Hvatningarsjóður ungra listamanna
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
36. fundur
Breyting á reglum og aðkoma ungmennaráðs
Menningarfulltrúa falið að móta tillögu að endurskoðuðum reglum um úthlutun úr Hvatningarsjóði fyrir unga listamenn í Garðabæ með það að leiðarljósi að ungir hönnuðir komi þar einnig til álita við úthlutun styrkja jafnframt því að skoðaðir verði möguleikar á að veita ungmennaráði bæjarins hlutverk í verkefninu, t.d. þegar farið er yfir umsóknir sem berast um framlag úr sjóðnum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
32. fundur
Tillaga að úthlutun
Tillaga menningarfulltrúa vegna úthlutunar úr Hvatningarsjóði ungra listamanna samþykkt. Formleg úthlutun úr sjóðnum verður á menningaruppskeruhátíðinni þann 2. júní nk. Menningarfulltrúa falið að tilkynna umsækjendum niðurstöðu nefndarinnar í ár.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
31. fundur
Menningarfulltrúa falið að ræða við umsækjendur.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
30. fundur
Umsóknir
Rætt um umsóknir úr Hvatningarsjóði sem nú þegar hafa borist en umsóknarfrestur er til 30. apríl.