15. fundur
15. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
14.11.2024
Kl. -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 8.Arnarnesháls/Arnarland
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til landnotkunarreitsins Arnarneshálss og nær því til sama svæðis og tillaga að deiliskipulagi Arnarlands.
Jóhanna Helgadóttir kynnti tillöguna en auk hennar voru Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur, Þorgerður Arna Einarsdóttir hjá Landey ehf og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt viðstödd fundinn undir þessum lið.
Tillögu að breyttri tillögu að deiliskipulagi Arnarlands hefur verið vísð til auglýsingar á nýjan leik og kallar hún á breytingu á tillögu að breytingu aðalskipulags,
Þær breytingar sem gerðar hafa verið frá áður auglýstri breytingartillögu eru eftirfarandi:
-Tákn um undirgöng undir Arnarnesveg færast austar á uppdrætti til samræmis við nýja tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og tillögu að breytingu deiliskipulags Akra.
-Ákvæði um hæðafjölda breytast, verða nú 2-6 hæðir í stað 3-6 og hæð kennisleitisbyggingar allt að 7 hæðir í stað 8.
-Lega stofnstíga breytast innan svæðis til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.
Þar sem að breytingar á tillögunni eru óverulegar frá áður auglýstri tillögu telur skipulagsnefnd að heimild Skipulagsstofnunar til auglýsingar tillögunnar sé enn í gildi.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni með ofangreindum breytingum til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.31.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
02
Arnarland. Deiliskipulag
Lögð fram ný tillaga að deiliskipulagi Arnarlands. Sú tillaga sem auglýst var í vor er lögð til grundvallar en gerðar hafa verið á henni ýmsar breytingar sem koma til móts við þær athugasemdir og umsagnir sem bárust.
Jóhanna Helgadóttir kynnti tillöguna en auk hennar voru Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur, Þorgerður Arna Einarsdóttir hjá Landey ehf og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt viðstödd fundinn undir þessum lið.
Helstu breytingar eru:
-Hámarkshæð kennileitisbyggingar lækkuð úr 8 hæðum í 7 hæðir, auk þess að flestir aðrir hlutar byggingar voru lækkaðir um 1-3 hæðir.
-Hæðafjöldi lækkar á mörgum byggingarreitum, m.a. næst Fífuhvammsvegi.
-Byggingarmagn atvinnu- og íbúðabyggðar minnkar og samhliða minnkar nýtingarhlutfall svæðisins alls úr 1,11 í 0,95.
-Fjöldi íbúða fer úr 529 í 451 íbúðir.
-Bætt við heimild fyrir leiksskóla á miðsvæði á opnu svæði sem myndast í miðju hverfinu þegar dregið hefur verið úr byggingarmagni.
-Undirgöng frá Landakri að Akrabraut, undir Arnarnesveg, færð austar.
-Bætt við kvöð um hitaveitulögn veitna meðfram Fífuhvammsvegi.
-Dælustöð fráveitu neðst á svæði felld út úr tillögu.
Samkvæmt breyttri tillögu minnkar áætluð umferðarsköpun af byggð í Arnaland um 14%.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að mótun deiliskipulagsins sé gerð í sem bestri sátt við íbúa í nágrenninu um leið og að skynsamlegri ráðstöfun þessa mikilvæga og verðmæta uppbyggingarsvæðis sé framfylgt.
Á fyrri stigum ferlisins var brugðist við ábendingum og umsögnum með ýmsu móti, m.a. var dregið úr byggingarmagni, hæðafjölda bygginga osfv. Þær athugasemdir sem bárust við auglýstri tillögu sýna að íbúar í nágrenninu telja að ganga mætti lengra til móts við ábendingarnar á ýmsa vegu. Nefndin fellst á þau sjónarmið og hefur því lagt til þær breytingar sem nú hafa verið gerðar á tillögunni í samráði við landeiganda og ráðgjafa.
Lögð fram svör við athugasemdum sem fram komu í minnisblaði umhverfissviðs Kópavogsbæjar er varðar innviði á svæðinu.
Tillagan kallar á breytingu á auglýstri breytingartillögu aðalaskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Arnarlands (Arnarneshálss) og hefur verið auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi. Sú breyting er það óveruleg að skipulagsnefnd telur að heimild sú sem Skipulagsstofnun veitti fyrir auglýsingu tillögunnar sé óbreytt.
Í samræmi við 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010 vísar skipulagsnefnd tillögunni til auglýsingar á nýjan leik, enda hefur henni verið breytt í grundvallaratriðum. Tillagan skal auglýst í samræmi við 1. mgr. sömu greinar og 1. mgr. 31. gr. sömu laga.
