Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts, íþrótta- og útivistarsvæði, sem tekur til skipulagsmarka. Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
13. (965). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts ásamt umsögnum og athugasemdum. Lögð var fram greinargerð deiliskipulagsráðgjafa með tillögu að svörum við athugasemdum. Jafnframt var lögð fram skýrsla Eflu um áhrif tillögunnar á umferð aðliggjandi svæða. Skipulagsnefnd ítrekar að í svörum við athugasemdum er tekið fram að tenging Vorbrautar við Öldusali muni aðeins koma þegar þörf er á. Eftirfarandi atriðum er breytt í greinargerð eftir auglýsingu tillögunnar m.t.t. umsagna og ábendinga: Kafli 3.2. Bætt við að leita skuli samráðs við Náttúruverndarstofnun vegna náttúrugarðs. Kafli 3.4. Bætt við skilmála að samráð skal haft við viðeigandi veituaðila vegna veitumála. Kafli 3.4.1 Bætt við skilmálum um framkvæmdir innan helgunarsvæðis háspennulínu. Eftirfarandi atriðum er breytt á uppdráttum deiliskipulagsins eftir auglýsingu tillögunnar m.t.t. umsagna og ábendinga: Hnoðraholtslína: helgunarsvæði loftlínu og jarðstrengs sett inn á deiliskipulagsuppdrátt og skýringaruppdrætti. Golfbrautir á skýringaruppdrætti sýndar með tilliti til Hnoðraholtslínu en frekari hönnun í samráði við Landsnet, sjá greinargerð. Flóttamannavegur: 60 m helgunarsvæði stofnvegar skv. flokkun Vegagerðarinnar sett inn á uppdrætti. Friðlýsingarmörk látin ná að græna stígnum við Vífilsstaðavatn. Útivistarskógur í Smalaholti: Bílastæðum norðan Elliðavatnsvegar fjölgað um 10 stæði Lega útvistarstíga lagfærð á stuttum köflum til að fækka þverunum þeirra yfir reiðstíg í Smalaholti. Deiliskipulagið kallar á breytingar á aðliggjandi deiliskipulagsáætlunum; Hnoðraholt norður, Vetrarmýri-Miðsvæði og Heiðmörk og Sandahlíð, sem liggja fyrir afgreiðslu á fundi þessum og hafa verið samþykktar í skipulagsnefnd sem óverulegar breytingar og munu hljóta staðfestingu um leið og deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Ennfremur hefur óveruleg breyting rammahluta aðalskipulags Garðarbæjar 2016-2030 verið samþykkt þar sem mörk milli landnotkunarflekanna 4.10 Íþ og opins svæðis í Smalaholti breytast til aðlögunar að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts. Skipulagsnefnd samþykkti deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts með framangreindum breytingum í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
05
34. (2182). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts ásamt umsögnum og athugasemdum.
Lögð var fram greinargerð deiliskipulagsráðgjafa með tillögu að svörum við athugasemdum. Jafnframt var lögð fram skýrsla Eflu um áhrif tillögunnar á umferð aðliggjandi svæða. Skipulagsnefnd ítrekar að í svörum við athugasemdum er tekið fram að tenging Vorbrautar við Öldusali muni aðeins koma þegar þörf er á.
Eftirfarandi atriðum er breytt í greinargerð eftir auglýsingu tillögunnar m.t.t. umsagna og ábendinga:
Kafli 3.2. Bætt við að leita skuli samráðs við Náttúruverndarstofnun vegna náttúrugarðs.
Kafli 3.4. Bætt við skilmála að samráð skal haft við viðeigandi veituaðila vegna veitumála.
Kafli 3.4.1 Bætt við skilmálum um framkvæmdir innan helgunarsvæðis háspennulínu.
Eftirfarandi atriðum er breytt á uppdráttum deiliskipulagsins eftir auglýsingu tillögunnar m.t.t. umsagna og ábendinga:
Hnoðraholtslína: helgunarsvæði loftlínu og jarðstrengs sett inn á deiliskipulagsuppdrátt og skýringaruppdrætti. Golfbrautir á skýringaruppdrætti sýndar með tilliti til Hnoðraholtslínu en frekari hönnun í samráði við Landsnet, sjá greinargerð.
