12. (2019). fundur
12. (2019). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
29.03.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2202438
01
Lautargata 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hafsteini ehf., kt. 411069-0289, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 19 íbúðum við Lautargötu 6.
Málsnúmer 2202346
02
Skógarprýði 8 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurjóni Dagbjartssyni, kt. 281265-4749, leyfi til að byggja einbýlishús við Skógarprýði 8.
Málsnúmer 2109174
03
Sunnakur 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Agnesi Sigurðardóttur, kt. 180975-4549, leyfi til að byggja einbýlishús við Sunnakur 4.
Málsnúmer 2112275
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu á byggingarleyfi vegna tveggja einbýlishúsa við Holtstún á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna tveggja einbýlishúsa á lóð við Holtstún verði grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en deiliskipulag fyrir svæðið liggur ekki fyrir. Grenndarkynna skal eigendum Stekkjar, Asparvíkur, Tjarnar og Eyvindarholts sem og eigendum húsa við Austurtún, Norðurtún og Túngötu sem liggja að Norðurnesvegi.
Málsnúmer 2108621
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna svæðis við Mosagötu.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts. Tillagan var auglýst. Ein athugasemd barst og hefur verið tekið tillit til hennar sbr. umsögn deiliskipulagshöfundar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svari við innsendri athugasemd og deiliskipulagið með breytingu í samræmi við umsögn deiliskipulagshöfundar.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Málsnúmer 2111064
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu vegna tillögu að breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags og tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja verkefnalýsingu vegna breytinga á vaxtarmörkum svæðisskipulags í Smalaholti og Rjúpnahlíð. Verkefnalýsingin tekur einnig til breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Verkefnalýsingin skal send til meðferðar hjá svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins en um breytingar á svæðisskipulagi fer samkvæmt 22.-25. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2112324
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna kvaðar um hljóðvegg.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna kvaðar um 1 m háan hljóðvegg við horn Urriðaholtsstrætis og Grímsgötu, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Urriðaholtsstrætis 26,28,30,32,34 og 36 og Vörðugötu 2.
Málsnúmer 2110177
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar við 2. áfanga Vetrarbrautar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar við 2. áfanga Vetrarbrautar. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 407/2021.
Málsnúmer 2112150
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi vegna efnislosunar í Rjúpnadal.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi vegna efnislosunar í Rjúpnadal á svæði þar sem fyrirhugaður er kirkjugarður. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 407/2021.
Málsnúmer 2110108
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar á norðurhluta Hnoðraholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi vegna gatnagerðar á norðurhluta Hnoðraholts. Framkvæmdin er í samræmi við deiliskipulagsáætlanir sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda nr. 407/2021.
Málsnúmer 2203463
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar.
Lögð fram.
Málsnúmer 2203246
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu Kópavogsbæjar að breytingu á deiliskipulagi Nónsmára.
Í afgreiðslu skipulagsnefndar kemur fram að gerð er athugasemd við hækkun húsa samkvæmt tillögunni um eina hæð en það er líklegt til að hafa í för með sér útsýniskerðingu úr fjölbýlishúsum við Nónhæð í Garðabæ
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að koma athugasemdinni á framfæri við skipulagsyfirvöld í Kópavogi.
Málsnúmer 2203294
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu Kópavogsbæjar um nýtt deiliskipulag Vatnsendahæðar í Vatnsendahverfi.
Lögð fram.
Málsnúmer 2202354
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu Hafnarfjarðarbæjar um tillögu að deiliskipulagi Reykjanesbrautar við Straumsvík.
Lögð fram.
Málsnúmer 2203539
15
Bréf dómsmálaráðuneytis til Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi endurskipulagningu sýslumannsembætta, dags. 21.03.22.
Lagt fram.
Málsnúmer 2203554
16
Bréf Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi sumarlaun nemenda, dags. 23.03.22.
Bæjarráð samþykkir tillögu Tónlistarskóla Garðabæjar um að eftirfarandi nemendur fái sumarlaun árið 2022
Bryndís Ásta Magnúsdóttir, Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir og Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir sem allar eru í söng námi við Tónlistarskóla Garðabæjar.
Málsnúmer 2203569
17
Ársreikningur Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins árið 2021.
Lagður fram.
Málsnúmer 2012042
18
Menntastefna Garðabæjar 2022 - 2030.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerð grein fyrir vinnu við endurskoðun menntastefnu Garðabæjar og helstu áherslum. Menntastefnan hefur verið samþykkt í skólanefnd grunnskóla, leikskólanefnd og skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar. Innleiðing mun fara fram í nefndum og einstaka skólum í framhaldi af samþykkt stefnunnar. Við vinnslu stefnunnar var horft til Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og leiðarljóss heilsueflandi og barnvæns samfélags í Garðabæ.
Bæjarráð vísar menntastefnu Garðabæjar 2022 - 2030 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2203588
19
Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands, varðandi umsóknir í styrktarsjóð EBÍ, dags. 24.03.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og sviðsstjóra.
Málsnúmer 2202318
20
Drög að minnisblaði um stöðu innleiðingar Garðabæjar varðandi samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs og sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerðu grein fyrir drögum að minnisblaði þar sem fram kemur staða innleiðingar og tímalína verkþátta varðandi samþættingu á þjónustu í þágu farsældar barna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102536
21
Drög að minnisblaði varðandi tillögur að stafrænum verkefnum Garðabæjar.
Á fund bæjarráðs kom Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri og fór yfir drög að minnisblaði um möguleg verkefni á sviði stafrænnar þróunar hjá Garðabæ. Fram kom að verið er að vinna að forgangsröðun verkefna m.t.t. fjárveitinga í fjárhagsáætlun.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2203602
22
Umsókn um rekstur leikskóla í Garðabæ.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs upplýsti að ein umsókn hafi borist frá Skólum ehf. um að taka að sér rekstur nýs sex deilda leikskóla í framhaldi af almennri auglýsingu.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að hefja viðræður við umsækjanda um hugsanlegt samstarf.
Málsnúmer 2203590
23
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur), mál nr. 450., dags. 24.03.22.
Lagt fram.
Málsnúmer 2203589
24
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030, 418. mál., dags. 24.03.22.
Lagt fram.