Beint í efni

17. (950). fundur

21.11.2024
Bæjarstjórn Garðabæjar

17. (950). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

21.11.2024

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Bjarni Theódór Bjarnason - varabæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. nóvember 2024 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2411011F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 12/11 ´24.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 8.tl. Vinnu og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ og 9.tl. Holtsbúð 87 - Klaustrið. Samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur.

Guðfinnur Sigurvinsson, bæjarfulltrúi, sat ekki fundinn undir þessum dagskrárlið.

Fundargerðin sem er 14.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2411021F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 19/11 ´24.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna legu undirganga við Arnarnesveg, 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar - Arnarnesháls/Arnarland og 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu að deiliskipulagi fyrir Arnarland.

Almar Guðmundsson ræddi 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna legu undirganga við Arnarnesveg, 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar - Arnarnesháls/Arnarland, 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu að deiliskipulagi fyrir Arnarland og 9.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar, Svæði I og II, Garðatorg 1.

Fundargerðin sem er 12.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2411016F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 13/11 ´24.

Harpa Rós Gísladóttir ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun - málaflokk 06, 2.tl. hjólreiðastefnu Garðabæjar, 3.tl. Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breytingu 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi, 4.tl. íþróttafólk ársins 2024 - Íþróttahátíð Garðabæjar jan 25, 5.tl. rekstur íþróttahússins í Mýrinni og 6.tl. tillögu Garðabæjarlistans um stofnun starfshóps vegna seinkunar á upphafi skóladags á unglingastigi.

Almar Guðmundsson ræddi önnur mál "Veistu hvað barnið þitt er með í bakpokanum".

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2411004F

04

Fundargerð leikskólanefndar frá 13/11 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2410040F

05

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 14/11 ´24.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. Bókasafn Garðabæjar og Iceland Noir hátíðina.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2411005F

06

Fundargerð skipulagsnefndar frá 7/11 ´24

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2411006F

07

Fundargerð skipulagsnefndar frá 14/11 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2411003F

08

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 6/11 ´24.

Ingvar Arnarson ræddi fundargerðina.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. Menntadaginn 2024, 3.tl. Forvarnarviku Garðabæjar 2024 og 4.tl. tillögu Garðabæjarlistans um stofnun starfshóps vegna seinkunar á upphafi skóladags á unglingastigi.

Guðfinnur Sigurvinsson ræddi fundargerðina.

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 3.tl. Forvarnarviku Garðabæjar.

Almar Guðmundsson ræddi fundargerðina og 3.tl. Forvarnarviku Garðabæjar.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2409027F

09

Fundargerð ungmennaráðs frá 17/9 ´24.

Gunnar Valur Gíslason ræddi fundargerðina og hrósaði Ungmennaráði Garðabæjar fyrir vönduð vinnubrögð.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2411015F

10

Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/11 ´24.

Stella Stefánsdóttir ræddi 1.tl. gróðurelda - greiningu á hættusvæðum í Upplandi Garðabæjar, 2.tl. mengunarmælingar, 4.tl. útikennslu við Vífilsstaðavatn 2024 og 5.tl. Hlið - deiliskipulagsbreytingu - veitingahús.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl., gróðurelda - greiningu á hættusvæðum í Upplandi Garðabæjar.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl.gróðurelda - greiningu á hættusvæðum í Upplandi Garðabæjar. Þá ræddi hann minningarskjöld um Viðlagasjóðshús.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl., mengunarmælingar 2024.

Ingvar Arnarson ræddi 1.tl. gróðurelda - greiningu á hættusvæðum í Upplandi Garðabæjar og 4.tl. útikennslu við Vífilsstaðavatn 2024.

Stella Stefánsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. mengunarmælingar 2024.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401134

11

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 27/9 og 18/10 ´24.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Málsnúmer 2401136

12

Fundargerð stjórnar SSH frá 4/11 ´24.

Bjarni Th. Bjarnason ræddi 3.tl. frumniðurstöður ESA um undanþágur á greiðslu tekjuskatts byggðasamlaga.

Almar Guðmundsson ræddi 3.tl. frumniðurstöður ESA um undanþágur á greiðslu tekjuskatts byggðasamlaga.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 3.tl. frumniðurstöður ESA um undanþágur á greiðslu tekjuskatts byggðasamlaga.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401137

13

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 8/11 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2407142

14

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 - Tillaga um álagningarhlutfall útsvars.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um álagningu útsvars á árinu 2025.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 14,71% á tekjur manna á árinu 2025 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24.gr. laganna.

Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2024, samkvæmt 2.mgr. 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995."

Tillagan samþykkt samhljóða.