Beint í efni

1. fundur

23.01.2025
Skipulagsnefnd Garðabæjar

1. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

23.01.2025

Kl. 8.00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Formaður skipulagsnefndar lagði til að tveimur málum sem voru ekki í fundarboði yrði bætt við á dagskrá fundarins. Það eru fundarliðir nr.8 og nr.15. Samþykkt.

Dagskrá

Málsnúmer 2110128

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 8.Arnarnesháls/Arnarland

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til landnotkunarreitsins Arnarneshálss (Arnarlands) að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.

Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 2110129

02

Arnarland. Deiliskipulag

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarlands að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.

Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 2411164

03

Akrahverfi - deiliskipulagsbreyting - Undirgöng

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akralands að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.

Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 2410080

04

Hnoðraholt - Háholt - Aðalskipulagsbreyting

Lögð fram verkefnislýsing fyrir mótun skipulags á háholti Hnoðraholts að lokinni kynningu ásamt þeim umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.

Málsnúmer 2403271

05

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, breyting á rammahluta Vífilsstaðalands. Tilfærslur á íbúðafjölda.

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 að lokinni kynningu ásamt umsögnum og athugasemdum sem borist hafa.Tillagan nær til rammahluta aðalskipulags í Vífilsstaðalandi. Niðurstaða skoðunar hjá Umhverfissviði er sú að umsagnir og athugasemdir gefa ekki tilefni til breytinga á auglýstri tillögu.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu Aðalskipulags Garðarbæjar 2016-2030 í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2406282

06

Hnoðraholt norður-deiliskipulagsbreyting - raðhús - fjölbýlishús íbúðareiningar

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga í raðhúsum og fjölbýlishúsum að lokinni auglýsingu ásamt þeirri athugasemd og umsögnum sem borist hafa.

Skipulagsnefnd áréttar að útmörk bygggingarreits raðhúslengjunnar Stekkholt 55-61 (fyrir breytingu Stekkholt 45-49) til norðurs sé þau sömu fyrir og eftir breytingu þannig að skuggavarp af byggingunni breytist ekki þó svo að íbúðareiningum sé fjölgað um eina.

Í athugasemd frá Eflu er bent á að æskilegt sé að breyta hæðarkótum á fjölbýlishúsum við sunnanverða Vorbraut til aðlögunar vegna útfærslu á bílakjöllurum. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri samþykki breytingar á hæðarkótum á meðan að hámarkshæð húsanna (mys) samkvæmt skipulagi sé óbreytt.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2501073

07

Spilda í landi Grundar - Fyrirspurn um rekstur veislusalar

Lögð fram fyrirspurn eigenda Spildu A í landi Grundar við norðaustanverða Breiðabólsstaðatjörn hvort heimilað verði að reka veislusal í byggingunni sem í dag er nýtt undir garðyrkjufyrirtæki. Húsið var áður fjárhús en hefur verið breytt.

Vísað til úrvinnslu tillagna að deiliskipulagi Norðurness og tillögu að breytingu aðalskipulags sem verður unnin samhliða deiliskipulagstillögu.

Málsnúmer 1803108

08

Norðurnes Álftaness, deiliskipulag

Skipulagsstjóri gerir grein fyrir drögum að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi sem liggja fyrir. Skipulagsnefnd vísar drögunum til frekari útfærslu.

Málsnúmer 2501296

09

Kumlamýri 25-27 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um breytingu á parhúsalóðinni Kumlamýri 25-27 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Í breytingunni felst að byggingarreitum parhússins er "speglað".

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Kumlamýrar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum parhúslóðanna Kumlamýri 17-19, 21-23 og 29-31.

Málsnúmer 2403204

10

Hestamýri 1-3 - dsk br. Breiðamýri

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem gerir ráð fyrir aukningu á hámarksbyggingarmagni ásamt þeim umsögnum sem borist hafa. Engar athugasemdir bárust og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar.

Málsnúmer 2501011

11

Garðprýði 1 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram ný tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir því að lóðin Garðprýði 1 (Hraungarðar) skiptist í tvær lóðir. Gert er ráð fyrir nýjum byggingarreit nær nústandandi byggingu en fyrri tillaga gerði, auk þess sem hann stendur neðar í landi. Byggingarreitur sem nú er á stórum hluta lóðarinnar minnkar og takmarkast við núverandi hús og staðsetningu nýrrar byggingar samkvæmt tillögunni. Aðkoma að nýrri byggingu er innan lóðar Garðprýði 1. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús þar sem athygli skal vakin á auglýsingunni.

Málsnúmer 2302193

12

Ásahverfi, farsímasamband.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda að lokinni auglýsingu ásamt þeirri athugasemd og umsögnum sem borist hafa. Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu farsímamasturs við göngubrú yfir Hafnarfjarðarveg. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2406836

13

Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.

Lögð fram verkefnislýsing sem hefur verið í kynningu ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.

Málsnúmer 2410218

14

Móaflöt 51 - Dsk. br. Flata

Erindi lóðarhafa lagt fram. Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði.

Málsnúmer 2410059

15

Kauptún 6 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar Kauptúns 6, ásamt umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði.

Málsnúmer 2109102

16

Suðurhraun 2a - stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits lóðarinnar Suðurhrauns 2a.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Molduhrauns og vísar henni til grenndarkynningar.

Grenndarkynna skal eigendum Miðhrauns 16, 18 og 20 og Suðurhrauns 1, 4 og 6.

Málsnúmer 2410151

17

Húsnæðisáætlun HMS - 2025

Hrönn Hafliðadóttir gerði grein fyrir drögum að húsnæðisáætlun.

Málsnúmer 2312368

18

Erindisbréf starfshóps um staðarvalsgreiningu í stað endurvinnslustöðvarinnar við Dalveg

Lagt fram.