Flóttamannavegur: 60 m helgunarsvæði stofnvegar skv. flokkun Vegagerðarinnar sett inn á uppdrætti.
Friðlýsingarmörk látin ná að græna stígnum við Vífilsstaðavatn.
Útivistarskógur í Smalaholti: Bílastæðum norðan Elliðavatnsvegar fjölgað um 10 stæði
Lega útvistarstíga lagfærð á stuttum köflum til að fækka þverunum þeirra yfir reiðstíg í Smalaholti.
Deiliskipulagið kallar á breytingar á aðliggjandi deiliskipulagsáætlunum; Hnoðraholt norður, Vetrarmýri-Miðsvæði og Heiðmörk og Sandahlíð, sem liggja fyrir afgreiðslu á fundi þessum og hafa verið samþykktar í skipulagsnefnd sem óverulegar breytingar og munu hljóta staðfestingu um leið og deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts.
Ennfremur hefur óveruleg breyting rammahluta aðalskipulags Garðarbæjar 2016-2030 verið samþykkt þar sem mörk milli landnotkunarflekanna 4.10 Íþ og opins svæðis í Smalaholti breytast til aðlögunar að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.
Skipulagsnefnd samþykkti deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts með framangreindum breytingum í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
13. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts ásamt umsögnum og athugasemdum.
Lögð fram greinargerð deiliskipulagsráðgjafa með tillögu að svörum við athugasemdum. Jafnframt er lögð fram skýrsla Eflu um áhrif tillögunnar á umferð aðliggjandi svæða. Skipulagsnefnd ítrekar að í svörum við athugasemdum er tekið fram að tenging Vorbrautar við Öldusali muni aðeins koma þegar þörf er á.
Eftirfarandi atriðum er breytt í greinargerð eftir auglýsingu tillögunnar m.t.t. umsagna og ábendinga:
Kafli 3.2. Bætt við að leita skuli samráðs við Náttúruverndarstofnun vegna náttúrugarðs.
Kafli 3.4. Bætt við skilmála að samráð skal haft við viðeigandi veituaðila vegna veitumála.
Kafli 3.4.1 Bætt við skilmálum um framkvæmdir innan helgunarsvæðis háspennulínu.
Eftirfarandi atriðum er breytt á uppdráttum deiliskipulagsins eftir auglýsingu tillögunnar m.t.t. umsagna og ábendinga:
Hnoðraholtslína: helgunarsvæði loftlínu og jarðstrengs sett inn á deiliskipulagsuppdrátt og skýringaruppdrætti. Golfbrautir á skýringaruppdrætti sýndar með tilliti til Hnoðraholtslínu en frekari hönnun í samráði við Landsnet, sjá greinargerð.
Flóttamannavegur: 60 m helgunarsvæði stofnvegar skv. flokkun Vegagerðarinnar sett inn á uppdrætti.
Friðlýsingarmörk látin ná að græna stígnum við Vífilsstaðavatn.
Útivistarskógur í Smalaholti: Bílastæðum norðan Elliðavatnsvegar fjölgað um 10 stæði
Lega útvistarstíga lagfærð á stuttum köflum til að fækka þverunum þeirra yfir reiðstíg í Smalaholti.
Deiliskipulagið kallar á breytingar á aðliggjandi deiliskipulagsáætlunum; Hnoðraholt norður, Vetrarmýri-Miðsvæði og Heiðmörk og Sandahlíð, sem liggja fyrir afgreiðslu á fundi þessum og hafa verið samþykktar í skipulagsnefnd sem óverulegar breytingar og munu hljóta staðfestingu um leið og deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts.
Ennfremur hefur óveruleg breyting rammahluta aðalskipulags Garðarbæjar 2016-2030 verið samþykkt þar sem mörk milli landnotkunarflekanna 4.10 Íþ og opins svæðis í Smalaholti breytast til aðlögunar að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts með framangreindum breytingum í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
12. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts ásamt tillögu að viðbrögðum við þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa á auglýsingartíma. Lagt fram minnisblað Eflu ehf um áhrif tillögunnar á umferð innan aðliggjandi svæða m.a. Hnoðraholti.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
11. fundur
SKipulagsstjóri og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerðu grein fyrir úrvinnslu þeirra athugasemda og umsagna sem borist hafa. Fundað hefur verið með Skógræktarfélagi Garðabæjar og gengið með fulltrúum félagsins um Smalaholt til þess að átta sig betur á áhrifum tillögunnar á skóginn. Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
10. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust á auglýsingartíma.
