Hönnun - Útboð - Vetrarbraut 2. áfangi - Vífilsstaðarvegur - háholt_ gatnagerð og veitur
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (902). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar við 2. áfanga Vetrarbrautar. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 407/2021. (Mál nr. 2110177)
Bæjarráð Garðabæjar
02
12. (2019). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar við 2. áfanga Vetrarbrautar. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 407/2021.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Lögð fram umsókn um veitingu framkvæmdaleyfis um 2.áfanga Vetrarbrautar. Gögn eru í samræmi við deiliskipulag.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi í samræmi við framlögð gögn sbr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
04
2. (2009). fundur
Eftirfarandi tilboða bárust í framkvæmdir við gatnagerð í Vetrarmýri.
Grafa og grjót ehf. 987.525.418
Loftorka Reykjavík ehf. 1.000.000.000
Óskataka ehf. 1.181.105.500
Kostnaðaráætlun 1.102.370.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gröfu og grjóts ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.