Minnisblað um stöðu stafrænnar þróunar hjá Garðabæ.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
32. (2039). fundur
Á fund bæjarráðs kom Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri stafrænnar þróunar hjá Garðabæ og gerði grein fyrir minnisblaði um stöðu stafrænnar þróunar hjá Garðabæ.
Í minnisblaðinu kemur fram að starfshópur hafi verið skipaður í janúar 2020 til að koma að framgangi stafrænnar þróunar hjá Garðabæ. Þá er gerð grein fyrir þeim kerfum sem innleidd hafa verið og verkefnum sem unnið hefur verið að og eru í vinnslu. Einnig kemur fram að í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga er unnið að sameiginlegum verkefnum fyrir sveitarfélögin.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
12. (2019). fundur
Á fund bæjarráðs kom Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri og fór yfir drög að minnisblaði um möguleg verkefni á sviði stafrænnar þróunar hjá Garðabæ. Fram kom að verið er að vinna að forgangsröðun verkefna m.t.t. fjárveitinga í fjárhagsáætlun.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04
8. (1966). fundur
Á fund bæjarráð kom Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri stafrænna verkefna hjá Garðabæ og gerði grein fyrir greiningu á stafrænun tækifærum hjá Garðabæ og minnisblaði með hugmyndum um verkefni í stafrænni þróun.
Bæjarráð samþykkir að vísa minnisblaðinu til bæjarstjóra.