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir samantekt um innsend gögn.
Skipulagsnefnd vísar framlögðum gögnum til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
7. fundur
Umsagnafrestur framlengdur
Vegna tæknilegra örðugleika í skipulagsgátt bárust beiðnir til umsagnaraðila ekki með réttum hætti. Samkvæmt ráðleggingu Skipulagsstofnunar fellst skipulagsnefnd Garðabæjar á að framlengja frest til að gera athugasemdir og veita umsagnir um 3 vikur, eða til og með 9. júní næstkomandi.
Bæjarstjórn Garðabæjar
11
6. (958). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. mars 2025, varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts sem gerir m.a. ráð fyrir golfvelli og útivistarskógi. Ábendingar og umsagnir sem bárust í forkynningu kölluðu á ýmsar lagfæringar á tillögunni. Fyrir lá minnisblað frá verkfræðistofunni Eflu sem inniheldur mat á áhrifum tillögunnar á aðliggjandi byggð af völdum áætlaðrar umferðar á austurhluta Vorbrautar. Unnin var umferðarspá og hljóðvistargreining og tillit hefur verið tekið til nýjustu breytinga á fjölda íbúða í Hnoðraholti norður. Í niðurstöðu minnisblaðsins segir m.a.: "Samgöngulíkan höfuðborgarsvæðisins sýnir að umferð vegna breyttrar uppbyggingarforsenda í rammahluta aðalskipulags Vífilsstaðalands er almennt séð minni en gert var ráð fyrir í fyrri greiningum. Þá má gera ráð fyrir að hljóðvist íbúa í Hnoðraholti N séu óbreyttar, ef ekki betri, en áður var gert ráð fyrir. Þ.e.a.s. ef að farið hefur verið í þær mótvægisaðgerðir sem áður voru lagðar til í Hnoðraholti N. Þá sýna greiningarnar einnig að bílaumferð sem mun leita um Vorbraut geti verið á bilinu 2.500-3.000 ökutæki á sólarhring (ÁDU). Með breyttri legu Vorbrautar og án mótvægisaðgerða er hægt að ná ásættanlegu hljóðstigi fyrir íbúa í Þorrasölum. Þá sýna niðurstöður að ekki er þörf á hljóðvörnum við lóðamörk, samkvæmt deiliskipulagi Þorrasala, né við Vorbraut." Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs að sjá til þess að staðssetningar fyrirhugaðra stíga og golfbrauta í Smalaholti verði merktar með áberandi hælum á auglýsingartíma tillögunnar þannig að hlutaðeigandi aðilar geti betur áttað sig á áhrifum þeirra. Eins breytt lega Elliðavatnsvegar norðan Vífilsstaðavatns.
Bæjarráð Garðabæjar
12
13. (2161). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. mars 2025, varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts sem gerir m.a. ráð fyrir golfvelli og útivistarskógi.
Ábendingar og umsagnir sem bárust í forkynningu kölluðu á ýmsar lagfæringar á tillögunni.
Fyrir lá minnisblað frá verkfræðistofunni Eflu sem inniheldur mat á áhrifum tillögunnar á aðliggjandi byggð af völdum áætlaðrar umferðar á austurhluta Vorbrautar. Unnin var umferðarspá og hljóðvistargreining og tillit hefur verið tekið til nýjustu breytinga á fjölda íbúða í Hnoðraholti norður. Í niðurstöðu minnisblaðsins segir m.a.:
"Samgöngulíkan höfuðborgarsvæðisins sýnir að umferð vegna breyttrar uppbyggingarforsenda í rammahluta aðalskipulags Vífilsstaðalands er almennt séð minni en gert var ráð fyrir í fyrri greiningum. Þá má gera ráð fyrir að hljóðvist íbúa í Hnoðraholti N séu óbreyttar, ef ekki betri, en áður var gert ráð fyrir. Þ.e.a.s. ef að farið hefur verið í þær mótvægisaðgerðir sem áður voru lagðar til í Hnoðraholti N. Þá sýna greiningarnar einnig að bílaumferð sem mun leita um Vorbraut geti verið á bilinu 2.500-3.000 ökutæki á sólarhring (ÁDU). Með breyttri legu Vorbrautar og án mótvægisaðgerða er hægt að ná ásættanlegu hljóðstigi fyrir íbúa í Þorrasölum. Þá sýna niðurstöður að ekki er þörf á hljóðvörnum við lóðamörk, samkvæmt deiliskipulagi Þorrasala, né við Vorbraut."
