4 (22-26). fundur
4 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
14.09.2022
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Sófus Gústavsson - varamaður
- Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
- Einar Þór Einarsson - varamaður
Starfsmenn
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
01
Veiðikortið 2023
Umhverfisnefnd samþykkir að endurnýja samstarf við Veiðikortið og telur það góðan kost.
02
Samgönguvika 2022
Samgönguvika verður haldin 16-22. september. Drög af dagskrá lögð fram.
03
Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.
Skipulagsstjóri kynnti verkefnalýsingu vegna deiliskipulags Vetrarmýrar og Smalaholts, golfvöllur og útivistarskógur.
Umhverfisnefnd leggur til að íbúasamtök á nálægðum svæðum verði einnig umsagnaraðilar. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við verkefnalýsinguna.
04
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
Frestur til að sækja um styrk í framkvæmdasjóð ferðamannastaða er til 5. október.
06
Tillaga Garðabæjarlistans um örugg hjólastæði.
Vinna við greiningu á rými vegna hjólastæða við skóla og íþróttamannvirki var unnið árið 2019. Það þarf að skilgreina vel hver á að nota, hvað á að geyma, og hvernig er notkun er á þeim lausnum valin er á hverjum stað.
07
Tillaga Viðreisnar um kolefnisjöfnun reksturs sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar og verður skoðað nánar á næsta fundi með aðgerðaráætlun með loftlagsstefnu.