1. fundur
1. fundur
Öldungaráð
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
03.02.2022
Kl. 08:30 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Rúnar Símonarson - aðalmaður
- Ólafur J Proppé - aðalmaður
- Margrét Björnsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1911396
01
Loftlagsstefna Garðabæjar
Mál nr 1911396. Loftlagsstefna Garðabæjar lögð fram til kynningar og umræðu.
Mál nr. 1911396 lagt fram til kynningar, loftlagsstefna Garðabæjar. Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri verkefna- og umhverfis situr fundinn undir þessum lið, kynnir stefnuna og aðgerðaráætlun og svarar spurningum fundarmanna. Öldungaráð þakkar góða kynningu og lýsir yfir ánægju með framlagða loftlagsstefnu Garðabæjar.
Málsnúmer 2202033
02
Heilsuefling - Miðgarður
Mál nr. 2202033, lagt fram til umræðu, aðstaða eldri borgara til heilsueflingar í Miðgarði.
Mál nr. 2202033, Heilsuefling - Miðgarður tekið til umfjöllunar. Kári Jónssson, íþrótta-, forvarna- og tómstundafulltrúi situr fundinn undir þessum lið og sýnir fundarmönnum myndir frá Miðgarði og upplýsir um þá möguleika sem húsnæðið býður upp á m.a. tengt heilsueflingu eldri borgara. Öldungaráð þakkar góða kynningu og lýsir yfir ánægju með nýtt og glæsilegt mannvirki.
Málsnúmer 2201239
03
Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraðra
Mál nr 2201239, Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða lagt fram til kynningar og umræðu.
Með þingsályktun um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða eru sett fram stefnumarkandi markmið þar sem horft er heildrænt á alla þætti fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu, almenna þjónustu og forvarnir, stuðning við að búa sjálfstæðri búsetu á eigin heimili og loks hjúkrunarheimili, þ.e. þjónustukeðjunnar í heild.
Horft er til mannfjöldaþróunar, forystu, þátttöku og virkni aldraðs fólks, samhæfingar, nýsköpunar og tækni, og mannafla og fræðslumála í þjónustunni.
Tillagan hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur til 7.febrúar nk. Í tillögunni.
Mál nr. 2201239, tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða lagt fram til kynningar og umræðu. Almennar umræður eru um þingsályktunartillöguna og lýsir Öldungaráð yfir ánægju með þá þætti sem felast í tillögunni og eru til bóta fyrir heilbrigðisþjónustu eldri borgara.
Málsnúmer 2111356
04
Lagfæringar/breytingar á Jónshúsi
Mál nr. 2111356, lagt fram til kynningar og umræðu, lagfæringar/breytingar á Jónshúsi. Aðsókn að félagsstarfi í Jónshúsi hefur verið að aukast umtalsvert undanfarið og hefur sú fjölgun kallað á umræður um möguleika til stækkunar á aðstöðunni. Haldnir hafa verið fundir með formanni félags eldri borgara ásamt starfsmönnum eignaumsjónar og fjölskyldusviðs ásamt arkitekt sem hannaði á sínum tíma Jónshús. Fram hafa komið hugmyndir um stækkun út í garð og einnig breytingar innanhúss sem eru áhugaverðar og til skoðunar hjá hópnum.
Mál nr. 2111356, lagfæringar, breytingar í Jónshúsi, lagt fram kynningar og umfjöllunar. Góðar umræður urðu um málið á fundinum. Horfa þarf til þeirrar starfsemi sem fram fer í Jónshúsi samhliða þeim breytingum sem gerðar verða á innra rými og skipulagi Jónshúss. Öldungaráð styður við tillögur sem snúa að breytingum á Jónshúsi til að mæta þörf fyrir aukna aðsókn í félagsstarfið.
Málsnúmer 1710101
05
Stefna í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun
Mál nr. 1710101 lagt fram til umræðu, stefna í málefnum eldri borgara aðgerðaráætlun. Haldnir hafa þrír fundir með aðilum úr Öldungaráði þar sem fjallað hefur verið um stöðu aðgerðaráætlunar.
Mál nr. 1710101 lagt fram til umræðu, stefna í málefnum eldri borgara aðgerðaráætlun. Minnisblað vinnuhóps um aðgerðaráætlun lagt fram til kynningar, vinnuhóp þökkuð góð vinna. Öldungaráð ákveður að áframhaldandi umræður og úrvinnslu aðgerðaráætlunar fari fram á fundum ráðsins.