heppilegur vettvangur fyrir hina árlegu tónlistarhátíð Secret Solstice.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
33. fundur
Rætt um næstu skref í viðræðum við framkvæmdaraðila tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
32. fundur
Ósk eftir samtali við Garðabæ um að kanna möguleikann á því að hátíðin Secret Solstice eignist nýtt heimili á Vífilsstaðartúni og nærumhverfi frá árinu 2022.
Óskað hefur verið eftir samtali við Garðabæ um að kanna möguleikann á því að hátíðin Secret Solstice eignist nýtt heimili á Vífilsstaðatúni og nærumhverfi frá árinu 2022.
Málið rætt og vísað til skoðunar menningarfulltrúa með íþrótta-, tómstunda og forvarnafulltrúa.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
06
31. fundur
Ósk eftir samtali við Garðabæ um að kanna möguleikann á því að hátíðin Secret Solstice eignist nýtt heimili á Vífilsstaðartúni og nærumhverfi frá árinu 2022.
Óskað hefur verið eftir samtali við Garðabæ um að kanna möguleikann á því að hátíðin Secret Solstice eignist nýtt heimili á Vífilsstaðatúni og nærumhverfi frá árinu 2022.
Málið rætt og vísað til skoðunar íþrótta-, tómstunda og forvarnafulltrúa með menningarfulltrúa.
Bæjarráð Garðabæjar
07
17. (1975). fundur
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd og íþrótta- og tómstundaráði