Beint í efni

4. (882). fundur

04.03.2021
Bæjarstjórn Garðabæjar

4. (882). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

04.03.2021

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Björg Fenger
  • Gunnar Einarsson
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir
  • Valborg Ösp Á. Warén

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 18. febrúar 2021 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2102031F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 23/2 ´21.

Ingvar Arnarson, ræddi 13. tl., svar við fyrirspurn um kostnað vegna auglýsinga.

Gunnar Einarsson, ræddi 13. tl., svar við fyrirspurn um kostnað vegna auglýsinga.

Ingvar Arnarson, ræddi 14. tl., starfsáætlanir sviða.

Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2102047F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 2/3 ´21.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl, Garðahverfi - kynningu á hugmyndafræði og þróun skipulags.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., Garðahverfi - kynningu á hugmyndafræði og þróun skipulags.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi, 3. tl., Garðahverfi - kynningu á hugmyndafræði og þróun skipulags og 4. tl., minnisblað varðandi verkefni Garðabæjar í stafrænni þróun.

Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl, Garðahverfi - kynningu á hugmyndafræði og þróun skipulags, 5. tl., frumdrög að hönnun gatnamóta Garðahraunsvegar og Álftanesvegar.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., frumdrög að hönnun gatnamóta Garðahraunsvegar og Álftanesvegar.

Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl, Garðahverfi - kynningu á hugmyndafræði og þróun skipulags, 4. tl., minnisblað varðandi verkefni Garðabæjar í stafrænni þróun, 5. tl., frumdrög að hönnun gatnamóta Garðahraunsvegar og Álftanesvegar og 8. tl., umsókn Bjargs íbúðafélags um stofnframlag vegna fjölgunar almennra íbúða úr 17 í 22 að Maríugötu 5.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl, Garðahverfi - kynningu á hugmyndafræði og þróun skipulags og 5. tl., frumdrög að hönnun gatnamóta Garðahraunsvegar og Álftanesvegar.

Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., frumdrög að hönnun gatnamóta Garðahraunsvegar og Álftanesvegar.

Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2102023F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 17/2 ´21.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., úttekt á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ, 3. tl., stöðu biðlista í félagslegu leiguhúsnæði, 7. tl., heimili fyrir fötluð börn að Sigurhæð, 12. tl., sérfræðingateymi vegna barna með fjölþættan vanda.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., úttekt á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ, 2. tl., lýðræðisstefnu Garðabæjar og 3. tl., stöðu biðlista í félagslegu leiguhúsnæði.

Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 3. tl., stöðu biðlista í félagslegu leiguhúsnæði.

Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., stöðu biðlista í félagslegu leiguhúsnæði.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102013F

04

Fundargerð leikskólanefndar frá 17/2 ´21.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, 5. tl., styttingu vinnuvikunnar í leikskólum, 2. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup, 1. tl., áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum og 3. tl., framkvæmd öryggisúttektar á leikskólalóðum.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., áhersluþætti þróunarsjóðs leikskóla árið 2022 og 1. tl., áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum og 3. tl., framkvæmd öryggisúttektar á leikskólalóðum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101447

05

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 1/3 ´21.

Sigurður Guðmundsson, ræddi tölulið 2.4, umsókn um starfsleyfi fyrir kaffihús að Vinastræti í Urriðaholti.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101346

06

Fundargerð stjórnar SSH frá 15/2 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001493

07

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 6/11 ´20.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns.

Gunnar Einarsson, ræddi. 2. tl., áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 2. tl., áform um friðlýsingu Urriðakotshrauns.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102441

08

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 15/1 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102249

09

Fundargerðir stjórnar SHS frá 24/2 og 26/2 ´21.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2101300

10

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 19/2 ´21.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., innleiðingu rafræns greiðslukerfis.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102108

11

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 17/2 ´21.

Björg Fenger, ræddi 4. tl., þjónustusamning milli sveitarfélaganna um rekstur skíðasvæðanna og erindi um bætta aðstöðu fyrir skíðagöngu.

Gunnar Einarson, ræddi 4. tl., þjónustusamning milli sveitarfélaganna um rekstur skíðasvæðanna og erindi um bætta aðstöðu fyrir skíðagöngu.

Björg Fenger, ræddi erindi um bætta aðstöðu fyrir skíðagöngu og vakti athygli á tillögu ÍTG um að bæta aðstöðuna innanbæjar þegar slík skilyrði eru fyrir hendi.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102266

12

Tilnefningar á fulltrúum í skólanefnd Fjölbrautaskólans í Garðabæ.

Bæjarstjórn samþykkir að tilnefna eftirfarandi aðila í skólanefnd Fjölbrautaskólans í Garðabæ.

Aðalfulltrúar: Áslaug Hulda Jónsdóttir, Heiðarlundi 7 og Sara Dögg Svanhildardóttir, Mosagötu 7.

Varafulltrúar: Almar Guðmundsson, Stekkjarflöt 15 og Hannes Ingi Geirsson, Melási 2.

Málsnúmer 2103060

13

Tillaga um rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.

Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Bæjarstjórn samþykkir að hafin verði skipulagsvinna á rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A, Lyngás, Miðbær og Hafnarfjarðarvegur, sem skilgreint er í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Þá verði samhliða hafin vinna við deiliskipulag fyrir Álftanesveginn frá Engidal að Reykjanesbraut."

Greinargerð:

Árið 2016 var haldin hugmyndasamkeppni um rammaskipulag svæðisins við Hafnarfjarðarveg. Höfundar vinningstillögunnar voru Batteríið, Landslag og Mannvit sem unnu tillöguna áfram og var að lokum samþykkt sem rammaskipulag árið 2017.

Í gildandi Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er svæðið skilgreint sem þróunarsvæði A. Í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, Höfuðborgarsvæðið 2040, er svæðið skilgreint sem bæjarkjarni þar sem gert er ráð fyrir einni biðstöð borgarlínu.

* Bæjarkjarni í svæðisskipulagi er skilgreindur sem svæði með fjölbreyttri starfsemi; þjónustufyrirtæki, verslanir, skrifstofur og afþreying sem þjónar heilu sveitarfélagi eða hverfishluta. Gera skal ráð fyrir a.m.k. einni stoppistöð hágæðakerfis almenningssamgangna, Borgarlínu, og góðu aðgengi að strætisvagnaleiðum. Þéttleiki er mikill. Íbúðarhúsnæði þarf að vera fjölbreytt að gerð og eignarhaldi, ávallt skal hluti íbúða vera á viðráðanlegu verði. Gott aðgengi að almenningsgörðum og góðum almenningsrýmum og/eða náttúruríkum svæðum. Göngu- og hjólavænt umhverfi sem er skjólgott, gleður augað og hvetur til útiveru.

* Borgarlínan er hágæða almenningssamgangnakerfi sem mun aka að mestu í sérrými og hafa forgang á gatnamótum. Þannig styttist ferðatími og tíðni ferða eykst. Borgarlínunni má líkja við slagæð sem flytur fólk á greiðan og öruggan máta eftir helstu samgöngu- og þróunarásum höfuðborgarsvæðisins. Borgarlínan og Strætó verða tvinnuð saman í heildstæðu, hágæða leiðaneti en auk þess verður áhersla lögð á að borgarlínustöðvar séu vel tengdar hjóla- og göngustígum.

Svæðið er vel staðsett, það er í nálægð við grunnþjónustu sveitarfélagsins s.s. grunnskóla, leikskóla og íþróttasvæði. Stutt er í opin svæði og leiksvæði ásamt því að vera í mikilli nálægð við stofnæðar og almenningssamgöngur. Mikilvægt er að áhersla verði á blandaða byggð, gæði borgarrýmis og mannlífs og borgarlínu í skipulagsvinnunni.

Lagt er til að hafin verði vinna á tækni- og umhverfissviði að undirbúa skipulagsvinnu á rammahluta aðalskipulags á þróunarsvæði A, Lyngás, Miðbær og Hafnarfjarðarvegur. Þar sem lögð verður fram tillaga að skipulagslýsingu fyrir rammahluta aðalskipulags á þróunarsvæði A þar sem m.a. verður áhersla á blandaða byggð, gæði borgarrýmis og mannlífs auk borgarlínu í tengslum við flutning Hafnarfjarðarvegar í stokk. Jafnframt verði lögð fram tillaga að skipulagslýsingu vegna deiliskipulags fyrir Álftanesveginn frá Engidal að Reykjanesbraut.

Skipulagsvinnuna þarf að vinna í samvinnu við SSH, verkefnastofu Borgarlínu, Vegagerðina, Betri samgöngur ohf. og Hafnarfjarðabæ, auk þess sem íbúar Garðabæjar munu koma að skipulagsvinnslunni í samræmi við skipulagslög.

Ingvar Arnarsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Við í Garðabæjarlistanum fögnum þessari tillögu og teljum þetta mikilvægt skref sem hefði mátt byrja að vinna mun fyrr. Við gerum jafnframt athugasemdir við hversu lítið hefur verið fjallað um vinningstillöguna frá árinu 2016 og hversu litla aðkomu skipulagsnefnd hefur haft við gerð þessarar tillögu sem hér er lögð fram. Þ.a.l leggjum við til að tillögunni verði vísað til skipulagsnefndar.“

Sigurður Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu og framlagða bókun.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um framkomna tillögu og framlagða bókun.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.