Hestamýri 1-3 - dsk br. Breiðamýri
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
2. (954). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 23. janúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem gerir ráð fyrir aukningu á hámarksbyggingarmagni ásamt þeim umsögnum sem borist hafa. Engar athugasemdir bárust og umsagnir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
4. (2152). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 23. janúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem gerir ráð fyrir aukningu á hámarksbyggingarmagni ásamt þeim umsögnum sem borist hafa. Engar athugasemdir bárust og umsagnir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem gerir ráð fyrir aukningu á hámarksbyggingarmagni ásamt þeim umsögnum sem borist hafa. Engar athugasemdir bárust og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
17. (950). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 14. nóvember varðandi umsókn uppbyggingaraðila um breytingu deiliskipulags Hestamýrar sem gerir ráð fyrir því að heimild byggingarmagns við Hestamýri aukist úr 10.000 m2 í 10.400 m2. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
05
43. (2144). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 14. nóvember varðandi umsókn uppbyggingaraðila um breytingu deiliskipulags Hestamýrar sem gerir ráð fyrir því að heimild byggingarmagns við Hestamýri aukist úr 10.000 m2 í 10.400 m2.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
15. fundur
Lögð fram umsókn uppbyggingaraðila um breytingu deiliskipulags Hestamýrar sem gerir ráð fyrir því að heimild byggingarmagns við Hestamýri aukist úr 10.000 m2 í 10.400 m2.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
12. fundur
Lagðar fram hugmyndir uppbyggingaraðila, Hestamýrar ehf, um áframhaldandi uppbygging fjölbýlishúsa við Hestamýri. Ásgeir Guðmundsson framkvæmdastjóri Hestamýrar og Birkir Árnason arkitekt hjá Nordic arkitektum gerðu grein fyrir hugmyndunum.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
5. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir aukningu byggingarmagns fjölbýlishúsa í Hestamýri. Byggingarmagn miðast við 10.000 m2 í Hestamýri samkvæmt ákvæðum deiliskipulagsins. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar sem er jákvæð gagnvart hóflegri aukningu byggingarmagns á meðan ákvæði um uppbrot efstu hæða eru uppfyllt. Ekki er gert ráð fyrir fjölgun íbúðareininga.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
4. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem nær til fjölbýlishúsabyggðar við Hestamýri.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til umsagnar deiliskipulagshöfundar.