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs að sjá til þess að staðssetningar fyrirhugaðra stíga og golfbrauta í Smalaholti verði merktar með áberandi hælum á auglýsingartíma tillögunnar þannig að hlutaðeigandi aðilar geti betur áttað sig á áhrifum þeirra. Eins breytt lega Elliðavatnsvegar norðan Vífilsstaðavatns.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
6. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts sem gerir m.a. ráð fyrir golfvelli og útivistarskógi.
Ábendingar og umsagnir sem borist hafa í forkynningu hafa kallað á ýmsar lagfæringar á tillögunni.
Lagt fram minnisblað frá verkfræðistofunni Eflu sem inniheldur mat á áhrifum tillögunnar á aðliggjandi byggð af völdum áætlaðrar umferðar á austurhluta Vorbrautar. Unnin hefur verið umferðarspá og hljóðvistargreining og tillit hefur verið tekið til nýjustu breytinga á fjölda íbúða í Hnoðraholti norður. Í niðurstöðu minnisblaðsins segir m.a.:
"Samgöngulíkan höfuðborgarsvæðisins sýnir að umferð vegna breyttrar uppbyggingarforsenda í rammahluta aðalskipulags Vífilsstaðalands er almennt séð minni en gert var ráð fyrir í fyrri greiningum. Þá má gera ráð fyrir að hljóðvist íbúa í Hnoðraholti N séu óbreyttar, ef ekki betri, en áður var gert ráð fyrir. Þ.e.a.s. ef að farið hefur verið í þær mótvægisaðgerðir sem áður voru lagðar til í Hnoðraholti N. Þá sýna greiningarnar einnig að bílaumferð sem mun leita um Vorbraut geti verið á bilinu 2.500-3.000 ökutæki á sólarhring (ÁDU). Með breyttri legu Vorbrautar og án mótvægisaðgerða er hægt að ná ásættanlegu hljóðstigi fyrir íbúa í Þorrasölum. Þá sýna niðurstöður að ekki er þörf á hljóðvörnum við lóðamörk, samkvæmt deiliskipulagi Þorrasala, né við Vorbraut."
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs að sjá til þess að staðssetningar fyrirhugaðra stíga og golfbrauta í Smalaholti verði merktar með áberandi hælum á auglýsingartíma tillögunnar þannig að hlutaðeigandi aðilar geti betur áttað sig á áhrifum þeirra. Eins breytt lega Elliðavatnsvegar norðan Vífilsstaðavatns.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
5. fundur
Lögð fram öðru sinni að lokinni forkynningu tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts sem nær til golfvallar, útivistarskógar og íþróttavalla. Lagðar fram þær ábendingar og umsagnir sem borist hafa ásamt greiningu skipulagsráðgjafa á innihaldi þeirra. Halldóra Narfadóttir hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir þeim.
Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs og ráðgjafa að unnin verði greinargerð sem metur áhrif umferðar á Vorbraut. Sérstakalega skal horft til áhrifa á hljóðvist.
Tillögu og framlögðum gögnum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
4. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íþróttasvæðis, golfvallar og útivistarskógar í Vetrarmýri og Smalaholti, að lokinni forkynningu, ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd vísar framlögðum gögnum til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
16
24 (22-26). fundur
Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri kynnti vinnslutillögu að deiliskipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis í Smalaholti og Vetrarmýri, sem vísað hefur verið til forkynningar af skipulagsnefnd.
Íbúafundur vegna forkynningar á deiliskipulaginu var haldinn í Sveinatungu, 22. janúar sl. Tillagan er aðgengileg á vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is (mál: 81/2025).