Stefnt er að því að halda almennan kynningarfund miðvikudaginn 4. desember, klukkan 17:00.
03
Akrahverfi - Dsk.br. - Undirgöng
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra (Akrahverfis).
Tillagan gerir ráð fyrir því að tenging Akrabrautar að undirgöngum undir Arnarnesveg yfir í Arnarland færist austar og fjær aðkomu að fjölbýlishúsinu við Hofakur. Lega undirganga er því í samræmi við nýja tillögu að deiliskipulagi Arnarlands sem vísað hefur verið til auglýsingar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
04
Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.
Þráinn Hauksson gerði grein fyrir mótun tillögu að deiliskipulagi íþróttasvæðis, golfvallar og útivistarskógs í Vetrarmýri og Smalaholti.
Tillögu vísað til áframhaldandi mótunar hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði. Linda Björk Jóhannsdóttir verkefnastjóri umhverfissviðs og Kári Jónsson íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi sátu kynninguna.
05
Urriðaholt. Lok uppbyggingar.
Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf og Drífa Árnadóttir hjá Alta ehf kynntu hugmyndir um uppbyggingu á þeim svæðum í Urriðaholti sem enn eru óbyggð. Þráinn Hauksson landslagsarkitekt sat fundinn undir þessum lið.
Hugmyndirnar verða kynntar á íbúafundi í Urriðaholti á næstunni.
Vísað til áframhaldandi mótunar hjá Urriðaholti ehf, ráðgjöfum og umhverfissviði.
06
Búðarflöt 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir stakstæðri bílageymslu á einbýlishúslóðinni Búðarflöt 1 að lokinni grenndarkynningu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og því er byggingarleyfisumsókn grenndarkynnt.
Ein athugasemd barst frá Veitum.
Umsókn og athugasemd vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
07
Hestamýri 1-3 - dsk br. Breiðamýri
Lögð fram umsókn uppbyggingaraðila um breytingu deiliskipulags Hestamýrar sem gerir ráð fyrir því að heimild byggingarmagns við Hestamýri aukist úr 10.000 m2 í 10.400 m2.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
08
Grásteinsmýri 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir og lóðaruppdráttur af fjölbýlishúsi að Grásteinsmýri 2.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlögð gögn hvað skipulagsþátt þeirra varðar.
09
Mosprýði 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu Garðahrauns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir sólskála við parhúsið Mosprýði 3 að lokinni grenndarkynningu. Ein athugasemd hefur borist og er hún lögð fram.
Fyrir mistök samþykkti skipulagsstjóri breytinguna áður en að athugasemd barst og hefur sú samþykkt verið afturkölluð.
Tillögu og athugasemd vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
10
Borgarás 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála vegna byggingarleyfis og skipulagsbreytingar að Borgarási 10.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
11
Miðbær, Svæði I og II, Garðatorg 1, dsk breyting
Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar sem gerir ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu á lóðinni Garðatorg 1 og nágrenni.
Eins og fram kemur í lýsingu er stefnt að því að tillögur verði mótaðar og kynntar samhliða tillögum að deiliskipulagi Móa.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða verkefnislýsingu í samræmi við 1. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
12
Ask.Rvk 2040 - Landnotkunarheimildir við Hringbraut - Hringbraut sem aðalgata frá Bjarkargötu að Ánanaustum
Lögð fram verkefnislýsing vegna tillögu að breytingu aðalskipulags Reykjavíkur.
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við verkefnislýsinguna.
13
Hleinar að Langeyrarmölun - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hleina að Langeyrarmölum sem tengist uppbyggingaráformum við Hrafnistu.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
14
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 14
Lagt fram
14.1 - 2411095 - Blikastígur 11 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn sem snýr að 23 m² viðbyggingu sem tengir saman bílskúr og íbúðarhúsnæði.
Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir norðurhluta Álftaness.
Í samræmi við 2 ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem viðbyggingin varðar ekki hagsmuni annarra.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
14.10 - 2409410 - Vorbraut 19 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Vorbraut 19 - Flokkur 2
Lagðir fram aðaluppdrættir ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
14.11 - 2411084 - Vorbraut 49-55 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um breytingu á gólfkótum raðhúslengjunnar Vorbrautar 49-55 þess efnis hvort unnt sé að breyta gólfkótum húsa nr. 53 og 55, þannig að þeir verða þeir sömu og við 49 og 51. Umsögn gatnahönnuðar liggur fyrir og er hún jákvæð. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að gólfkótum verði breytt á mæliblaði í samræmi við fyrirspurn með því ákvæði að hámarkshæð miði enn við upprunalegu gólfkóta.
