Beint í efni

Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi tillögu um kolefnisjöfnun reksturs sveitarfélagsins.

Málsnúmer 2209216

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

40. (2047). fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

5 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd tekur undir mikilvægi þess að draga úr losun koltvíoxið. Brýnt er að sveitarfélagið beri ábyrgð í nútíð og framtíð og leiti sífellt leiða til að draga úr losun koltvíoxið. Ýmis tækifæri eru fyrir hendi til að kolefnajafna í rekstri sveitarfélagsins. Umhverfisnefnd leggur til að við gerð fjárhagáætlunar verði horft til aðgerða sem draga úr losun koltvíoxís ásamt því að sveitarfélagið leiti markvisst tækifæra til að kolefnisjafna í rekstri sveitarfélagsins.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

4 (22-26). fundur

Lagt fram til kynningar og verður skoðað nánar á næsta fundi með aðgerðaráætlun með loftlagsstefnu.

Bæjarráð Garðabæjar

04

32. (2039). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga.

„Bæjarráð samþykkir að kolefnisjafna rekstur sveitarfélagsins ár hvert með greiðslu í Votlendissjóð til þess að undirstrika mikilvægi þess að draga úr losun koltvíoxíð.“

Greinargerð
Núverandi kolefnisspor af rekstri sveitarfélagsins nemur um 650 tonnum af CO2 ígildum. Hægt væri að kolefnisjafna reksturinn á hverju ári og taka ábyrgð á fyrri losun, t.d. með því að láta viðurkenndan aðila eins og Votlendissjóð endurheimta votlendi fyrir sömu upphæð. Endurheimt votlendis er skjótvirkasta loftslagsaðgerðin og hefur mikil jákvæð áhrif á vistkerfið.
Garðabær vinnur markvisst að því að draga úr losun frá starfsemi sveitarfélagsins en er í skuld við framtíðina vegna fyrri losunar. Því er kjörið tækifæri til að stíga fram fyrir skjöldu og kolefnisjafna síðustu 10 ár og verða fyrsta sveitarfélagið sem kolefnisjafnar sig.
Árið 1976 varð Garðabær kaupstaður og það væri metnaðarfullt að stefna að því á 50 ára afmælinu árið 2026 væri sveitarfélagið kolefnisjafnað frá upphafi.
Kostnaðurinn við þessa aðgerð miðað við verð Votlendissjóðs á hvert tonn er 2.000 krónur. Fyrir hvert ár væri áætlað verð í kring um 1.3 milljónir króna.
Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi Viðreisnar

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar umhverfisnefndar.

Fylgiskjöl