Hægt er að senda inn rafrænar ábendingar til og með 24. febrúar nk. í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is, eða á netfangið skipulag@gardabaer.is.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
17
36. fundur
Kynning á breytingum á deiliskipulagi í Vetrarmýri og golfvelli GKG
Kynning á breytingum á deiliskipulagi í Vetrarmýri og golfvelli GKG
Bæjarstjórn Garðabæjar
18
19. (952). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. desember 2024 að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Boða skal til almenns íbúafundar þar sem tillagan verður kynnt á meðan á forkynningu stendur.
Bæjarráð Garðabæjar
20
47. (2148). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. desember 2024 að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Boða skal til almenns íbúafundar þar sem tillagan verður kynnt á meðan á forkynningu stendur.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
21
17. fundur
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi gerði grein fyrir tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Boða skal til almenns íbúafundar þar sem tillagan verður kynnt á meðan á forkynningu stendur.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
22
15. fundur
Þráinn Hauksson gerði grein fyrir mótun tillögu að deiliskipulagi íþróttasvæðis, golfvallar og útivistarskógs í Vetrarmýri og Smalaholti.
Tillögu vísað til áframhaldandi mótunar hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði. Linda Björk Jóhannsdóttir verkefnastjóri umhverfissviðs og Kári Jónsson íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi sátu kynninguna.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
23
9. fundur
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt og skipulagsráðgjafi gerði grein fyrir tillögum að deiliskipulagi golfvallar og útivistarskógar sem er í mótun.
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
24
3. fundur
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir stöðu mótunar tillögu að deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Vísað til áframhaldandi mótunar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
25
12. fundur
Formaður skipulagsnefndar, skipulagsstjóri og skipulagsráðgjafi Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerðu grein fyrir þeirri mótun sem unnið hefur verið að á tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts og því samtali sem hefur átt sér stað við Kópavogsbæ og GKG.
Tillögu vísað til áframhaldandi úrvinnslu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
26
9. fundur
Auglýsing fyrir Lýsingu lýkur til og með 26. sept.
Lagðar fram þær ábendingar og umsagnir sem borist hafa um skipulagslýsingu verkefnisins að lokinni auglýsingu hennar. Vísað til úrvinnslu umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
27
4 (22-26). fundur
Skipulagsstjóri kynnti verkefnalýsingu vegna deiliskipulags Vetrarmýrar og Smalaholts, golfvöllur og útivistarskógur.
Umhverfisnefnd leggur til að íbúasamtök á nálægðum svæðum verði einnig umsagnaraðilar. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við verkefnalýsinguna.
Bæjarstjórn Garðabæjar
28
10. (906). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu deiliskipulagstillögu fyrir svæði golfvallar Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar og útivistarskóg Skógræktarfélags Garðabæjar í Smalaholti, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“ (Mál nr. 2202488)
Bæjarráð Garðabæjar
29
28. (2035). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu deiliskipulagstillögu fyrir svæði golfvallar Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar og útivistarskóg Skógræktarfélags Garðabæjar í Smalaholti, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
30
7. fundur
Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu deiliskipulagsferlis vegna Vetrarmýrar og Smalaholts. Þráinn Hauksson og Halldóra Narfadóttir hjá Landslagi ehf gerðu grein fyrir innihaldi tillögunnar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem verkefnislýsingu deiliskipulagsgerðar viðkomandi svæðis í samræmi við 1.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
31
6. fundur
Skipulagsstjóri og Þráinn Hauksson skipulagsráðgjafi gerðu grein fyrir þeirri vinnu sem hafin er á mótun tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts en þar verður gert ráð fyrir golfvelli og útivistarskógi í samræmi við gildandi Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 m.s.br. sem sett er fram í rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði B.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að samráð við Skógræktarfélag Garðabæjar og GKG verði virkt um leið og góð tök náist á þeim úrlausnarefnum sem staðið er frammi fyrir.
Skipulagsnefnd felur skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði að vinna verkefnislýsingu í samræmi við 1.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123 2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
32
4. fundur
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir því tækni-og umhverfissvið hefur fengið Landslag ehf til þess að móta tillögu að deiliskipulagi golfvallar og skógargarðs í Smalaholti og Skyggni í samræmi við þá stefnu sem sett er fram í rammahluta aðalskipulags á Þróunarsvæði B (Vífilsstaðalandi) sem Landslag kom að. Fallið er frá gerð lýsingar í sbr.3.mgr.40.gr.Skipulagslaga þar sem að allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi.