Beint í efni

Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraðra

Málsnúmer 2201239

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

3. fundur

Mál nr 2201239, tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða lagt fram til kynningar og umræðu.
Með þingsályktun um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða eru sett fram stefnumarkandi markmið þar sem horft er heildrænt á alla þætti fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu, almenna þjónustu og forvarnir, stuðning við að búa sjálfstæðri búsetu á eigin heimili og loks hjúkrunarheimili, þ.e. þjónustukeðjunnar í heild.
Horft er til mannfjöldaþróunar, forystu, þátttöku og virkni aldraðs fólks, samhæfingar, nýsköpunar og tækni, og mannafla og fræðslumála í þjónustunni.

Mál nr. 2201239, tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða lögð fram til kynningar og umræðu.

Öldungaráð

02

1. fundur

Mál nr 2201239, Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða lagt fram til kynningar og umræðu.
Með þingsályktun um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða eru sett fram stefnumarkandi markmið þar sem horft er heildrænt á alla þætti fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu, almenna þjónustu og forvarnir, stuðning við að búa sjálfstæðri búsetu á eigin heimili og loks hjúkrunarheimili, þ.e. þjónustukeðjunnar í heild.
Horft er til mannfjöldaþróunar, forystu, þátttöku og virkni aldraðs fólks, samhæfingar, nýsköpunar og tækni, og mannafla og fræðslumála í þjónustunni.
Tillagan hefur verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur til 7.febrúar nk. Í tillögunni.

Mál nr. 2201239, tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða lagt fram til kynningar og umræðu. Almennar umræður eru um þingsályktunartillöguna og lýsir Öldungaráð yfir ánægju með þá þætti sem felast í tillögunni og eru til bóta fyrir heilbrigðisþjónustu eldri borgara.