14.12 - 2404284 - Útholt 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er i samræmi við framlagða uppdrætti. Gólfkóti á mæliblað hefur verið leiðréttur í kjölfar breytinga á gatnahönnun. Hámarkshæð húss miðast enn við upphaflegan gólfkóta, 77,05 mys.
14.13 - 2409605 - Útholt 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er i samræmi við framlagða uppdrætti. Gólfkóti á mæliblað hefur verið leiðréttur í kjölfar breytinga á gatnahönnun. Hámarkshæð húss miðast enn við upphaflegan gólfkóta, 78,45 mys.
14.14 - 2409320 - Skerpluholt 3 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem felur í sér hækkun á gólfkóta um 20 cm að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust og skoðast því tillagan samþykkt.
14.15 - 2410060 - Víkurgata 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn.
Umsóknin felur í sér byggingu á 25,6 m² sólskála.
Sólskálinn nær út fyrir byggingarreit að stórum hluta. Umsókn kallar á deiliskipulagsferli og því ekki hægt að fallast á útfærsluna að óbreyttu.
14.2 - 2007660 - Litlabæjarvör 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn. Umsóknin felur í sér byggingu steyptrar girðingar á lóðarmörkum.
Samþykki eigenda að Litlubæjarvör 21 og 23 liggur fyrir.
Austurhlið lóðar snýr að landi Garðabæjar.
Aðaluppdrættir gera ráð fyrir því að á lóðarmörkum Garðabæjar verði 1,9 m steypt girðing.
Með vísan í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar getur skipulagsstjóri ekki fallist á að heimila veggi eða girðingar á lóðarmörkum Garðabæjar sem snúa að opnum svæðum, stígum og safngötum hærri en 1,5 m.
14.3 - 2410171 - Mosprýði 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja byggingarleyfi.
Unmsóknin felur í sér að breyta óútgröfnu rými í tæknirými og geymslu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem eru í samræmi við framlagða uppdrætti.
14.4 - 2410475 - Kjarrprýði 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Kjarrprýði 10, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
14.5 - 2411132 - Mávanes 16 - tvö fastanúmer - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um fjölgun íbúða Mávanes 16 (tvö fastanúmer). Með vísan í eldri fyrirspurnir sama eðlis, um fjölgun íbúða í einbýlishúsum í Garðabæ, er afar ólíklegt að skipulagsnefnd fallist á að vísa umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í einbýlishúsahverfi í ferli.
14.6 - 2404512 - Smiðsbúð 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn á húsnæðinu að Smiðsbúð 9. Tillagan er í samræmi við ákvæði deiliskipulags þar sem heimilt er að hafa íbúðarrými á efri hæð. Minnt skal á að þjónusturými á neðri hæð eru ekki ætluð til búsetu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem eru í samræmi við framlagða uppdrætti.
14.7 - 2411149 - Ásbúð 76 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um að skipta eigninni Ásbúð 76 upp í tvo eignarhluta. Með vísan í fyrri fyrirspurnir sama eðlis, um fjölgun íbúða í húsum í einbýlishúsahverfum í Garðabæ, er afar ólíklegt að skipulagsnefnd fallist á að vísa umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í einbýlishúsahverfi í ferli.
14.8 - 2409317 - Þorraholt 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir af fjölbýlishúsi að Þorraholti 11 sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Umsögn deiliskipulagshöfundar lögð fram ásamt greinargerð hönnuðar hússins þar sem brugðist er við umsögninni.
Samkvæmt afstöðumynd á aðaluppdrætti ná svalir á vesturgafli og suðurgafli byggingar lengra út fyrir byggingarreit en deiliskipulag kveður á um.
Breidd byggingar á 4 m kafla er 16,6 m en samkvæmt skipulagi skal hámarksbreidd byggingar vera 15 m.
Skipulagsstjóri lítur svo á að ákvæði um bílastæðafjölda sé lágmarksákvæði.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað svalir og breidd byggingar varðar enda útfærsla hússins í góðu samræmi við markmið deiliskipulags að öllu öðru leyti. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
14.9 - 2407382 - Vorbraut 15 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað varðar uppbrot úthliða, sem minnst er á í umsögn deiliskipulagshöfundar enda hönnun hússins að öllu öðru leyti í góðu samræmi við markmið deiliskipulags. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.