Beint í efni

32. (2039). fundur

13.09.2022
Bæjarráð Garðabæjar

32. (2039). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

13.09.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2102536

01

Minnisblað um stöðu stafrænnar þróunar hjá Garðabæ.

Á fund bæjarráðs kom Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri stafrænnar þróunar hjá Garðabæ og gerði grein fyrir minnisblaði um stöðu stafrænnar þróunar hjá Garðabæ.

Í minnisblaðinu kemur fram að starfshópur hafi verið skipaður í janúar 2020 til að koma að framgangi stafrænnar þróunar hjá Garðabæ. Þá er gerð grein fyrir þeim kerfum sem innleidd hafa verið og verkefnum sem unnið hefur verið að og eru í vinnslu. Einnig kemur fram að í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga er unnið að sameiginlegum verkefnum fyrir sveitarfélögin.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2208823

02

Holtsbúð 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Önnu Ragnhildi Halldórsdóttur, kt. 030874-3319, leyfi til að rífa bílskúr og byggja nýjan ásamt viðbyggingu við núverandi hús að Holtsbúð 6.

Málsnúmer 2208190

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu fyrir rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlanir fyrir þróunarsvæði A, ásamt Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu fyrir rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlanir fyrir þróunarsvæði A, ásamt Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka, samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi.

Málsnúmer 2208537

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna stækkun lóðar við Kauptún 4.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stækkunar á lóðinni við Kauptún 4.

Málsnúmer 2207009

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbótaríbúð að Hrísmóum 1.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að leyfa útgáfu byggingarleyfis, að uppfylltum öllum skilyrðum, vegna breytingar á leikrými í íbúð á jarðhæð fjölbýlishússins við Hrísmóa 1, sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning fellur niður sbr. heimild í 2. ml. 2. mgr. sömu greinar enda varðar framkvæmdin ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.

Málsnúmer 2208029

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis vegna lóðarinnar við Skógarlund 10.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis í tilefni umsóknar um að heimilað verði að stækka byggingarreit lóðarinnar við Skógarlund 10 um 40 fermetra. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum að Skógarlundi nr. 7, 8, 9 og 11 og Hvannalundi 7, 9, og 11.

Málsnúmer 2106617

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir sólskála á lóðinni að Brekkubyggð 35.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarráð að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að leyfa útgáfu byggingarleyfis, að uppfylltum öllum skilyrðum, vegna byggingar sólskála við íbúð 07 0001 að Brekkubyggð 35. Umsókn um byggingarleyfi var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir og þá liggur fyrir samþykki lóðarhafa sameiginlegrar lóðar við Brekkubyggð 25-35 vegna hækkunar á þaki um 20 cm miðað við grenndarkynnta tillögu.

Málsnúmer 2206114

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Jafnakur 7.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um að heimilað verði að fjölga bílastæðum á lóðinni við Jafnakur 7 úr þremur í fjögur. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum að Jafnakri 5, 6 og 8 og Hjálmakri 6 og 8.

Málsnúmer 2202206

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir stækkun kirkjugarðs.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 fyrir stækkun kirkjugarðs við Garðakirkju í Garðahverfi. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.

Málsnúmer 2208476

10

Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð á Kjóavöllum.

Eftirfarandi tilboð bárust í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í hesthúsahverfinu á Kjóavöllum.

Verkfræðistofa Reykjavíkur ehf. kr. 14.287.280

Efla hf. kr. 19.960.032

Kostnaðaráætlun kr. 16.800.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Verkfræðistofu Reykjavíkur ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2209167

11

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi rekstrargreiningu á Áfangastofu höfuðborgarsvæðisins, dags. 07.09.22.

Málsnúmer 2209206

12

Erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi verkefnið borgað þegar hent er, dags. 07.09.22.

Lagt fram minnisblað frá starfshópi um samræmingu úrgangsflokkunar dags. 1. september 2022. Í minnisblaðinu kemur fram að starfshópurinn leggur til að stefnt verði að samræmdu innheimtu- og álagningarkerfi á höfuðborgarsvæðinu vegna sorphirðu og meðhöndlun úrgangs.

Bæjarráð samþykkir að starfshópurinn vinni áfram að málinu í samstarfi við fjármálastjóra sveitarfélaganna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2208797

13

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi ramma að samkomulagi um samræmda móttöku flóttafólks, dags. 26.08.22.

Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi ramma að samkomulagi um samræmda móttöku flóttafólks sem var til umfjöllunar á fundir stjórnar Sambandsins 26. ágúst sl.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og felur honum að undirbúa kynningu á stöðu flóttafólks í Garðabæ fyrir næsta fund bæjarráðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209183

14

Bréf Íþróttafélagsins Aspar um úthlutun á aðstöðu, dags. 02.09.22.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209207

15

Erindi heilbrigðiseftirlitsins varðandi nýjar samþykktir um hundahald, dags. 31.08.22.

Bæjarráð vísar samþykktunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2205046

16

Tillaga Garðabæjarlistans um gerð hjólreiðaáætlunar fyrir Garðabæ, dags. 05.05.22.

Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 5. maí sl. var tillögunni vísað til tækni- og umhverfissviðs og til bæjarráðs hvað varðar skipun stýrihóps.

Bæjarráð vísar því til næsta fundar að skipa fulltrúa í stýrihóp.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209216

17

Tillaga Viðreisnar um kolefnisjöfnun reksturs sveitarfélagsins.

Lögð fram eftirfarandi tillaga.

„Bæjarráð samþykkir að kolefnisjafna rekstur sveitarfélagsins ár hvert með greiðslu í Votlendissjóð til þess að undirstrika mikilvægi þess að draga úr losun koltvíoxíð.“

Greinargerð

Núverandi kolefnisspor af rekstri sveitarfélagsins nemur um 650 tonnum af CO2 ígildum. Hægt væri að kolefnisjafna reksturinn á hverju ári og taka ábyrgð á fyrri losun, t.d. með því að láta viðurkenndan aðila eins og Votlendissjóð endurheimta votlendi fyrir sömu upphæð. Endurheimt votlendis er skjótvirkasta loftslagsaðgerðin og hefur mikil jákvæð áhrif á vistkerfið.

Garðabær vinnur markvisst að því að draga úr losun frá starfsemi sveitarfélagsins en er í skuld við framtíðina vegna fyrri losunar. Því er kjörið tækifæri til að stíga fram fyrir skjöldu og kolefnisjafna síðustu 10 ár og verða fyrsta sveitarfélagið sem kolefnisjafnar sig.

Árið 1976 varð Garðabær kaupstaður og það væri metnaðarfullt að stefna að því á 50 ára afmælinu árið 2026 væri sveitarfélagið kolefnisjafnað frá upphafi.

Kostnaðurinn við þessa aðgerð miðað við verð Votlendissjóðs á hvert tonn er 2.000 krónur. Fyrir hvert ár væri áætlað verð í kring um 1.3 milljónir króna.

Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi Viðreisnar

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar umhverfisnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2204047

18

Opnun tilboða í byggingu dælustöðvar vatnsveitu í Vetrarmýri.

Eftirfarandi tilboð bárust í byggingu dælustöðvar fyrri vatnsveitu í Vetrarmýri.

Langeldur ehf. kr. 109.747.000

Fortis ehf. kr. 111.809.316

Stéttafélagið ehf. kr. 103.878.870

Kostnaðaráætlun kr. 77.797.950

Bæjarráð vísar tilboðunum á þessu stigi til nánari yfirferðar hjá tækni og umhverfissviði.