Beint í efni

Loftlagsstefna Garðabæjar

Málsnúmer 1911396

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

5 (22-26). fundur

Aðgerðaráætlun uppfærð.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

1 (22-26). fundur

Farið yfir loftlagsstefnu Garðabæjar og aðgerðaráætlun. Aðgerðaráætlun verður uppfærð við gerð fjárhagsáætlunar í haust.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

03

1. fundur

Lögð fram til kynningar.

Öldungaráð

04

1. fundur

Mál nr 1911396. Loftlagsstefna Garðabæjar lögð fram til kynningar og umræðu.

Mál nr. 1911396 lagt fram til kynningar, loftlagsstefna Garðabæjar. Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri verkefna- og umhverfis situr fundinn undir þessum lið, kynnir stefnuna og aðgerðaráætlun og svarar spurningum fundarmanna. Öldungaráð þakkar góða kynningu og lýsir yfir ánægju með framlagða loftlagsstefnu Garðabæjar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

40. fundur

Loftlagsstefna Garðabæjar var samþykkt í bæjarstjórn 16 desember síðastliðin. Stefnan verður sett inn á vef Garðabæjar þegar uppsetningu er lokið.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

06

37. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir deildarstjóri umhverfissviðs kynnti loftslagsstefnu Garðabæjar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

18. (896). fundur

Jóna Sæmundsdóttir, gerði grein fyrir tillögu umhverfisnefndar um loftslagsstefnu Garðabæjar sem á að gilda fyrir stofnanir bæjarins. Með stefnunni stefnir Garðabær á að vera til fyrirmyndar í loftslagsmálum með því að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi bæjarins.

Jóna þakkaði umhverfisnefnd og starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra þátt í undirbúningi og vinnu við gerð stefnunnar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls að nýju.

Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls .

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða loftslagsstefnu Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

08

48. (2006). fundur

Bæjarráð vísar tillögu umhverfisnefndar um loftlagsstefnu Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar. Um er að ræða loftlagsstefnu til að gilda fyrir stofnanir bæjarins.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

09

39. fundur

Loftlagsstefna Garðabæjar hefur verið í kynningu í nefndum Garðabæjar. Tillit hefur verið tekið til ábendinga sem þar komu fram og Umhverfisnefnd samþykkir stefnuna og vísar henni til samþykktar hjá bæjarráði og bæjarstjórn.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

10

36. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir deildarstjóri umhverfis og framkvæmdasviðs kynnir nýja loftslagsstefnu Garðabæjar.

Guðbjörg Brá Gísladóttir deildarstjóri umhverfis og framkvæmdasviðs kynnti nýja loftslagsstefnu Garðabæjar. Stefnan gildir fyrir eigin rekstur í stofnunum bæjarins. Loftslagsstefna íbúa er sameiginleg á höfuðborgarsvæðinu og verður gefin út á næstunni.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

14. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir tillögu að Loftlagsstefnu Garðabæjar.
Skipulagsnefnd bendir á að í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er gert ráð fyrir umstalverðri íbúafjölgun í sveitarfélaginu næstu árin sem þarf að taka tillit til í gerð loftslagsstefnu Garðabæjar.

Fjölskylduráð Garðabæjar

12

12. fundur

Drög að loftslagsstefnu Garðabæjar lögð fram til kynningar. Garðabær stefnir á að vera til fyrirmyndar í loftslagsmálum með því að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda frá starfseminni og þeim áhrifum sem losunin hefur í för með sér. Aðalmarkmið stefnunnar eru fjórþætt. Vísað er til fylgiskjala málsins.

Tekið er fyrir mál nr. 1911396, drög að loftlagsstefnu Garðabæjar lögð fram og rædd. Fjölskylduráð fagnar framlagðri stefnu og að sett séu fram skýr markmið við gerð stefnunnar.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

13

36. fundur

Fyrir fundinum lá tillaga umhverfisnefndar að loftslagsstefnu Garðabæjar ásamt aðgerðaáætlun en umhverfisnefnd samþykkti á fundi sínum 12. nóvember sl. að senda stefnuna til kynningar í nefndum bæjarins og í framhaldi til samþykktar í bæjarstjórn.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

14

38. fundur

Loftlagsstefna Garðabæjar samþykkt og verður send til kynningar hjá nefndum og í framhaldi til samþykktar hjá bæjarstjórn.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

15

37. fundur

Vinna við mótun loftlagsstefnu Garðabæjar, fyrir stofnanir og innri rekstur Garðabæjar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

16

36. fundur

Tímalína kynnt um gerð loftlagsstefnu, vinna við hana er hafin og stefnt er á að stefnan verði samþykkt í bæjarstjórn í desember.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

17

27. fundur

Deildastjóri umhverfis og framkvæmda greindi frá vinnu við gerð verkfærakistu til sem ætlað er að efla og styðja íslensk sveitarfélög til að vinna aðgerðamiðaða stefnumótun í loftslagsmálum, fylgja henni eftir og vakta árangur sinn. Sveitarfélög munu einnig geta kortlagt árangursríkar aðgerðir til að draga úr losun frá sínum rekstri.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

18

19. fundur

Loftlagsmál eru mikilvægur þáttur í umhverfismálum Garðabæjar enda er það eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar. Umhverfisnefnd vísar vinnu við gerð loftlagsstefnu Garðabæjar til umhverfis- og tæknisviðs og að gerð verði aðgerðaráætlun um samdrátt í losun. Markmiðið með stefnunni er að Garðabær verði kolefnishlutlaus árið 2040.