Beint í efni

2. (2009). fundur

18.01.2022
Bæjarráð Garðabæjar

2. (2009). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

18.01.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2007202

01

Kynning frá Landsneti - matsáætlun fyrir Lyklafellslínu.

Á fundi bæjarráðs komu fulltrúar frá Landsneti, Rúnar Dýrmundur Bjarnason, Rut Kristinsdóttir, Smári Jóhannsson, Elín Sigríður Óladóttir og Þórarinn Bjarnason. Gerðu þau grein fyrir valkostum vegna breytinga á legu Lyklafellslínu og öðrum háspennulínum í upplandinu. Sýndar voru tillögur að tímalínu vegna málsmeðferðar og framkvæmda.

Rætt var um erindi Garðabæjar varðandi lagningu Hnoðraholtslínu í jörðu og verður boðað til sérstaks fundar með Landsneti til ræða nánar þá framkvæmd.

Fulltrúar Landsnets svöruðu fyrirspurnum um málið.

Á fundi bæjarráðs undir dagskráliðum 1 og 2 voru bæjarfulltrúarnir Gunnar Valur Gíslason og Björg Fenger. Þá voru á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagstjóri og Sólveig Helga Jóhannsdóttir, skipulagsfræðingur.

Málsnúmer 2001444

02

COVID-19 - staða mála í starfsemi Garðabæjar.

Bæjarstjóri fór yfir tölur dagsins og stöðuna almennt.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs og sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerðu grein stöðu mála vegna faraldursins.

Málsnúmer 2109010

03

Maríugata 9 - 11 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa varðandi lagfæringu á skráningartöflu fjölbýlishúss í byggingu að Maríugötu 9-11.

Málsnúmer 2110177

04

Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í Vetrarmýri.

Eftirfarandi tilboða bárust í framkvæmdir við gatnagerð í Vetrarmýri.

Grafa og grjót ehf. 987.525.418

Loftorka Reykjavík ehf. 1.000.000.000

Óskataka ehf. 1.181.105.500

Kostnaðaráætlun 1.102.370.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gröfu og grjóts ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2201237

05

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Kristmas ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í golfskála Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2106536

06

Reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.

Bæjarráð samþykkir reglurnar með gildistíma frá 1. janúar 2022.

Málsnúmer 2201239

07

Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða, dags. 13.01.22.

Málsnúmer 2201248

08

Tillaga Garðabæjarlistans um sérstaka umræðu um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum í Garðabæ.

Lögð fram eftirfarandi tillaga.

„Garðabæjarlistinn óskar eftir því að bæjarráð taki til umfjöllunar samantekin gögn sem kynnt voru fyrir skólanefnd á fundi skólanefndar 12. janúar 2022 um hlutfall nemenda með stuðningsþarfir eftir skólum.“

Umræða var um tillöguna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2112229

09

Afgreiðsla leikskólanefndar varðandi reglur um sérverkefnasjóð leikskóla.

Bæjarráð samþykkir tillögu leikskólanefndar um reglur varðandi úthlutun úr sérverkefnasjóði leikskóla.

Um er að ræða úthlutun úr miðlægum sjóði í samræmi við fjárveitingu samkvæmt fjárhagsáætlun til að standa straum að launakostnaði vegna sérverkefna í leikskólum bæjarins. Fjárveiting samkvæmt fjárhagsáætlun 2022 er að fjárhæð kr. 25.000.000.

Fylgiskjöl