32. fundur
32. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
26.05.2021
Kl. 16:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2105499
01
Sumarnámskeið í menningarstofnunum
Rætt um gjaldtöku vegna sumarnámskeiða.
Rætt um gjaldtöku fyrir vikunámskeið á Bókasafni Garðabæjar líkt og tíðkast til dæmis á Bókasafni Kópavogs. Samþykkt að lágmarksgjald verði greitt fyrir námskeið á Bókasafni sem og öðrum menningarstofnunum bæjarins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2103144
02
Opnunartímar Álftanesútibús
Menningarfulltrúi kynnti tillögu að breyttum opnunartímum Álftanessafns. Menningar- og safnanefnd gerir ekki athugasemdir við breyttan opnunartíma. Eftir breytingu verður safnið opið mánudaga-fimmtudaga kl. 14-18, föstudaga kl. 14-17 og einn laugardag í mánuði kl. 11-14. Breytingin felur í sér samfelldan opnunartíma á virkum dögum frá því skóla lýkur klukkan 14.
Sumaropnun verður mánudaga-fimmtudaga frá 14-18.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2104128
03
Hvatningarsjóður ungra listamanna
Tillaga að úthlutun
Tillaga menningarfulltrúa vegna úthlutunar úr Hvatningarsjóði ungra listamanna samþykkt. Formleg úthlutun úr sjóðnum verður á menningaruppskeruhátíðinni þann 2. júní nk. Menningarfulltrúa falið að tilkynna umsækjendum niðurstöðu nefndarinnar í ár.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105476
04
Heiðursviðurkenning 2021
Menningarfulltrúi kynnti tillögu að heiðursviðurkenningarhafa 2021. Samþykkt einróma. Heiðursviðurkenning verður veitt á menningaruppskeruhátíðinni þann 2. júní nk.
Málsnúmer 2104077
05
Styrkur úr Barnamenningarsjóði
Menningarfulltrúi greindi frá niðurstöðu umsóknar um styrk úr Barnamenningarsjóði en verkefnið Við langeldinn / Við eldhúsborðið var styrkt um 4 milljónir króna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105457
06
Dagskrá 17. júní 2021
Menningarfulltrúi kynnti tillögu að dagskrá sem tekur mið af núgildandi sóttvarnarreglum. Menningar- og safnanefnd samþykkir tillögu menningarfulltrúa.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105102
07
Höfuðborgarkort
Tillaga um eitt "aðgangskort" í allar sundlaugar og söfn á höfuðborgarsvæðinu.
Tillaga um eitt "aðgangskort" í allar sundlaugar og söfn á höfuðborgarsvæðinu var rædd. Menningarfulltrúa falið að kanna hvaða útfærslur eru í boði og ræða málið við aðra rekstraraðila safna á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105101
08
Tónlistarhátíð í Garðabæ - Secret Solstice
Ósk eftir samtali við Garðabæ um að kanna möguleikann á því að hátíðin Secret Solstice eignist nýtt heimili á Vífilsstaðartúni og nærumhverfi frá árinu 2022.
Óskað hefur verið eftir samtali við Garðabæ um að kanna möguleikann á því að hátíðin Secret Solstice eignist nýtt heimili á Vífilsstaðatúni og nærumhverfi frá árinu 2022.
Málið rætt og vísað til skoðunar menningarfulltrúa með íþrótta-, tómstunda og forvarnafulltrúa.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105536
09
Menningaruppskeruhátíð 2021
Samþykkt að menningaruppskeruhátíð fari fram þann 2. júní nk. kl. 17:30. Útnefning bæjarlistamanns 2021, heiðursviðurkenning veitt og styrkir úr Hvatningarsjóði ungra listamanna verða afhentir. Athöfnin fer fram í Sveinatungu.
Málsnúmer 2008671
10
Önnur mál menningarmála
a) Á næsta fundi menningar- og safnanefndar mun menningarfulltrúi gera grein fyrir stöðu mála varðandi stórtónleika í fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri vorið 2022.