Beint í efni

36. fundur

15.11.2021
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

36. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

15.11.2021

Kl. 16:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Valborg Ösp Á. Warén - varamaður

Starfsmenn

  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Ólöf Breiðfjörð

Dagskrá

Málsnúmer 1911163

01

Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun

Hulda Hauksdóttir kynnir stefnuna sem er í umræðuferli hjá nefndum bæjarins.

Fyrir fundinum lágu drög að endurskoðaðri lýðræðisstefnu Garðabæjar ásamt drögum að viðaukum. Lýðræðisstefnan er unnin af þverfaglegum starfshópi starfsfólks í samráði við fjölskylduráð Garðabæjar.

Hulda Hauksdóttir upplýsingastjóri kynnti endurskoðun á lýðræðisstefnunni sem er í umsagnarferli hjá nefndum bæjarins og greindi frá því að fulltrúar í nefndum hafi tækifæri til að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri við úrvinnslu stefnunnar áður en hún verður lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar. Hulda fór af fundi í lok kynningar.

Menningar- og safnanefnd lýsir yfir ánægju sinni með fyrirliggjandi drög að endurskoðaðri lýðræðisstefnu Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111208

02

Menningardagskrá fyrir skólahópa 21/22

Menningarfulltrúi sagði frá menningardagskrá fyrir skólahópa á vorönn og haustönn 2021 en þrátt fyrir heimsfaraldur hefur mikill fjöldi skólahópa og barna notið dagskrár á Hönnunarsafni Íslands, Tónlistarskóla Garðabæjar, Bókasafni Garðabæjar og á Barnamenningarhátíð Garðabæjar 2021. Menningarfulltrúi þakkaði skólastjórnendum og kennurum fyrir frábærar viðtökur og afar gott samstarf sem hefur leitt til geysimikillar þátttöku skólahópa í menningardagskránni í ár.

Menningarfulltrúi tilkynnti að fyrirhuguðum tónleikum grunn- og miðstigsnemenda í grunnskólum bæjarins nú í nóvember hafi verið festað um óákveðinn tíma vegna samkomutakmarkana.

Farið var yfir áform um menningardagskrá fyrir skólahópa í Garðabæ á vorönn 2022 þar sem m.a. verður á dagskrá Barnamenningarhátíðar verkefni tengt minjagarðinum á Hofsstöðum sem fengið hefur styrk frá Þjóðræknifélagi Íslendinga.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2010045

03

Tónlistarveisla í skammdeginu með GDRN frestað

Vegna samkomutakmarkana verður ekki mögulegt að halda tónleika á Garðatorgi undir merkjum Tónlistarveislu í skammdeginu eins og fyrirhugað var þann 18. nóvember 2021. Söngkonan GDRN ásamt hljómsveit ætlaði að koma fram en viðburðurinn bíður þangað til heimildir til samkomuhalds verða rýmkaðar á ný.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111209

04

Aðventuhátíð Garðabæjar

Aðventuhátíð aflýst

Aðventuhátíð Garðabæjar sem menningar- og safnanefnd hafði boðið fjölskyldum í Garðabæ til á Garðatorgi þann 27. nóvember 2021 í samvinnu við Hönnunarsafn Íslands og Bókasafn Garðabæjar hefur verið aflýst vegna samkomutakmarkana. Menningarfulltrúi mun nú leita annarra leiða til að veita börnum í Garðabæ tækifæri til að fagna upphafi aðventu í ár. Til skoðunar er að fá leikskólabörn til að tendra ljósin á jólatré Garðabæjar og að gera þeim dagamun með einhverjum hætti í kjölfarið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2104128

05

Hvatningarsjóður ungra listamanna

Breyting á reglum og aðkoma ungmennaráðs

Menningarfulltrúa falið að móta tillögu að endurskoðuðum reglum um úthlutun úr Hvatningarsjóði fyrir unga listamenn í Garðabæ með það að leiðarljósi að ungir hönnuðir komi þar einnig til álita við úthlutun styrkja jafnframt því að skoðaðir verði möguleikar á að veita ungmennaráði bæjarins hlutverk í verkefninu, t.d. þegar farið er yfir umsóknir sem berast um framlag úr sjóðnum.

Málsnúmer 2110303

06

Fjárhagsáætlun 2022

Sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir þann hluta fyrirliggjandi frumvarps að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 sem snýr að menningarmálum en fjárhagsáætlunin var til fyrri umræðu í bæjarstjórn 4. nóvember sl.

Málsnúmer 2109239

07

Fyrstu áfangaskýrslur um óbein áhrif COVID-19

Fyrir fundinum lá tilkynning heilbrigðisráðuneytisins dags. 09.09.2021 varðandi fyrstu áfangaskýrslur um óbein áhrif Covid-19 á íslenskt samfélag. Skýrslurnar lágu frammi og voru ræddar.

Menningar- og safnanefnd er einhuga um að áframhaldandi menningardagskrá verði í boði fyrir skólahópa á öllum stigum í skólum Garðabæjar. Nefndin leggur einnig mikla áherslu á að unglingum í bænum verði boðið að taka þátt í dagskrá við sitt hæfi en fram kemur í fyrirliggjandi gögnum að sá hópur hafi átt sérstaklega erfitt uppdráttar í heimsfaraldrinum.

Menningar- og safnanefnd mun þannig áfram leitast við að leggja jákvætt lóð á vogaskálarnar í bæjarlífinu með ríkulegri menningardagskrá fyrir grunnskólabörn á komandi árum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1911396

08

Loftlagsstefna Garðabæjar

Fyrir fundinum lá tillaga umhverfisnefndar að loftslagsstefnu Garðabæjar ásamt aðgerðaáætlun en umhverfisnefnd samþykkti á fundi sínum 12. nóvember sl. að senda stefnuna til kynningar í nefndum bæjarins og í framhaldi til samþykktar í bæjarstjórn.

Fylgiskjöl